Jökull


Jökull - 01.01.2013, Page 125

Jökull - 01.01.2013, Page 125
Skíðaganga vorið 1986 undir meters háum skjólvegg úr snjókögglum og sváf- um vel þrátt fyrir veðrið. Skíðafærið þennan dag var mjög gott, enda landið rennislétt meiri part leiðarinn- ar. Mikið þótti okkur félögum Snæfell tignarlegt á að líta þarna sunnan að. Við vöknuðum upp úr kl. 8 en dormuðum í pok- unum fram að veðurfréttum kl. 10:10 því veðrið hafði lítið gengið niður. En spáin var hagstæð fyrir þetta svæði, suðvestan kaldi með smáskúrum. Við ákváð- um þess vegna að drífa okkur af stað og halda áfram upp Eyjabakkajökul, stystu leið í Goðheima. Vorum búnir að pakka tjaldi og öðrum farangri á pulkurnar kl. 12:30 og lögðum þá af stað í mjög takmörkuðu skyggni, með suðaustan stinningskalda í fangið. Öðru hvoru rofaði þó til og sást þá að við höfðum tjaldað um 4 km. norðan Hnjúkafells. Er kom fram á daginn óx úrkoma og var ýmist rigning eða slydda og skyggni varð harla lítið. Um kl. 16 sáum við grilla í hamar fram undan, sem við töldum vera nyrsta hluta Goða- hryggs og vorum við þá komnir í 1100 m. hæð. Þessi hamar og kletturinn suður af honum var sennilega Sökkull, sem fékk það nafn þegar sótt var grjót þangað í undirstöður fyrir Goðheimaskálann árið 1979. (Að sögn Péturs Þorleifssonar, sem er allra manna fróðast- ur um örnefni á Íslandi, mun klettur sá sem ég giskaði á að væri Sökkull í dagbókinni, vera nefndur Þrasi). Austur af klettinum var mikil fannbrekka sem náði al- veg upp á hrygginn sunnan Sökkuls, og ákváðum við að fara upp þessa bröttu brekku, því það var sennilega auðveldasta leiðin upp í Goðheima þarna norðan að. Það tók okkur rúma tvo tíma að komast upp á hrygginn og verður það að teljast nokkuð vel af sér vikið, þar sem hver okkar var með um 45 kg. í eft- irdragi og hækkunin var 400 m. Er upp á hrygg- inn kom kólnaði heldur og ísaði allt, einnig gleraugu, og ekki batnaði skyggnið við það. Við fylgdum nú hryggnum til suðausturs og höfðum þann háttinn á, að Magnús gekk eftir hryggnum miðjum, en við Leifur sitthvorumeginn við hann. Há-hryggnum héldum við þannig að við Leifur sáum niður á hvors annars mitti með Magnús á milli okkar, en hann stýrði stefnu með áttavita. Ekki mátti fjarlægðin milli okkar Leifs vera meiri en 25 til 30 m. vegna skyggnisins. Þannig var haldið áfram, skref fyrir skref, með veðrið í fangið og við gleraugnaglámar pírandi yfir ísuð gleraugun. Eftir um klukkutíma pauf í þessu vægast sagt slæma skyggni kallaði Magnús til okkar að hann sæi dökkan díl og hrímaða þúst fram undan. Þessi sýn Magnús- ar hvarf að vísu strax aftur í sortann en stuttu síðar, eða kl. 19:15, nánast rákumst við á dökka hurð Goð- heimaskála, sem var það eina á honum er ekki var þak- ið hrími. Ekki tók langann tíma að moka frá dyrum og koma sér fyrir í vistlegum skálanum. Eftir góð- Goðheimaskáli. – The hut at Goðheimar, E-Vatnajökull. Ljósmynd/Photo: Leifur Jónsson. JÖKULL No. 63, 2013 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.