Morgunblaðið - 13.01.2018, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
Bílasmiður óskast
Viljum ráða bifreiðasmið eða mann vanan
bílaréttingum.
Upplýsingar í síma 899 5424.
Bílverk BÁ ehf.,
Selfossi.
Hjúkrunarfræðingur
í 75% starf Domus Medica
Hjúkrunarfræðingur óskast í 75% starf.
Starfið felst í að vinna í þverfaglegu teymi
sérfræðinga í efnaskipta- og offituskurð-
lækningum, undirbúningur sjúklinga fyrir
aðgerð og eftirfylgni þeirra með reglu-
bundnu eftirliti á göngudeild auk undirbún-
ings vikulegs teymisfundar um nýja og eldri
sjúklinga.
Umsækjandi verður að hafa lokið menntun
í hjúkrunarfræðum. Æskilegt er að umsækj-
andi hafi klíníska reynslu af meðferð
sjúklinga og geti unnið sjálfstætt og hafi
áhuga á næringarfræði. Möguleikar eru á
klíniskum rannsóknum sem gætu lokið með
æðri gráðu.
Umsóknir berist með ferilsskrá (CV) til
Auðuns Sigurðssonar yfirlæknis, Domus
Medica, Egilsgötu 3, Reykjavík 101, fyrir
1. febrúar nk.
Atvinnuviðtöl munu fram 16. febrúar nk.
Starfið veitist frá 1. mars 2018 eða eftir
samkomulagi. Kjör samkvæmt samningum
hjúkrunarfræðinga.
Frekari upplýsingar veitir Auðun Sigurðsson
yfirlæknir í audun@magaband.is
Gravitas,
Domus Medica, Egilsgötu 3,
101 Reykjavík
HB Grandi leitar að drífandi starfsfólki í eftirtalin störf á mannauðssviði HB Granda.
TVÖ STÖRF Í MENNTUN OG MANNAUÐI
HB Grandi er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi
þar sem verkefni starfsfólks spanna alla virðiskeðjuna frá
veiðum og vinnslu til sölu og dreifingar á afurðum félags-
ins. HB Grandi leggur áherslu á að fá til starfa hæft og
traust starfsfólk sem vinnur af fagmennsku og ábyrgð
að því að tryggja sjálfbæra nýtingu og hagkvæmni í um-
gengni við auðlindina.
HB Grandi er vinnustaður þar sem stjórnendum og starfs-
fólki er annt um vellíðan og heilsu vinnufélaga sinna.
HB Grandi er jafnréttissinnaður vinnustaður þar sem
leitast er við að fá jafnt konur sem karla til starfa í hinum
fjölbreyttu vinnuhópum fyrirtækisins.
FRÆÐSLUFULLTRÚI
Við leitum að drífandi einstaklingi til að skipuleggja
og halda utan um fræðslu- og starfsþróunarmál
HB Granda.
HELSTU VERKEFNI
• Skipulag og utanumhald fræðslu og starfsþróunar
• Umsjón með mannauðskerfi
• Ráðgjöf og eftirfylgni við ráðningar, móttöku nýliða
og starfslok
• Umsjón með viðburðum sem mannauðssvið ber ábyrgð á
• Skýrslugjöf og tilfallandi verkefni
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af fræðslu- og/eða starfsmannamálum
• Eiga gott með að tjá sig í ræðu og riti
• Jákvæðni og gott viðmót
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður
til að ná árangri
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
MANNAUÐS- OG LAUNAFULLTRÚI
Við leitum að öflugum liðsauka til skráningar
og vinnslu upplýsinga í mannauðskerfi HB Granda.
HELSTU VERKEFNI
• Skráning í mannauðskerfi og utanumhald
• Launavinnsla í samvinnu við aðra launafulltrúa
• Umsjón með gerð aðgangskorta og
samgöngusamninga
• Utanumhald fræðsludagskrár í samvinnu við
fræðslufulltrúa
• Tilfallandi verkefni á mannauðssviði
HÆFNISKRÖFUR
• Hagnýt menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af launavinnslu eða bókhaldi er kostur
• Nákvæmni, sjálfstæð vinnubrögð
• Metnaður til að ná árangri
• Jákvæðni og gott viðmót
Mannauðssvið HB Granda hf.
hefur umsjón með mannauðs-
málum félagsins og veitir
stjórnendum faglega ráðgjöf og
stuðning varðandi mannauðs-
mál, túlkun kjarasamninga og
eftirlit með framkvæmd starfs-
mannastefnu.
Áhugasamir umsækjendur
sendi ferilskrá og fylli út
umsókn á:
https://attentus.umsokn.is/
Umsóknarfrestur er til og með
24. janúar 2018
Nánari upplýsingar veitir Friðrik
Friðriksson, framkvæmdastjóri
mannauðssviðs.
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018.
Umsókn, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, óskast fyllt
út á vef félagsins www.airicelandconnect.is/umsokn
Við hlökkum til að heyra frá þér.
Starfið:
• Hefur umsjón með gæðakerfi félagsins
og öryggismálum, að ákveðnir þættir flugrekstrarins
séu í samræmi við lög og reglur hverju sinni.
• Skipuleggur úttektir í samvinnu við úttektarmenn
á flugrekstrar- og tæknisviði, tekur þátt í þeim eins
og við á, vinnur úr og fylgir eftir.
• Er ráðgefandi um gæðastefnu félagins
varðandi viðhald og flug.
• Fylgist með og upplýsir um breytingar
á reglugerðum og aðstoðar við innleiðingu þeirra.
• Aðstoðar við þróun verkferla, áhættumat
og gerð gæðahandbóka.
• Aðstoðar við úttektir óháðra aðila og er í samskiptum
við flugmálayfirvöld.
• Hefur umsjón með starfsmannamálum deildarinnar.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Að lágmarki fimm ára starfsreynsla sem nýtist
í starfinu, a.m.k. tvö ár innan fluggeirans.
• Marktæk þekking og reynsla af gæðastjórnun.
• Góð þekking á lögum og reglugerðum viðeigandi
stjórnvalda varðandi flugrekstur.
• Hafa lokið viðurkenndum námskeiðum í
gæðastjórnun, úttektum og skýrslugerð
eða vera reiðubúin/n að ljúka slíkum námskeiðum
á komandi mánuðum.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
• Jákvætt hugarfar og leikni í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar og hæfni
til að miðla upplýsingum.
• Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Við leitum að traustum starfskrafti sem er gæði í gegn
Air Iceland Connect leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf gæða- og öryggisstjóra sem bætist
í hóp eðalstarfsmanna. Gæða- og öryggisstjóri þarf að hljóta samþykki Samgöngustofu og heyrir
starfið beint undir framkvæmdastjóra Air Iceland Connect. Ef þú ert jákvæð eða jákvæður, með
brennandi áhuga á gæða- og öryggisstjórn og metnað í starfi, smellpassar þú í hópinn.
Gæða- og öryggisstjóri