Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 6
6 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
F
yrir rúmlega tveimur árum
var Stefanía Óskarsdótt-
ir nær dauða en lífi eftir
langvarandi sprautuneyslu.
Hún varð vitni að hroðalegum
hlutum innan fíkniefnaheims-
ins og var búin að sætta sig við að
örlög hennar yrðu þau að lúta í
lægra haldi fyrir dópinu. Henni var
komið til bjargar í tæka tíð en ekki
eru allir svo heppnir. Hún gagn-
rýnir skort á fjármagni til með-
ferðarstofnana og furðar sig jafn-
framt á þeim leiðum sem gripið
hefur verið til í því skyni að sporna
við fíkniefnavandanum.
Átti sama séns og allir aðrir
Stefanía er fædd og uppalin í litlu
samfélagi á Fáskrúðsfirði og fátt
benti til þess að hún ætti eftir að
leiðast út í óreglu síðar meir. Hún
ólst upp við mikla reglusemi þó
svo að alkóhólismi væri í „genun-
um“ eins og hún orðar það.
„Ég á svokallaða fullkomna fjöl-
skyldu. Pabbi minn er vaktstjóri hjá
lögreglunni. Foreldrar mínir eru of-
boðslega gott fólk og ég átti alveg jafn
mikinn séns og allir aðrir. En ég var
í rosalega miklum mótþróa. Ég var
líka mjög kvíðið barn án þess að vita
af því. Ofan á það var ég með mikinn
athyglisbrest og ofvirkni og fékk ekki
greiningu á því fyrr en ég var orðin 18
ára. Mér leið alltaf verr og verr og það
var alltaf eitthvað að og mér fannst
ég ekki passa inn neins staðar.“
Hún var 15 ára þegar hún próf-
aði eiturlyf í fyrsta skipti. „Og þá
upplifði ég þetta sem að svo margir
fíklar tala um, ég náði loksins að
fylla upp í þetta tómarúm. Þarna
tókst mér að hemla athyglisbrest-
inn og ofvirknina, ég fékk loksins
frið í hausinn. Þetta var góður stað-
ur. Ég ætlaði bara að vera þarna.“
Ekki löngu seinna flutti Stefanía
suður til Reykjavíkur og leiðin lá að-
eins niður á við. Hún byrjaði fljót-
lega í dagneyslu á örvandi efnum.
Og þá neyslu þurfti að fjármagna
með einum eða öðrum hætti.
„Ég gerði það með því að selja
efni, það var mikið um klúbbak-
völd á þessum tíma sem ég nýtti
mér. Helgarnar byrjuðu á fimmtu-
degi og enduðu á þriðjudegi eða
miðvikudegi, þá svaf ég og byrjaði
svo aftur. Mér tókst mjög vel að fela
neysluna fyrir til dæmis foreldr-
um mínum þó svo að þau grun-
aði alltaf eitthvað. Ég þekkti ekkert
nein meðferðarkerfi og vissi í raun
ekkert hvað alkóhólismi væri.“
Endaði á götunni
Það urðu kaflaskil í lífi Stefaníu
árið 2010 þegar í ljós kom að hún
var barnshafandi. Hún sneri til
baka í gamla heimabæinn ásamt
kærastanum og fór edrú í gegnum
meðgönguna „á hnefanum.“
„Ég var í rosalega mikilli afneitun
og fannst ég ekki þurfa neina hjálp,
ég gæti alveg hætt sjálf. Staðreyndin
var þó sú að mér leið bara rosalega
illa allan tímann og skildi samt ekk-
ert af hverju af því að ég vissi ekk-
ert um alkóhólisma. Ég var stút-
full af kvíða og hélt að ég væri bara
eitthvað geðveik. Ég skildi ekki af
hverju mér leið ekki vel.“
18 mánuðum eftir fæðingu
elsta barnsins kom síðan annað
barn hennar í heiminn. Í lok árs
2014 fluttu Stefanía og barnsfað-
ir hennar aftur suður en ekki leið
á löngu þar til það slitnaði upp úr
sambandinu.
„Á þessum tíma bjuggum við
hjá foreldrum hans. Ég flutti út og
kom mér fyrir á hótelherbergi úti
í bæ og ætlaði að vera þar á með-
an ég væri að finna eitthvað ann-
að. Ég datt mjög fljótt í það, byrj-
aði á því að fara út um helgar og
svo vatt þetta mjög hratt upp á sig.
Það fór allt niður á við. Við vor-
um með börnin viku og viku og ég
bað barnsföður minn um að taka
börnin alveg á meðan ég væri að
ná mér á strik. En svo náði ég mér
aldrei á strik. Í júní 2015 var ég
komin á götuna.“
Í kjölfarið tók við eitt harðasta
form fíkninnar. Langt leiddir fíkl-
ar mynda ósjaldan þol fyrir dópinu
og leita þá í sterkari efni. Stefanía á
óljósa minningu um að hafa verið
stödd einhvers staðar í svokölluðu
„blackouti“ þegar hún fékk sprautu-
nál í höndina í fyrsta skipti. „Þetta
var seinasta sort. Ég hafði alltaf fyr-
irlitið sprautufíkla. Ég sagði alltaf að
ég ætlaði sko aldrei að sprauta mig.
En það virkaði ekkert á mig lengur.
Stefanía var tveggja barna móðir og sprautufíkill á götunni
„Ég hef horft upp
á ógeðslega hluti“
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
n Sökk djúpt í heim fíkninnar n „Það er í rauninni bara kraftaverk að ég sé á lífi í dag“„Þarna tókst
mér að hemla
athyglisbrestinn og
ofvirknina, ég fékk loksins
frið í hausinn. Þetta var
góður staður. Ég ætlaði
bara að vera þarna.
Bjó á götunni Stefanía hefur horft upp á
hrottalega hluti í undirheimunum og í eitt
skipti var henni haldið í gíslingu klukkutímum
saman vegna fíkniefnaskuldar félaga hennar.
m
y
n
d
Jó
n
ín
A
G
. ó
sk
A
r
sd
ó
t
ti
r