Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 14
14 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
svo allt gangi smurt
l Öryggisvörur
l Efnavörur
l olíuvörur
K
atrín Dröfn Bridde and-
aðist þann 24. janúar síð-
astliðinn. Útför hennar fer
fram í dag (föstudag) frá
Bústaðakirkju. Katrín eignaðist
fjögur börn og eiga þau um sárt
að binda og þurfa á stuðningi að
halda. Katrín hafði átt við áfeng-
is- og fíkniefnavanda að stríða en
hafði haft betur í baráttunni við
Bakkus í dágóðan tíma þar til hún
féll á síðasta ári. Sambýlismaður
Katrínar, Kristján Markús Sívars-
son, afplánar nú dóm svo börnin
fjögur eru án foreldra sinna.
Friðrik Bridde, fyrrverandi
skrifstofustjóri ráðhússins og fyrr-
verandi bílstjóri borgarráðs og fað-
ir Katrínar, stofnaði sjóð til styrktar
börnunum fjórum og verða þeir
peningar lagðir inn á fjórar banka-
bækur á nafni hvers barns og lok-
að til 18 ára aldurs. Ljóst er að það
munar um hverja krónu og þurfa
börnin sárlega á stuðningi að
halda. Þá er vert að taka fram að
DV birtir umfjöllun um Katrínu í
samráði við fjölskyldu hennar.
Katrín átti eins og áður segir í
baráttu við áfengi og fíkniefni og
hafði oft betur. Þann 24. janúar átti
sér stað mikill harmleikur á heim-
ili hennar og tóku fíkniefnin enn
eina ungu manneskjuna. Þá var
greint frá því í fjölmiðlum að leit-
að var að sambýlismanni Katrínar
sem var grunaður um að koma ekki
manneskju í neyð til aðstoðar. Þrátt
fyrir erfiða baráttu við fíkn reyndi
Katrín, að sögn vina og fjölskyldu,
að vera góð móðir og til staðar fyr-
ir krakkana fjóra. Elsti drengur-
inn hefur tekist á við ódæmigerða
einhverfu og yngsta dóttir hennar
fæddist með hjartagalla.
Katrín var vinamörg og ótal
margir sem minnast hennar á
samskiptamiðlum með fallegum
orðum. Á Facebook hafa tugir vina
skrifað hjartnæmar minningar-
greinar. Vinirnir segja Katrínu hafa
verið með hjarta úr gulli. Hún hafi
ekki farið í manngreiningarálit,
verið sterk og góð móðir, trygg og
alltaf til staðar fyrir vini sína.
„Tárin leka, lífið er stundum
svo ósanngjarnt,“ segir Kolbrún
Jónsdóttir, einkaþjálfari og vin-
ur Katrínar til margra ára. Ester
Ósk segir: „Elsku Kata mín, ég sit
hér orðlaus og dofin eftir þessar
hræðilegu fréttir sem ég fékk í nótt,
er ekki að trúa þessu, elsku stelpan
mín [...] Elsku gull, Guð blessi og
vaki yfir fjölskyldu þinni og elsku
börnunum á þessum hræðilega
erfiða tíma. Hvíldu í friði, hjarta-
gull“
Kristín segir: „Kata var með
hjarta úr gulli, góð stelpa, sem
reyndi margt í lífinu. Alltaf sterk og
góð móðir, heimilið fallegt, hreint
og fínt. Hvíl í friði, Kata mín.“ Þá
segir Elín: „Þær eru margar stund-
irnar sem koma upp í hugann þar
sem hún sýndi hversu sönn og
falleg manneskja hún var. Hug-
ur minn er hjá börnunum og fjöl-
skyldunni. Megi allar góðar vættir
veita ykkur styrk í sorginni.“ Heiða,
vinkona Katrínar, skrifar: „Elsku
Kata mín. Þú áttir alltaf stóran stað
í hjarta mínu enn á mínum verstu
tímum varst þú til staðar og þú
fórst sko ekki í manngreinarálit.
Er búin að vera að hugsa til baka
með tárin í augunum og það sem
stendur upp úr er hvað þú varst
trygg.“
Elsa: „Takk kærlega fyrir allt.
Þú sterka Kata ert farin til móð-
ur þinnar sem þú saknaðir svo
sárt. Sonur minn þakkar fyrir allt
sem þú gerðir fyrir hann. Minn-
ing þín lifir sterkt og reynum við
eins og hægt að að vera til staðar
og sýna englum þínum styrk og
ást.“ Halldóra: „Þú varst svo mikil
mamma krakkanna þinna og sett-
ir þau alltaf í forgang.“ Eyjólfur:
„Hugur minn er hjá fallegu börn-
unum þínum sem ég veit að þú
gerðir allt fyrir og verndaðir. Nú
þegar verndarengillinn er farinn
þá hugsa ég til barnanna og tím-
ann sem fram undan er hjá þeim.“
Þeir sem vilja styðja
börnin á þessum erfiðu tímum
geta lagt inn á reikning:
111-05-010112
Kennitala: 310851-2999
n Fjögur börn móðurlaus n Góð móðir þrátt fyrir erfiða baráttu við fíkn
Börn í sárum þurfa
á stuðningi að halda
Margir minnast Katrínar:
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is „Hvíldu í friði,
hjartagull