Jökull - 01.01.2013, Side 123
Society report
Skíðaganga frá Grenisöldu til Breiðamerkursands, vorið 1986.
Halldór Ólafsson
Suðurbraut 2, 220 Hafnarfjörður, hallo@hi.is
Um árabil stunduðum við nokkrir félagar skíðaferð-
ir um hálendi Íslands okkur til ánægju og yndisauka.
Flestir vorum við félagar í Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík og nutum þess iðulega, t.d. með lægri far-
gjöldum hjá flugfélögunum. Oftast vorum við fimm til
sex saman en í þessa ferð, sem nú greinir frá, komust
aðeins þrír. Það voru þeir Magnús Hallgrímsson verk-
fræðingur sem jafnan var fararstjóri, Leifur Jónsson
læknir og undirritaður, Halldór Ólafsson rennismiður.
Við hófum þessa ferð kl. 10:15 á Reykjavíkurflug-
velli miðvikudaginn 23. apríl og flugum með Flug-
félagsvél til Egilsstaða. Farið fengum við frítt fyrir
utan flugvallaskatt sem var 180 kr. á mann og nut-
um þar Flugbjörgunarsveitarinnar. Lent var á Egils-
staðaflugvelli kl. 11:20 og þar tóku á móti okk-
ur Völundur Jóhannesson ferðamálafrömuður og for-
maður björgunarsveitarinnar á staðnum ásamt félög-
um sínum Kristni Árnasyni og Hrafnkeli Kárasyni.
Kristinn ók okkur suður að Eyrarlandi í Fljótsdal og
þaðan upp virkjunarveginn að vinnubúðum við Gren-
isöldu. Okkur munaði verulega um að komast þetta
langt á bílnum því hæðarmunurinn, neðan frá Fljóts-
dal og upp að Grenisöldu, er um 600 m. Vinnu-
búðirnar voru til komnar vegna rannsókna á fyrirhug-
aðri vatnsaflsvirkjun á svæðinu. Kristinn var á nýjum
jeppa (Daihatsu Rokki) sem dró litla kerru þar sem
skíðum, „pulkum“ og öðrum búnaði var komið fyrir.
(Pulkur eru sleðar eða skeljar úr trefjaplasti, eftirlík-
ingar af sleðum sem Samar nota á vetrarferðum um
hin norðlægu heimkynni sín). Kristinn tók 2500 kr.
fyrir viðvikið og þótti okkur það ekki mikið. Lagt
var af stað kl. 13:45 frá Grenisöldu áleiðis til Lauga-
fells norðaustan Snæfells. Nægur snjór var á heiðum
og raunar sá ekki á dökkan díl hvert sem litið var. Við
gengum fram á tvo unga hreintarfa um 8 km. sunnan
Grenisöldu. Ekki virtist okkur þeir hafa mikið að bíta
greyin. Í Landsvirkjunarkofann við Laugafell komum
við kl. 19:55 og höfðum þá lagt að baki rúma 20 km.
Hægviðri var allan daginn, en mjög lágskýjað og þess
vegna lítið skyggni. Hiti var um frostmark og nokkuð
gott skíða- og sleðafæri. Við fengum okkur endurnær-
ingarbað í lauginni, en ekki gat það kallast þrifabað
því laugin var full af slýi. Gengið var til náða eftir að
hafa smurt nesti til morgundagsins og fengið okkur
kvöldskattinn. Ég var með lítið ferðatæki til að hlusta
á fréttir og veður og spáin á Austurlandi fyrir morg-
undaginn hljóðaði þannig: Suðvestan gola skýjað en
smá skúrir er líður á daginn. Ekki svo slæm spá það.
Eftir góðan nætursvefn rann upp sumardagurinn
fyrsti. Magnús fór árla á stjá sem hans var von og vísa,
eða fyrir kl. 6. Er hann kom inn eftir morgunverkin,
fræddi hann okkur Leif á því að Snæfell væri baðað í
morgunsól og allt væri íðilfagurt yfir að líta, við skyld-
um því drífa okkur á lappir hið snarasta. Þegar við
höfðum nært andann á náttúrufegurð, étið morgun-
verð og lagað te á brúsa, var skálinn þrifinn. Að þessu
loknu var lagt af stað í átt að Eyjabökkum, var þá kl.
8 og farið að draga upp háskýjahulu. Það var samt
feikibjart þó ekki nyti sterkrar sólar, en frost var 6◦
og stafa logn. Er komið var suður á móts við Hafurs-
fell bar að okkur einmana álft sem kvakaði af alkunnri
snild móti sumri og væntanlegum maka. Reyndar var
þetta ekki eini fuglinn sem varð á vegi okkar, því mik-
ið var af snjótittlingum við Laugafellsskála og laug-
ina, en kringum jarðhitann var víða auð jörð. Þeg-
ar við nálguðumst Eyjabakka, komu úr suðri nokkrar
gæsir að leita sér varpstaða, eftir langferð sunnan úr
löndum. Er við vorum komnir á móts við Hálsakofa,
rákumst við á refaslóðir og voru sumar þeirra líklega
frá því um morguninn. Rebbi hefur sjálfsagt hugsað
sér gott til glóðarinnar þar sem fuglar voru þá þeg-
ar teknir að flykkjast til varpstöðvanna. Hiti komst
JÖKULL No. 63, 2013 123