Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 2
2 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
sem gætu tekið við dómsmálaráðuneytinu
Mikið mæðir á
Sigríði Andersen
dómsmálaráðherra
um þessar mundir og
telja margir að dagar
hennar í embætti
séu taldir vegna
landsréttarmálsins.
DV tók að gamni
saman lista yfir
fimm manns sem
gætu tekið við
embættinu.
Brynjar Níelsson
Þingmaðurinn fúli,
Brynjar Níelsson, er
lögfræðimenntaður
og hefur mikinn áhuga
á að gerast ráðherra
dómsmála. Hann er
óvinsæll, eða vinsæll
eftir hvernig á það er
litið, meðal vinstri-
manna en slíkt hefur
aldrei truflað Sjálf-
stæðismenn, er það
frekar fjöður í hattinn
ef eitthvað er.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna er
ritari og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins.
Stjarna hennar hefur
risið hátt í stjórnmál-
um á undanförnum
misserum og má segja
að það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær hún
verður ráðherra.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Hanna Birna var
vægast sagt umdeildur
ráðherra dómsmála
þegar hún gegndi emb-
ættinu á árunum 2013
til 2014. Langur tími er
liðinn frá lekamálinu
og mikið vatn runnið til
sjávar, kannski yrði það
blautasta tuskan sem
Valhöll gæti hent fram-
an í vinstrimenn að
skipta Sigríði Andersen
út fyrir Hönnu Birnu.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Ef það er einhver sem
getur tekið í lurginn á
dómurum sem kunna
ekki að dæma þá er það
Jón Steinar. Jón Steinar
er innmúraður og vin-
sæll Sjálfstæðismaður
fyrir utan mikla reynslu
á sviði lögfræðinnar. Ef
Jón Steinar afþakkar
boð um að gerast ut-
anþingsráðherra, er þá
hægt að hafa samband
við Robert Downey?
Ásdís Halla
Bragadóttir
Ásdís Halla er hokin af
reynslu úr bæjarstjórn
og í stjórnunarstörfum.
Hún vakti mikla athygli
fyrir bókina Tvísaga
sem kom út 2016.
Ásdís Halla veit
hvernig heimurinn
virkar og hvað þarf
að gera til að ná
árangri. Hún kann
einnig að launa
greiða og halda
fólki góðu.
Þ
að er til skammar að lög-
reglan þaggi niður mál sem
koma inn á hennar borð.
Ég varð fyrir alvarlegri árás
og hélt að það færi eðlilega leið í
dómskerfinu. Ég bið aðeins um
réttlæti,“ segir Lára Ólafsdótt-
ir, stundum nefnd Lára sjáandi, í
samtali við DV. Að sögn Láru varð
hún fyrir alvarlegri árás í júní í
fyrra við bæinn Langholt 1 í Árnes-
sýslu. Að hennar sögn kom Ragn-
ar Valur Björgvinsson, ábúandi að
Langholti 2, og sturtaði yfir hana
þungu hlassi af sandi úr hjólagröfu
og mátti engu muna að skóflan
hæfði Láru í höfuðið. Þá hefði
ekki þurft að spyrja að leikslokum.
Lára meiddist illa á hné í árásinni
og lagði þegar fram kæru til lög-
reglunnar á Hvolsvelli. Í rúma sjö
mánuði hefur lögregla ekkert að-
hafst í málinu og svarar ekki ítrek-
uðum beiðnum lögmanns Láru,
Einars Gauts Steingrímssonar, um
að verða skipaður réttargæslumað-
ur. Segir Einar Gautur að hann hafi
aldrei kynnst annarri eins ósvífni í
samskiptum sínum við lögregluna.
„Þetta var stórhættuleg árás“
DV hefur fjallað um illvígar ná-
grannaerjur sem hafa geisað á milli
Hreggviðs Hermannssonar og ná-
granna hans, Ragnars Vals og Fríð-
ar Sólveigar Hannesdóttur.
Segja má að Lára hafi orðið sak-
laust fórnarlamb átakanna. „Mað-
urinn minn er að keyra fyrir Vega-
gerðina og það þurfti að koma möl
til Hreggviðs. Við vorum á leið í
veislu í grennd við býli Hreggviðs
og ákváðum því að nýta ferðina og
keyra mölina til hans,“ segir Lára.
Á meðan verið var að sturta
hlassinu úr bílnum fór Lára út úr
bílnum og beið. Varð hún vör við
rifrildi Hreggviðs og Ragnars Vals
sem endaði með því, að henn-
ar sögn, að Ragnar vatt sér upp í
hjólagröfu og kom æðandi að henni
og Hreggviði. Hann sturtaði síðan
þungu sandhlassi úr gröfunni yfir
þau bæði. Hreggviður náði að víkja
sér undan en Lára lenti undir því að
hluta. „Skóflan var í höfuðhæð og
þetta var stórhættuleg árás að mínu
mati. Þetta gerðist mjög snögglega
og því hafði ég ekki ráðrúm til þess
að koma mér undan,“ segir Lára.
Hún meiddist illa á hné í
árásinni, sem hún kærði tafarlaust
til lögreglu. Sjö mánuðum síð-
ar hefur hún ekki enn náð fullum
bata. „Ég fékk slæmt högg á hnéð
og hef ekki enn náð mér góðri. Það
safnaðist fyrir vökvi í hnénu og
það hefur verið hvimleitt að glíma
við það,“ segir Lára, sem aflaði sér
strax áverkavottorðs frá lækni auk
þess að kæra. Hið einkennilega
er að síðan hefur lögreglan ekkert
aðhafst í málinu. „Þeir hafa ekk-
ert gert, ekki tekið skýrslur af sjón-
arvottum og virt óskir lögfræðings
míns að vettugi,“ segir Lára.
Efast um heilindi
Þetta staðfestir lögfræðingur henn-
ar, Einar Gautur Steingrímsson.
„Þetta er mjög alvarleg árás með
vélknúnu ökutæki sem maður hefði
ætlað að lögreglan myndi setja í
forgang,“ segir Einar Gautur. Hann
óskaði eftir því að fá send öll gögn
málsins sem og að verða skipaður
réttargæslumaður Láru en hefur að-
eins fengið fyrstu skýrslur afhentar.
Í júlí í fyrra sendi Einar Gautur
athugasemdir til Ríkissaksóknara
vegna rannsóknar málsins og bar
við meint vanhæfi. Ástæðan er sú
að stjúpdóttir Ragnars Vals, hins
meinta árásarmanns, starfar sem
einn af þremur löglærðum fulltrú-
um hjá ákærusviði lögreglustjórans
á Suðurlandi. „Það var ekki fallist á
þá skoðun mína að embættið skorti
hæfi til þess að fara með rannsókn
málsins. Þó að einstakur starfs-
maður væri vanhæfur þá gilti það
ekki um lögreglustjórann sjálfan.
Ég er ósammála þessari skoðun,
þetta er lítill vinnustaður þar sem
nálægðin er mikil og því auðséð
að það er afar óþægilegt fyrir lög-
reglustjórann að rannsaka meinta
líkamsárás stjúpföður starfsmanns
á ákærusviði,“ segir Einar Gautur.
Hann hefur því áfram þurft að
hafa samstarf við skrifstofu lög-
reglustjórans á Suðurlandi og segir
farir sínar ekki sléttar. „Ég fæ engin
svör frá embættinu við mínum fyr-
irspurnum og núna eru liðnir um
sjö mánuðir. Á meðan mér er ekki
svarað þá get ég ekki annað en ef-
ast um heilindi þeirra sem að mál-
inu koma. Ég hef aldrei kynnst
annarri eins ósvífni í samskiptum
við lögregluna,“ segir Einar Gautur.
Í stuttu svari frá Grími Her-
geirssyni, yfirlögfræðingi hjá Lög-
reglustjóranum á Suðurlandi,
við fyrirspurn DV kemur fram að
rannsókn málsins sé lokið og að
það hafi verið sent til ákærusviðs.
Viðbrögð Einars Gauts eru þau að
afgreiðsla málsins geti ekki talist
eðlileg enda hefur ekki verið tek-
in skýrsla af sjónarvottum né önn-
ur eðlileg skref í lögreglurannsókn.
„Ef rannsókn lýkur með þessum
hætti þá verður málið sent til ríkis-
saksóknara. Þá mun ég fá öll gögn í
hendur,“ segir Einar Gautur. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Einar Gautur Steingrímsson Lög-
fræðingur Láru segist aldrei hafa upplifað
aðra eins ósvífni frá lögreglu.
Lára Ólafsdóttir Að sögn Láru varð hún fyrir alvarlegri árás um mitt síðasta sumar. Hún kærði málið til lögreglu þá þegar en lög-
regluembættið á Suðurlandi hefur ekkert aðhafst í málinu í rúma sjö mánuði.
n Lára varð fyrir hættulegri árás n Lögregla hefur ekkert aðhafst í kæru hennar
LÁrA SJÁANdi –
GrAfiN LifANdi