Skírnir - 01.09.2014, Blaðsíða 137
361snorri í odda
8. Prestur.
(Messuskýringar 1952: 108 109; Gunnar F. Guðmundsson
2000: 176 177)
Um goðorðsmanninn Hrafn Sveinbjarnarson, af ætt Seldæla fyrir
vestan, sem var líflátinn árið 1213, segir, „og eigi meir vígður en
krúnuvígslu“ (Hrafns saga Sveinbjarnarsonar 1987: 2). Stórbóndi
einn í Skagafirði, sem var mjög fyrir bændum, hét Kálfur Guttorms -
son og hafði tekið vígslu sem akólýtus eða akólútus. Óvinir sóttu að
honum árið 1234 og segir þá frá honum og syni hans á þessa leið:
„Þeir feðgar voru í litlustofu og höfðu látið skafa krúnur og raka
sér. Var Kálfur akólútus, en Guttormur, sonur hans, djákn“ (Sturl-
unga saga I 1946: 369).
Hugsanlegt er að Snorri Sturluson hafi tekið einhverjar af hinum
lægstu vígslum og þá hefur hann verið krúnurakaður, sem mun
merkja að kollurinn hefur verið rakaður á hvirfli, og líklega hafði
hann ekki skegg. Hann gat hugsanlega verið mest akólútus en því
hefur sennilega ekki endilega fylgt mikill lærdómur nema hvað hann
hlýtur að hafa verið læs. Miðað við þriðja og fjórða vígslustig hefur
hann kunnað eitthvað í latínu, a.m.k. skilið texta sem hann átti að
geta lesið sem lektor. Þetta hefur þá kannski verið eins og hjá
stærðfræðideildarstúdentum í MR fyrir hálfri öld, þeim voru kennd
undirstöðuatriði í latínu og gátu slegið um sig með latneskum
frösum. En þekkingin var takmörkuð, a.m.k. að mati okkar mála-
deildarstúdenta. Og jafnvel kröfur sem gerðar voru til presta á
miðöldum um latínukunnáttu voru ekki miklar, þess krafist að,
„hann viti hvort hann kveður karlmann eða konu“.7
Það fór vissulega vel á því að menn eins og Snorri tækju hin lægri
vígslustig vegna þess að fyrir þeim átti oft að liggja að verða kirkju-
bændur, taka við tíundum, greiða prestum laun og halda við
kirkjum. Snorri varð umboðsmaður Lykla-Péturs sem var verndar -
dýrlingur kirkjunnar í Reykholti og taldist eiga hana, með guði.
Aðalatriði hér er það að Snorra var ekki ætlað að taka vígslu súb -
skírnir
7 Afbrigði, „hann viti hvort hann kveður karlkennt eða kvenkennt“, Messuskýringar
1952: 110; Gunnar F. Guðmundsson 2000: 175.
Skírnir Haust 2014 umbrot.qxp_Layout 1 6.10.2014 13:19 Page 361