Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 13

Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 13
Leikararnir eru 18 talsins auk þess sem fjöldi fólks vinnur á bak við tjöldin m.a. að búningagerð, förðun, leik- mynd og ljósa- stjórn. Köld eru kvennaráð Konurnar láta mikið að sér kveða. sem Fanney Vala Arnórsdóttir, sem fékk í vöggugjöf stóran skammt af svokallaðri leikhúsbakteríu. Hún er af leikurum og leikstjórum komin og hóf sjálf leikferilinn árið 1995 þegar hún lék Herra Níels í uppfærslu Borgarleikhússins á Línu Lang- sokk. Síðar lá svo leiðin á sviðið á Breiðumýri þar sem hún tók þátt í uppfærslu á Fiðlaranum á þakinu árið 2002 og síðar Landsmótinu 2004. Hún var fimm ár í Lundúnum í leiklist og leikstjórnarnámi og eftir útskrift þaðan kenndi hún leik- húsfræði auk þess að stofna eigið leikhúsfyrirtæki þ.e. StepbyStep Productions sem hefur það að mark- miði að veita ungu og upprennandi leikhúsfólki tækifæri til þess að koma sér á framfæri. Hún segir að það séu forréttindi að geta unnið bæði hér á landi og í Lundúnum. Völu finnst frábært að fá að vinna með fólkinu sem hún ólst upp með þ.e. í Reykjadal og því fólki sem er stór partur af hennar uppeldi hvort heldur var í skóla, íþróttum, fjósinu og síðast og ekki síst í leik- húsinu á Breiðumýri. Mikill söngur og fimm manna hljómsveit Tónlistarstjóri hjá Efl- ingu er, eins og oft áður, Ja- an Alavere og má segja að tónlistin hafi verið honum í blóð borin frá því hann var aðeins fimm ára gamall þegar hann byrjaði form- lega í tónlistarnámi í heimalandi sínu Eistlandi. Hann hefur nú starfað á Ís- landi í tuttugu ár og starfað sem tónlistarkennari við Stórutjarnaskóla auk þess að stjórna Söngfélaginu Sálubót til margra ára. Jaan hefur, auk þess að flytja og stjórna flutn- ingi á tónlist, samið mikið af lögum og útsett fyrir kóra. Hann samdi t.d. sjö lög fyrir uppfærslu Eflingar á Kvennaskólaævintýrinu, auk þess sem hann samdi öll lögin í söngleikj- unum Ólafíu og Í beinni. Hann er mikill áhugamaður um leiklist og hann trúir því að ekkert sé óyfirstíg- anlegt þegar á sviðið kemur. Hljóm- sveitina í leikritinu skipa auk Jaans Alavere þeir Pétur Ingólfsson, Borgar Þórarinsson, Þórgnýr Val- þórsson og Stefán Bogi Aðalsteins- son. Líf og fjör á sviðinu Helstu persónur í leikritinu eru m.a. Gissur gamlingi, Guðríður sú gamla, Adam sem er ungi maðurinn og Eva sem er unga konan. Þá má nefna Jósep bæjarstjóra, Maríu prest og Stanislaw og Jelene frá Austur-Evrópu. Einnig koma við sögu þau Kjartan og Lísa, Hreinn Sveinn sem er einhleypingur og Dúdda sem er einhleyp kona. Það gengur mikið á á sviðinu og ABBA-lögin setja mikinn kraft í mannskapinn. Leikdeild Eflingar hyggst sýna verkið um helgar í mars og ef að líkum lætur þá verður mikið klappað í leikhúsinu á Breiðu- mýri eins og oft áður, enda mikið líf og fjör. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Tjáning Í leikritinu eru tilfinninga- þrungnar stundir. Gömul Elín Kjart- ansdóttir og Jón Friðrik Benón- ýsson sem Guð- ríður sú gamla og Gissur gamlingi. Embættismenn Ólafur Ólafsson og Freydís Anna Arngrímsdóttir sem Jósep bæjarstjóri og María prestur. Unga fólkið Broddi Gautason og Hermína Fjóla Ingólfs- dóttir leika Adam og Evu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.