Breiðfirðingur - 01.04.1986, Page 217
Haraldur Finnsson
Frá starfi Breiðfirðingafélagsins
Aðalfundur 1985
Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins var haldinn 5. febrúar
1985. Fráfarandi formaður félagsins, Eggert Kristmundsson,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hann hefur setið í stjórn
félagsins frá 1979, fyrst sem gjaldkeri en formaður frá 1983.
Voru honum þökkuð góð störf í þágu félagsins.
í stjórn voru kjörin: Haraldur Finnsson formaður, Sveinn
Sigurjónsson varaformaður, Birgir Kristjánsson gjaldkeri,
Gyða Porsteinsdóttir ritari, Finnur Kr. Finnsson, Jónína
Jónsdóttir og Kristinn Steingrímsson. í varastjórn voru
kosin: Sigríður Karvelsdóttir, Forsteinn Garðar Guðmunds-
son og Hörður Einarsson. Endurskoðendur voru kosnir:
Ástvaldur Magnússon og Halldór Guðjónsson, til vara
Jóhannes Ólafsson.
Félagsstarfið 1984-85
Veturinn 1984-85 voru allar samkomur félagsins haldnar í
Domus Medica við Egilsgötu utan að dagur aldraðra var
haldinn í félagsheimili Bústaðarkirkju.
Stjórn félagsins kaus skemmtinefnd sem sá um samkom-
urnar. Hana skipuðu: Anna Albertsdóttir, Guðríður Ingi-
mundardóttir, Svava Kjartansdóttir, Þorsteinn Guðmunds-
son og Þorsteinn Garðar Guðmundsson.
Haldin voru fimm skemmtikvöld með félagsvist og dansi.
Aðsókn var nokkuð misjöfn og oftar dræm.
Árshátíð var haldin 9. mars. Hún var ágætlega sótt, tæp-
lega 200 manns voru á borðhaldinu og margir bættust við á
eftir. Veislustjóri var Kristján Benediktsson og starfsfólk
Laugaskóla í Dölum skemmti með kórsöng og fréttum úr