Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 60
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Húsið er allt svart og þakið myglu“
2. Var skilin eftir af Strætó …
3. Sendibíll valt á Breiðholtsbraut
4. Sunna Elvira flutt til Sevilla
Sýning myndlistarkonunnar Krist-
ínar Reynisdóttur, Synjun, verður
opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju á
morgun við messulok kl. 12.15. Krist-
ín vinnur með við sem fenginn er úr
ruslakompu trésmiðju og ber því á
táknrænan hátt tilvísun í tilvistarlega
stöðu flóttamanna, sem eru afgangs
og aflóga á flótta sínum frá styrj-
öldum í heiminum, eins og segir í til-
kynningu. Segir þar að innsetning
Kristínar sé auðmjúk og fínleg en
jafnframt margræð.
Auðmjúk, fínleg og
margræð innsetning
Tónlistarkonan
Kristín Anna held-
ur tónleika í
Mengi í kvöld kl.
21. Á árunum
2015-2017 vann
hún með Kjartani
Sveinssyni að
upptökum á pí-
anólögum sem koma brátt út á plöt-
unni I Must Be The Devil. Í kvöld mun
Kristín Anna m.a. leika lög af henni.
Kristín Anna heldur
tónleika í Mengi
Sigmar Þór Matthíasson bassaleik-
ari leikur frumsamin verk fyrir
kontrabassa og fagott á tón-
leikum í Björtuloftum
Hörpu á morgun kl. 20.
Með honum leikur Snorri
Heimisson fagottleik-
ari. Hljóðfærin tvö fá
að njóta sín bæði í
einleik og meðleik.
Þeir félagar hyggjast
kanna ótroðnar slóðir
dúó-formsins með til-
heyrandi frjálsleika og
fagurheitum. Aðgangur
er ókeypis.
Úr djúpinu í Björtu-
loftum á morgun
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 10-18 m/s með skúrum, en síðar éljum og kólnar smám
saman, fyrst vestan til, en áfram 15-23 m/s og talsverð rigning eystra fram yfir hádegi.
Á sunnudag Austan og suðaustan 8-15 m/s og slydda. Síðar rigning með köflum, heldur
hægara og úrkomuminna á N- og A-landi. Hiti 0 til 7 stig, mildast með suðurströndinni.
Á mánudag Suðaustan 10-15 m/s og dálítil væta sunnan- og vestanlands, en annars
mun hægara og bjartviðri. Hiti 3 til 8 stig.
Norðmenn setja í ár nýtt met í fjölda
leikja á gervigrasi í úrvalsdeild karla í
fótbolta. Tíu af sextán liðum deild-
arinnar leika á gervigrasi á komandi
keppnistímabili en aðeins sex eru
ennþá með náttúrulegt gras á sínum
leikvöngum. Átta af tólf Íslendingum
sem spila í úrvalsdeildum karla og
kvenna í Noregi eru með gervigras á
sínum heimavelli. »4
Norðmenn setja met í
gervigrasleikjum
Ísland vann gríðarlega mik-
ilvægan sigur á Finnum,
81:76, í undankeppni heims-
meistaramóts karla í körfu-
knattleik í Laugardalshöll-
inni í gærkvöld og komst
með því í annað sætið í sín-
um riðli þegar keppnin er
hálfnuð. Martin Hermanns-
son átti stórleik og skoraði
26 stig en Ísland mætir
Tékkum í Höllinni á morg-
un. » 2-3
Sætur sigur gegn
Finnunum
„Við vorum bara tvær bestu vinkonur
að fara út í atvinnumennsku, búið að
dreyma um þetta síðan við vorum 14
ára, en svo var þetta martröð frá
fyrsta degi.“ Þannig lýsa Berglind
Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ás-
grímsdóttir haustmánuðum sínum í
Verona á Ítalíu þar sem þær
reyndu fyrir sér í atvinnu-
mennsku fyrri
hluta
vetr-
ar. »1
Dvölin í Verona reyndist
martröð frá fyrsta degi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Nemendur og kennarar í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti taka ár-
lega þátt í fjölmörgum mismunandi
verkefnum erlendis og næstu vikur
og mánuði fara um 70 nemendur í
námsheimsóknir, nemendaskipta-
ferðir og starfsþjálfun á erlendri
grundu, að sögn Ágústu Unnar
Gunnarsdóttur, kynningarstjóra og
alþjóðafulltrúa FB.
Ágústa fer á þriðjudag með sjö
nemendur í vikuferð til Tiblísi í
Georgíu, 17 nemendur ásamt tveim-
ur kennurum fara til Noregs í byrj-
un mars, 20 nemendur fara til Dan-
merkur síðar í mánuðinum auk þess
sem fimm nemendur fara til Belgíu
og fjórir til Grikklands.
„Skólinn er með vottun (VET
Mobility Charter) frá Rannís, al-
þjóðaskrifstofu Erasmus+ á Íslandi,
sem gerir okkur einfaldara um vik
að sækja um Erasmus+-styrki til
náms og þjálfunar og til þess að
vinna að gæðaverkefnum á list- og
verknámssviði,“ segir Ágústa og
bætir við að styrkirnir borgi ferðir,
gistingu og uppihald. Þannig hafi til
dæmis húsasmíðanemar og raf-
virkjanemar verið sendir til Dan-
merkur og Eistlands, snyrtifræði-
nemar til Portúgals og Finnlands,
sjúkraliðanemar til Spánar og text-
ílnemar til Belgíu og Portúgals.
„Samtals fara um 70 nemendur til
útlanda á vegum skólans á árinu og
síðan tökum við á móti 30 til 40 er-
lendum nemendum,“ segir hún. Mis-
munurinn skýrist af því að ekki sé
um skiptinám að ræða í öllum til-
fellum.
Stuttmynd um frumkvöðla
Ferðin eftir helgi er í frum-
kvöðlabúðir, þar sem íslensku nem-
endurnir vinna frumkvöðlaverkefni
með nemendum frá Þýskalandi,
Eistlandi og Georgíu. Vegna þessa
hafa nemendurnir tekið viðtöl við ís-
lenska frumkvöðla og gert stutt-
mynd um starf þeirra, aðstæður,
styrki og fleira. „Þau kynna verk-
efnið í Tiblísi og útskýra hvernig er
að vera frumkvöðull á Íslandi,“ segir
Ágústa.
Nemendur eru allt upp í þrjá
mánuði í starfsnámi erlendis.
Ágústa segir að þessi alþjóðlegu
samskipti gefi nemendum mikið,
auki víðsýni þeirra og styrki þá á
margan hátt. „Þessar ferðir hafa
verið mjög skemmtilegar og gefandi
og það að kynnast lífi og starfi fólks
á heimavelli þess eflir nemendur á
margan hátt. Þessar ferðir kenna
nemendum líka að vinna erlendis og
standa á eigin fótum, taka ábyrgð á
eigin lífi,“ segir Ágústa.
Frumkvöðlar í sviðsljósinu
Um 70 nemar í
FB í verkefni er-
lendis á næstunni
Hópvinna fyrir Georgíuferð Nemendur tóku viðtöl í Sjávarklasanum. Efri röð frá vinstri: Anton Arciszewski,
Hörður Fannar Þorvaldarson og Gísli Veigar Gíslason. Neðri röð frá vinstri: Tanja Sigmundsdóttir, Sara Sam-
úelsdóttir, Bjarni Hjartarson hönnuður, Júlía Kristín Kristinsdóttir og Þöll Guðmundsdóttir.
Í Aþenu Birta Björk Andradóttir og Birta María Pétursdóttir.