Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Tilboð/útboð
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Geðhjálpar 2018
Aðalfundur Geðhjálpar verður haldinn að
Borgartúni 30, 2. hæð til hægri, laugardaginn
17. mars kl. 14.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf,
m.a. kjör nýrra stjórnarmanna, umfjöllun um
ársskýrslu og ársreikning samtakanna.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.
Virðingarfyllst,
stjórn Geðhjálpar.
www.gedhjalp.is
20635 Verðfyrirspurn nr. 20635 -
Ræðismannaráðstefna á Íslandi 2019.
Ríkiskaup fyrir hönd Utanríkisráðuneytisins áætlar
að ráða ráðstefnufyrirtæki til að hafa yfirumsjón
með Ræðismannaráðstefnu á Íslandi 2019.
Ræðismannaráðstefna verður haldin á Íslandi
dagana 26.-27. september 2019 (komudagur
25. september, brottfarardagur 29. september).
Ákveðið hefur verið að ráðstefnan verði haldin í
Hörpu og hefur fundaaðstaða þar verið tekin frá.
Gert er ráð fyrir að fjöldi þátttakenda verði
svipaður og á síðustu ræðismannaráðstefnu, sem
haldin var í október 2014, eða um 300, - þar af um
140 ræðismenn. Nánari upplýsingar á vef
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Skila skal tilboðum
til Ríkiskaupa eigi síðar en 5. mars 2018 kl. 14.00.
Til leigu
Útboð
Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • veitur.is
Veitur ohf., óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV-
2018-06 Færsla veitulagna“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu
Orkuveitunnar frá mánudeginum 26.02.2018
https://www.or.is/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110
Reykjavík, föstudaginn 09.03.2018 kl. 11:00
VEV-2018-06 24.02.2018
SPÖNG
FÆRSLA VEITULAGNA
*Nýtt í auglýsingu
*20710 Brúavegrið, stólpar og festingar fyrir
Vegagerðina. Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðar-
innar, óska eftir tilboðum í vegrið á þrjár brýr, sem
eru 124 metrar að lengd samtals .
Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is,
miðvikudaginn 28. febrúar nk. Opnun tilboða
20. mars 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum.
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • Sími 525 6700 • mos@mos.is • ww.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Hugmyndasamkeppni um
!
Mosfellsbær í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands
efnir til samkeppni um hönnun á nýju aðkomutákni
til að marka þrjár aðkomur að bænum.
Í ágúst síðastliðnum voru liðin
30 ár frá því að Mosfellsbær fékk
kaupstaðarréttindi. Ákveðið var af
því tilefni að efna til hugmynda-
samkeppni og er stefnt að því
að vígja vinningstillöguna á
31 árs afmæli bæjarins í
ágúst næstkomandi.
VERKEFNIÐ
"
#
!
$ !
%
!
& !
ÞÁTTTAKA
Samkeppnin er opin landslagsarki-
tektum, arkitektum, menntuðum
' (
'
)
'
*
' VERÐLAUNAFÉ
+
.//////
&
'
# ! DÓMNEFND
!
# -
0' ' 1
&%
# Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Rammasamningur um tunnur, ker og djúpgáma,
EES útboð nr. 14055.
• KHÍ reitur. Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 14170.
• Grassláttur á borgarlandi í vesturhluta
Reykjavíkur 2018-2020, EES útboð nr. 14179.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
ÁTVR – Leiguhúsnæði óskast á
Skeifusvæðinu
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að
taka á leigu um 600-800 m² húsnæði fyrir Vínbúð á
Skeifusvæðinu í Reykjavík. Svæðið afmarkast af
Skeiðarvogi, Miklubraut, Grensásvegi og
Suðurlandsbraut. Húsnæðið mun skiptast að
u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3 hluta í
lager og starfsmannaaðstöðu.
Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
1. Vera á skilgreindu verslunarsvæði.
2. Liggi vel við almenningssamgöngum
3. Umferð að og frá húsnæðinu sé greið.
4. Húsnæðið skal vera á jarðhæð.
5. Húsnæði bjóði upp á að vöruhurð opnist beint
út á bak- eða hliðarsvæði.
6. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskipta-
vini og næg bílastæði (a.m.k. 30-50 bílastæði
sem eru ætluð Vínbúðinni eða sérmerkt Vín-
búðinni).
7. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir
hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera
bílastæði fyrir starfsfólk.
8. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla
og/eða lyftara með vörur skal vera góð.
9. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll
rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur,
veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um
verslunarhluta húsnæðisins.
10. Hljóðdempun í verslun skal tryggja góða
hljóðvist og birtulýsing skal vera 500-600 lux
(fer eftir ástandi við skil).
11. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum
sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnar-
aðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim.
Leigutími húsnæðisins er 8-10 ár.
Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi
og ræðst afhendingartími nánar af ástandi þess
við afhendingu.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það
húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi
til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykja-
vík fyrir kl. 11:00, fimmtudaginn 8. mars 2018
merkt: ,,20719 - Leiga á húsnæði fyrir Vínbúð ÁTVR
á Skeifusvæðinu”.
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfar-
andi:
1. Staðsetning.
2. Teikningar af húsnæði.
3. Mögulegur afhendingartími.
4. Ástand húsnæðis við afhendingu.
5. Leiguverð án vsk. og skal það innifela allan
kostnað.
6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á
kröfuliði 1-11 að ofan á leigutímanum.
7. Kvaðir sem kunna að hafa áhrif á starfsemi
Vínbúðar á svæðinu
ÓSKAST TIL LEIGU