Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Grafinn lax
- Láttu það eftir þér
Söluaðilar:10-11,Hagkaup,Kostur,Icelandverslanir,Kvosin,Melabúðin,
Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óvenju margir haftyrðlar fundust á
götum Vestmannaeyjabæjar í des-
ember og janúar, að því er segir á
heimasíðu náttúrugripasafnsins Sæ-
heima. Haftyrðill er minnstur svart-
fugla og hánorræn tegund. Hann er
nokkuð algengur vetrargestur hér
við land. Á árum áður urpu haf-
tyrðlar við norðurströnd Íslands og
hélst varp þeirra lengst í Grímsey.
Síðast fannst haftyrðlahreiður þar
árið 1995. Haftyrðlar eru algengir á
Svalbarða, Grænlandi, Franz Jós-
efslandi og víðar í norðurhöfum.
Endaði ævina í Friðarhöfn
Kristján Hilmarsson fann dauðan
haftyrðil í Friðarhöfn í Vest-
mannaeyjum 5. janúar. Sá var
merktur og búinn dægurrita, litlu
tæki sem skráir sólargang sem nota
má til að staðsetja fuglinn daglega.
Árni, bróðir Kristjáns, skilaði
dægurritanum og merkinu og fékk
upplýsingar um fuglinn. Hann sagði
að samkvæmt þeim hefði fuglinn
verið merktur 2. ágúst 2016 á
Bjarnarey, sem er syðsta eyjan í
Svalbarðaeyjaklasanum. Milli
Bjarnareyjar og Vestmannaeyja
eru tæplega 2.000 km í beinni loft-
línu. Árni er búinn að vera á Herj-
ólfi undanfarið og fylgist með lífinu
á sjónum. „Það er mikið af haftyrðli
hérna. Maður sér upp í 10-12 í hóp.
Þeir eru hringinn í kringum Vest-
mannaeyjar og á milli Þorláks-
hafnar og Vestmannaeyja.“
Lesið af merkinu
Sunna Björk Ragnarsdóttir, líf-
fræðingur hjá Náttúrustofu Suð-
vesturlands, las af dægurritanum
og sendi gögnin til Noregs þar sem
unnið var úr þeim í tengslum við al-
þjóðlegt rannsóknarverkefni sem
nefnist SEATRACK. Sunna sagði
að fuglinn hefði verið merktur á
hreiðri. Þessi tiltekni haftyrðill er
merkilegur fyrir að hann var var
fangaður aftur í fyrrasumar og
skipt um dægurrita. Þess vegna eru
til upplýsingar um ferðir hans frá
sumrinu 2016 og til dauðadags.
Sunna sagði að gögn úr SEAT-
RACK hefðu sýnt að haftyrðlar frá
Bjarnarey færu víða til vetursetu.
Fuglinn kom upp ungum
Hálfdán Helgi Helgason, líffræð-
ingur, er verkefnisstjóri við SEA-
TRACK. „Dægurritarnir voru sett-
ir á fuglinn sem hluti af alþjóðlegu
rannsóknarverkefni sem nefnist
SEATRACK,“ skrifaði Hálfdán í
svari við fyrirspurn Morgunblaðs-
ins.
Hann sagði að að sögn Hallvards
Strøm, yfirmanns SEATRACK og
sem einnig stýrir sjófuglavöktun
fyrir hönd Norsku heimskauta-
stofnunarinnar (Norsk pol-
arinstitutt) á Bjarnarey, hefði þess-
um tiltekna fugli tekist að koma
upp unga bæði árin sem hann var
vaktaður, 2016 og 2017. Hálfdán
sagði að fengist hefði vilyrði frá
Náttúrufræðistofnun Íslands fyrir
því að hræið af haftyrðlinum yrði
sent til Noregs þar sem það yrði
krufið og sýni send til frekari grein-
inga.
Kortleggja vetrarstöðvarnar
„SEATRACK hefur það að
markmiði að kortleggja vetr-
arstöðvar sjófuglastofna sem verpa
við Norðaustur-Atlantshaf. Alls
hafa yfir 8.700 dægurritar verið
settir á einstaklinga af 11 teg-
undum og nú þegar hafa 3.200 ritar
verið endurheimtir. Rannsóknin
hefur farið fram í 38 sjófuglabyggð-
um í fimm löndum; Noregi (þ.m.t.
Svalbarða og Jan Mayen), Íslandi,
Bretlandi, Færeyjum og Rúss-
landi.“ Hálfdán sagði að verkefnið
hefði byrjað árið 2014 og var hug-
myndin að ljúka því haustið 2018.
Nú eru líkur á að það verði fram-
lengt til ársins 2022. „Verkefninu er
aðallega ætlað að kortleggja út-
breiðslu sjófugla utan varptíma,
farleiðir og fellistöðvar sjó-
fuglastofna, greina umhverfistþætti
sem einkenna mikilvæg sjó-
fuglasvæði og kanna breytileika
svæðanotkunar á milli ára og greina
áhættuþætti á slíkum svæðum. Fyr-
ir áhugasama má benda á smáforrit
verkefnisins (http://seatrack.sea-
pop.no/map/) þar sem skoða má
hluta fyrirliggjandi niðurstaða verk-
efnisins hingað til og heimasíðu þar
sem finna má frekari upplýsingar
(http://www.seapop.no/en/seatrack).
Fór suður fyrir Ísland
Samkvæmt þeim gögnum sem
fyrir liggja fór fuglinn bæði árin
suður fyrir Ísland yfir háveturinn
en snéri til Bjarnareyjar eins og
fyrr segir sumarið 2017. Svo langt
sem gögn frá Bjarnarey ná virðist
einhver hluti stofnsins halda sig
suður af Íslandi en að langstærstu
leyti halda þeir til norðaustur af
landinu. Aðrir haftyrðlastofnar
vaktaðir af SEATRACK halda sig
einnig þar en dreifast sömuleiðis
meðfram austurströnd Grænlands,
suður af Hvarfi og inn með vest-
urströnd Grænlands. Hluti stofns-
ins heldur sig í Barentshafi árið um
kring.“
Hálfdán sagði að heimsstofn haf-
tyrðla væri stór og hann væri án
efa algengasti sjófugl í Norður-
Atlantshafi. Erfitt væri að meta
raunverulega stærð stofnsins vegna
varphátta tegundarinnar. „Helstu
heimildir segja 16-36 milljónir varp-
para eftir því hvaða aðferðum er
beitt. Varpstöðvar haftyrðla ná frá
Baffinlandi í vestri til Severnaya
eyjaklasans í Karahafi í austri. Þeir
eru hánorræn tegund og hafa verið
mikið rannsakaðir, m.a. af Norsk
Polarinstitutt á Bjarnarey og Sval-
barða. Niðurstöður þeirra rann-
sókna benda sterklega til þess að
hækkandi sjávarhitastig og aukin
áhrif Atlantssjávar á norðurslóðum
hafi neikvæð áhrif á lífslíkur full-
orðinna fugla og varpárangur.“
Breytingar hjá sjófuglunum
Margt bendir til að haftyrðlar
eigi nú undir högg að sækja eins og
stofnar margra hánorrænna sjó-
fuglategunda. Þetta hefur gerst um
leið og útbreiðslusvæði sjófuglateg-
unda sem voru suðlægari, t.d. súlu
og skúms, hafa stækkað og færst
norður á bóginn. Hálfdán gat þess
að súlur hefðu byrjað varp á
Bjarnarey, syðstu eyju Svalbarða-
eyjaklasans, árið 2011 og hefur súl-
um þar farið ört fjölgandi síðan.
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Fastir veturgestir við Ísland
Haftyrðill sem fannst dauður í Vestmannaeyjum var með dægurrita Ferðir fuglsins höfðu verið
skráðar 2016 og 2017 Bæði árin lagði hann leið sína víða og fór suður fyrir Ísland yfir veturinn
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Í vetrarbúningi Haftyrðlar eru tíðir gestir við Íslandsstrendur. Þessi fugl
heimsótti Húsavík þar sem myndin var tekin.
Í sumarbúningi á Svalbarða Haftyrðill er minnstur svartfugla en stofninn er stærsti sjófuglastofn í N-Atlantshafi. Hann verpti hér á árum áður og síðast fannst haftyrðilshreiður í Grímsey 1995.
Kort/SEATRACK
Ferðalangur Hér sést hvert fuglinn fór 2016 (bláir punktar) og 2017 (rauðir
punktar). Gögnin hafa ekki verið unnin en bæta má nákvæmni staðsetninga.