Morgunblaðið - 13.01.2018, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
40-50%
ÚT S A L A !
AFSLÁTTUR
10% AFSLÁTTURAF
NÝJUMVÖRUM
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
DÚNÚLPA
FULLT VERÐ 26.980,
VERÐNÚ 16.188
ÚTSALA
40-60%
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
ÚTSALA ÚTSALA
40-50% afsláttur
Opið 11-16 í dag
Stórútsalanhafin
Vetraryfirhafnir
GERRY WEBER - BETTY BARCLAY
Gæðafatnaður
40-60% afsláttur
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
hægt að grípa í það og þar getum við
og félögin brugðist við með
ákveðnum hætti.“
Fræða komandi kynslóð
Spurður hvaða viðbrögð hand-
boltahreyfingin muni fara í segir
Guðmundur klárt að efla þurfi
fræðslu á öllum sviðum. „Viðbrögðin
okkar eru fyrst og fremst þau að við
þurfum að setja þetta inn í okkar
fræðslukerfi, bæði varðandi fræðslu
til þjálfara, dómara og jafnframt til
forráðamanna félaga, um hvernig
eigi að bregðast við. Þá hugsa ég það
þannig gagnvart þjálfurunum að fara
yfir hvernig menn eiga að koma fram
og gagnvart félögunum þurfum við
hugsanlega að efla fræðslu í því
hvernig á að bregðast við þegar
svona kvartanir berast,“ segir Guð-
mundur og bætir við að Hafdís Inga
Hinriksdóttir, fyrrverandi landsliðs-
kona í handbolta og sérfræðingur í
Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur
ofbeldis, hafi um síðustu helgi rætt
við afrekshópa HSÍ. „Um síðustu
helgi vorum við með afrekshópana
okkar á fræðslufundi, þar sem meðal
annars þetta mál var tekið upp og
rætt. Þar mætti Hafdís og flutti er-
indi til að opna augu krakkanna fyrir
því hvernig upplifun þeirra kvenna
er, sem hafa verið að segja frá. Við
teljum ákveðna forvörn í því, að
svona komi ekki upp. Að menn séu
meðvitaðir um að svona framkoma
líðist ekki.“
Vanda til verka í viðbrögðum
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri Knattspyrnusambands Íslands
(KSÍ), segir knattspyrnuhreyfinguna
leita í verkferla ÍSÍ þegar svona mál
koma upp og í einstökum tilfellum er
leitað utanaðkomandi aðstoðar.
„Við erum í sambandi við ráðgjaf-
arfyrirtæki á ýmsum sviðum og við
höfum kannað hvort eitthvert af þeim
hafi þá sérfræðiþekkingu sem þarf.
Við munum vinna það áfram í róleg-
heitum,“ segir Klara um viðbrögð við
frásögnunum. Hún segir KSÍ hafa
verið í samskiptum við þær knatt-
spyrnukonur sem komu fram undir
nafni. „Það hafa tveir leikmenn, tvær
knattspyrnulandsliðskonur, verið
nafngreindir. Við höfum verið í sam-
bandi við þær báðar og hrósað þeim
fyrir þann styrk sem þær hafa sýnt
með framtaki sínu og jafnframt látið
þær vita af því ef það eitthvað sem
við getum gert,“ segir Klara. Hún
segir að Freyr Alexandersson, þjálf-
ari kvennalandsliðsins, hafi rætt við
Hólmfríði Magnúsdóttur, landsliðs-
konu í fótbolta, áður um hennar mál
en Hólmfríður er ein þeirra kvenna
sem stigu fram. Hún sagði frá kyn-
ferðislegri áreitni sem hún varð fyrir
í Noregi. „Við vissum að hún væri í
vandræðum hjá sínu félagi en vissum
ekki hversu alvarlegt þetta var,“ seg-
ir Klara og bætir við að nauðsynlegt
sé að vanda til verka í viðbrögðum við
þessum frásögnum. „Við megum
hvorki grafa málið né hlaupa af stað í
spretti. Við þurfum að vanda til
verka. Ráðast að ólíðandi hegðun á
mörgum vígstöðvum í einu og með
hag þolenda að leiðarljósi en megum
jafnframt ekki gleyma hinu gífurlega
mikilvæga starfi hreyfingarinnar.
Við megum ekki tala þannig að for-
eldrar þora ekki að senda stelpurnar
sínar á æfingu, þannig að þetta er
mjög vandfarið.“
ttahreyfingunni
Morgunblaðið/Eggert
Íþróttir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, vonar að það sé forvörn í því að fræða næstu kynslóðir. Þá hefur
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, stofnað starfshóp til að vinna að aðgerðaáætlun með Íþróttasambandinu.
Starfshópur á vegum mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins um gerð aðgerðaáætlunar um hvernig eigi að
bregðast við kynbundinni áreitni innan íþrótta- og æsku-
lýðshreyfingarinnar var stofnaður í gær. Þetta var nið-
urstaða fundar Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menning-
armálaráðherra, með þremur fulltrúum íþróttakvenna,
forseta ÍSÍ og framkvæmdastjóra UMFÍ. Starfshópurinn á
að samræma verklag og fræðslu innan íþrótta- og æsku-
lýðshreyfingarinnar. „Ég er mjög þakklát þessum konum
sem hafa verið að stíga fram. Ég er sannfærð um að þetta
framtak mun skila sér og gera varanlegar breytingar. Ég
er líka mjög ánægð með forystu ÍSÍ og UMFÍ fyrir að koma strax að málum
um að hægt sé að fara inn í þetta með þessum hætti,“ sagði Lilja í samtali
við mbl.is. Hún kveðst hafa boðað þau á sinn fund í framhaldi af yfirlýsingu
íþróttakvenna og frásögnum þeirra sem voru birtar í gær.
Ráðuneytið stofnar starfshóp
LILJA ALFREÐSDÓTTIR ÞAKKLÁT ÞEIM SEM STIGU FRAM
Lilja
Alfreðsdóttir
Allt um sjávarútveg