Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áformað er að taka nýja álmu á
Hótel Örk í notkun 15. maí næst-
komandi. Með henni tvöfaldast fjöldi
herbergja á hótelinu. Verkið hefur
unnist hratt en
framkvæmdir
hófust á síðari
hluta árs í fyrra.
Jakob Arnar-
son, hótelstjóri á
Hótel Örk, segir
að með nýju álm-
unni bætist við 78
herbergi. Fyrir
eru 79 herbergi
og verða því alls
157 herbergi á hótelinu.
Viðbyggingin er í öðrum stíl en
núverandi byggingar. Hún verður
með flötu þaki og álklæðningu.
Ásgeir Ásgeirsson, arkitekt hjá
Tark arkitektum, teiknar húsið.
Tvær 55 fermetra svítur
Jakob segir að í nýju álmunni
verði 68 stærri herbergi, 8 minni
svítur og tvær 55 fermetra svítur.
Herbergi í þessum stærðarflokkum
höfði meðal annars til kínverskra og
bandarískra ferðamanna. Það skapi
tækifæri fyrir hótelið. „Við finnum
fyrir spenningi vegna viðbygging-
arinnar. Það er meiri áhugi á þess-
um stærri herbergjum. Við ætlum
að fara með hótelið í fjórar stjörnur
og erum að aðlaga okkur að því
þessa dagana,“ segir Jakob.
Hann segir aðspurður að þjón-
ustustigið sé að hækka. Til dæmis
með þvottaþjónustu og lengri
opnunartíma á veitingastað.
Samhliða uppbyggingunni hefur
ein hæð á hótelinu verið endurnýjuð.
Þá hefur móttakan verið tekin í gegn
sem og aðalsalurinn, Aðalgerði.
Jafnframt var opnaður nýr veitinga-
staður, Hver Restaurant.
Hæðirnar endurnýjaðar
Jakob segir að með haustinu verði
farið að huga að því að endurnýja
fleiri hæðir núverandi bygginga.
Hann segir stöðugildum munu
fjölga um 8 með stækkun hótelsins í
alls 40. Hann segir aðspurður það
vera áskorun að finna starfsfólk.
Hótel Örk nýtur á ýmsan hátt sér-
stöðu meðal hótela á landsbyggð-
inni. Það býður upp á veitingastað,
bar, 9 holu golfvöll, sundlaug með
vatnsrennibraut, heita potta, gufu-
bað og ýmsa aðra afþreyingu. Ná-
lægð við höfuðborgarsvæðið skapar
tækifæri vegna funda og ráðstefna.
Hótelið var opnað 1986. Það var
reist af Helga Jónssyni, sem rak það
fyrstu árin. Hótelið var teiknað af
Kjartani Sveinssyni arkitekt. Árið
1989 var það endurhannað að innan.
Ný Hótel Örk opnuð í maí
Ný álma að verða tilbúin Með henni tvöfaldast fjöldi herbergja á hótelinu
Hótelstjórinn segir markmiðið að Hótel Örk verði fjögurra stjarna hótel
Tölvuteikning/Tark arkitektar
Stíll Yfirbragð nýju herbergjanna er annað en þeirra gömlu.
Tölvuteikning/Tark arkitektar
Gamli og nýi tíminn Herbergin verða á fjórum hæðum. Sum þeirra verða með svalir.
Tölvuteikning/Tark arkitektar
Viðbygging Með nýju álmunni bætast við 78 herbergi.
Jakob Arnarson Ljósmynd/Hótel Örk
Endurnýjuð Móttakan var öll tekin í gegn.
Jóhannes Sigmunds-
son, fyrrverandi bóndi
og kennari í Syðra-
Langholti 3 í Hruna-
mannahreppi, er lát-
inn, 86 ára að aldri.
Jóhannes var fædd-
ur 18. nóvember 1931
í Syðra-Langholti,
sonur Sigmundar Sig-
urðssonar, bónda og
oddvita þar, og konu
hans, Önnu Jóhann-
esdóttur húsfreyju.
Jóhannes bjó alla tíð í
Syðra-Langholti,
stofnaði nýbýlið
Syðra-Langholt 3 og stundaði þar
búskap og var með ferðaþjónustu.
Jóhannes stundaði nám í Hér-
aðsskólanum að Laugarvatni og
varð stúdent frá Menntaskólanum
að Laugarvatni árið 1954. Hann
var kennari við Flúðaskóla í 33
ár.
Jóhannes Sigmundsson stund-
aði íþróttir alla tíð og tók þátt í
félagsmálum sveitar sinnar og
héraðs frá unga aldri. Meðal fé-
lagsmálastarfa má nefna að hann
var í stjórn Ungmennafélags
Hrunamanna, í varastjórn Ung-
mennafélags Íslands og formaður
Héraðssambandsins Skarphéðins
í tíu ár. Hann starf-
aði áfram í nefndum
og að öðrum félags-
störfum fyrir HSK
og var kjörinn
heiðursformaður
sambandsins á árinu
2011. Hann var einn-
ig formaður Kenn-
arafélags Suður-
lands og Ferða-
málasamtaka
Suðurlands og sat í
Ferðamálaráði Ís-
lands fyrir ferða-
þjónustuna á Suður-
landi.
Hann safnaði sögum af fólki í
uppsveitum Árnessýslu og gaf út
í Gamansögum úr Árnesþingi á
árinu 2014.
Jóhannes kynntist Hrafnhildi
Svövu Jónsdóttur frá Sauðár-
króki á Laugarvatnsárunum og
giftu þau sig á árinu 1954. Hún
lifir mann sinn. Þau eignuðust sjö
börn, Hilmar, Sigmund, Sigur-
björgu, Snorra Frey, Gunnar
Þór, Önnu Láru og Ásdísi Erlu.
Jóhannes lést á dvalarheimilinu
Ási í Hveragerði síðastliðinn
mánudag. Útförin fer fram frá
Skálholtskirkju föstudaginn 2.
mars klukkan 13.
Andlát
Jóhannes Sigmundsson
í Syðra-Langholti
Framboðsfrestur
fyrir prófkjör
Sjálfstæðis-
flokksins í Hafn-
arfirði fyrir bæj-
arstjórnar-
kosningarnar í
vor rann út í vik-
unni en kjörnefnd
bárust 14 fram-
boð. Allir fimm
bæjarfulltrúar
flokksins sækjast eftir endurkjöri,
þau Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti og
formaður bæjarráðs, Helga Ingólfs-
dóttir, Ingi Tómasson, Kristinn
Andersen og Unnur Lára Bryde.
Prófkjörið fer fram laugardaginn 10.
mars nk.
Aðrir frambjóðendur eru Bergur
Þorri Benjamínsson, formaður
Sjálfsbjargar, Einar Freyr Bergs-
son framhaldsskólanemi, Eyrún Ey-
fjörð Svanþórsdóttir framhalds-
skólanemi, Guðbjörg Oddný
Jónasdóttir mannauðsstjóri, Kristín
Thoroddsen, MBA nemi og varabæj-
arfulltrúi, Lovísa Björg Trausta-
dóttir, iðnrekstrarfræðingur og
meistaranámsnemi, Magnús Ægir
Magnússon fjármálaráðgjafi, Skarp-
héðinn Orri Björnsson, fram-
kvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi,
og Tinna Hallbergsdóttir, gæða-
fulltrúi Viðlagatrygginga.
14 gefa
kost á sér í
Hafnarfirði
Rósa
Guðbjartsdóttir
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og jafnréttismálaráðherra, hefur
skipað Sigríði Jónsdóttur, sérfræð-
ing í velferðarráðuneytinu, til að
fara með stjórn nýrrar gæða- og eft-
irlitsstofnunar á sviði félagsþjón-
ustu. Ákvörðun ráðherra er í sam-
ræmi við niðurstöðu ráðgefandi
nefndar sem mat Sigríði hæfasta úr
hópi 22 umsækjenda um embættið,
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Sigríður er með BA gráðu í al-
mennum þjóðfélagsfræðum og fram-
haldsgráðu frá háskólanum í Man-
chester.
Sigríður
metin hæfust