Morgunblaðið - 13.01.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
Bamix töfrasproti
Verð 29.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Alvöru útsalan
20%
AFSLÁTT
UR
er NÚNA!
Rafmangshitablásarar
Verðdæmi
2kw. 1.fasa.
Verð 5.512 kr.
verð áður 6.890
15kw. 3. fasa.
Verð 23.992 kr.
verð áður 29.990
MIKIÐ
ÚRVAL
20%
AFSLÁTTUR
Tengibox 1x32A-
1 x 16-4x230v
15.992
Áður kr. 19.990
Rafmagnshita-
blásari 2Kw
1.592
Áður kr. 1.990 20%
AFSLÁTT
UR
Fjöltengibox IP44
H07RN F3G1,5
1,5 m snúra
1.352
Áður kr. 1.690
Lavor Rudy
ryk/vatnssuga
1200W
7.120
Áður kr. 8.900
Kapalkefli 10m H05vv-
F3G1,5mm
2.152
Áður kr. 2.690
20%
AFSLÁTT
UR
20%
AFSLÁTT
UR
Páll Erland, framkvæmdastjóriSamorku, var í Viðskipta-
mogganum á fimmtudag spurður
að því hvaða lögum hann myndi
breyta væri hann einráður í einn
dag.
Páll svaraðisvona: „Minn
draumur væri að
Alþingi mætti að-
eins samþykkja 10
lög á ári. Þá fyrst
þyrfti að forgangs-
raða út frá þörfum
fyrir lagasetningu, lagaumhverfi
almennings og fyrirtækja væri
ekki sífellt að breytast og nægur
tími gæfist til að vanda vel til
verka.“
Nú kann að vera að nákvæm-lega þessi útfærsla á því að
stilla lagasetningu í hóf sé ekki vel
framkvæmanleg, en ábendingin er
þörf og vissulega ætti Alþingi oftar
að stilla sig um að setja ný lög – og
oftar að nema úr gildi óþörf lög
eða þaðan af verri.
Hið sama gildir vitanlega umaðra reglusetningu hins op-
inbera.
Og það ætti ekki að vera kapps-mál að Alþingi starfi sem
lengst á hverju ári, ekki frekar en
að það framleiði sem mest af lög-
um.
Alþingi er ekki verksmiðja ogárangur þess verður ekki
mældur á mælikvarða hefðbundins
framleiðslufyrirtækis.
Árangurinn mælist í því hversuvel þinginu gengur að skapa
þjóðfélaginu umgjörð sem íþyngir
borgurunum ekki um of en tryggir
öryggi þeirra og hagsæld.
Páll Erland
Um magn og gæði í
störfum Alþingis
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 5 alskýjað
Nuuk -9 snjóél
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló -3 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 alskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -4 skýjað
Lúxemborg 6 þoka
Brussel 6 þoka
Dublin 8 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 6 þoka
París 6 alskýjað
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 1 þoka
Berlín 2 þoka
Vín 4 skýjað
Moskva -7 snjókoma
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 7 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -26 heiðskírt
Montreal 8 rigning
New York 15 þoka
Chicago -5 snjókoma
Orlando 23 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:59 16:14
ÍSAFJÖRÐUR 11:33 15:51
SIGLUFJÖRÐUR 11:17 15:33
DJÚPIVOGUR 10:36 15:37
Páll Theodórsson eðlis-
fræðingur lést á Land-
spítalanum í Fossvogi
8. janúar síðastliðinn á
90. aldursári.
Páll fæddist 4. júlí
1928 í Reykjavík. Hann
var sonur Sveinbjörns
Theodórs Jakobssonar
skipamiðlara og Krist-
ínar Pálsdóttur konu
hans. Páll lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1947 og fyrrihlutaprófi
í verkfræði frá Háskóla
Íslands (HÍ) 1950.
Hann lauk magistersprófi í eðl-
isfræði frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1955. Að loknu námi starfaði
Páll við kjarnorkurannsóknastöðina
í Risø 1955-58 og við Eðlisfræði-
stofnun HÍ 1958-61. Páll var á meðal
stofnenda Rafagnatækni og starfaði
þar 1961-63 að hann sneri aftur til
starfa við HÍ, fyrst hjá Eðl-
isfræðistofnun og síðar hjá
Raunvísindastofnun.
Hann var for-
stöðumaður Eðlis-
fræðistofu HÍ 1975-81.
Páll hafði umsjón
með þættinum Tækni
og vísindi í Rík-
isútvarpinu 1961-71 og
ritaði fjölda greina.
Rannsóknir hans
beindust einkum að
mælingum á geisla-
virkum efnum og ritaði
hann bókina „Meas-
urement of Weak
Radioactivity“ (1966).
Síðustu árin rannsak-
aði hann aldursgreiningar sýna í
tengslum við tímasetningu land-
náms Íslands.
Páll kvæntist eftirlifandi eigin-
konu sinni Svandísi Skúladóttur (f.
1929) 29. júlí 1953. Þau eignuðust
fjögur börn.
Útför Páls verður gerð frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 17. janúar
klukkan 15.
Andlát
Páll Theodórsson
eðlisfræðingur
Starfsáætlun Alþingis hefur verið
birt á vef þingsins. Hún var sam-
þykkt á fundi forsætisnefndar þings-
ins 28. desember.
Samkvæmt henni mun Alþingi
hefja störf eftir jólahlé mánudaginn
22. janúar og stefnt er að því að
fresta þingi fimmtudaginn 7. júní.
Vegna sveitastjórnarkosning-
anna, sem fram fara laugardaginn
26. maí, verður gert hlé á þingstörf-
um frá og með 11. til 25. maí, eða í
tvær vikur.
Fyrri umræða um fjármálaáætlun
verður þriðjudaginn 20. mars og
skýrsla utanríkisráðherra um utan-
ríkismál verður flutt og rædd þriðju-
daginn 10. apríl.
Nefndafundir hefjast að nýju 16.
janúar næstkomandi. Nefndastörf-
um á að ljúka 1. júní og almennar
stjórnmálaumræður (eldhúsdagur)
verða mánudaginn 4. júní.
Hátíðarfundur verður haldinn á
Þingvöllum miðvikudaginn 18. júlí
2018. Þar verður minnst 100 ára af-
mælis fullveldis Íslands. Reikna má
með að þingfundur verði haldinn
degi áður í Reykjavík.
Næsta þing, 149. löggjafarþingið,
verður sett þriðjudaginn 11. septem-
ber 2018. sisi@mbl.is
Alþingi gerir hlé
vegna kosninga
Stefnt er að þingfrestun 7. júní