Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 16
16 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
A
llt að fimmtíu kettir hafa
verið drepnir með eitri
eða eru horfnir á Suður-
landi, á svæði sem nær
frá Sandgerði til Selfoss. Viðmæl-
endur DV telja að í Hveragerði búi
einstaklingur eða einstaklingar
sem stundi það að láta ketti hverfa
og eitra fyrir þeim með frostlegi.
Eigandi kattar sem hvarf síðasta
haust hefur skoðað dularfull katt-
arhvörf á svæðinu. Lögreglan á
Suðurlandi er nú að rannsaka þrjú
kattadrápsmál, en síðast var eitr-
að fyrir ketti á Selfossi um jólin.
Bæjarstjórinn í Hveragerði segir
að mál á borð við þessi séu ekki al-
gengari þar en annars staðar. Upp-
lýsingar frá MAST benda þó til að
ekki sé allt með felldu.
Eins og jörðin hafi gleypt hann
Bergljót Davíðsdóttir hefur búið
í Hveragerði í 11 ár. Í septem-
ber í fyrra hvarf kötturinn henn-
ar, Blakki, og hefur hann ekki sést
síðan. Blakki er fjórði köttur Berg-
ljótar sem hverfur á síðustu fjórum
árum. „Kettirnir mínir fara alltaf út
um gluggann í stofunni og koma
alltaf heim á kvöldin. Um miðjan
september í fyrra varð ég þess vör
að Blakki var ekki kominn inn og
ég hafði ekki séð hann frá morgni.
Mér varð þá ljóst að eitthvað væri
að. Vakti og kallaði á hann til
þrjú um nóttina, en gafst þá upp.
Hann var geltur og örmerktur en
ekki með ól þar sem honum tókst
alltaf að nudda henni af sér. En
ég hef leitað hans, spurst fyrir og
fylgst með síðan, en það er eins
og jörðin hafi gleypt hann. Rétt
eins og hinar kisurnar mínar sem
hreinlega hurfu og ekkert til þeirra
spurst síðan,“ segir Bergljót. Allt
frá því kattadrápin hófust sumar-
ið 2015 hefur Bergljót, sem er mik-
ill dýravinur og ræktaði hunda í tíu
ár, fylgst með og látið að sér kveða
þegar kettir hverfa eða drepast.
„Það hafa tveir aðrir kettir horfið
héðan úr götunni og grunur leikur
á að fleiri hafi gufað upp. Í sumum
tilfellum hefur verið ekið yfir ketti
og í einhverjum tilfellum hafa þeir
fundist dauðir utan vegar.“
„Í mínum huga er það ljóst að
hér er ekki um tilviljun að ræða.
Það segir sig sjálft að það gengur
enginn um bæinn og skilur eftir sig
eitraðan fisk. Það er markvisst ver-
ið að fækka köttum af einhverjum
sem ég held að gangi ekki heill til
skógar. Hann, hún eða þeir, virðast
hafa skipt um aðferð eftir að fjöl-
miðlar fóru að fjalla um þessi mál.
Enginn féll fyrir eitri hér í Hvera-
gerði síðasta sumar, heldur hurfu
því fleiri kettir. Mitt mat er að níð-
ingurinn hafi aðeins skipt um að-
ferð.“ Umleitanir Bergljótar hófust
skömmu eftir að Blakkur hvarf, þá
komst hún í samband við ungan
pilt í gegnum íbúahóp á Facebook
sem sagði henni að tvo sundur-
skorna ketti mætti finna við bæinn
Friðarstaði rétt fyrir ofan Hvera-
gerði, þar mætti einnig finna katt-
Á hælum katta-
morðingjans
n Allt að 50 kettir drepnir eða horfnir á þremur árum n Lögregla með þrjú mál til rannsóknar
Kettirnir sem
hurfu 2017
n Bella – Hvarf 9. júní
n Blakki – Hvarf 15. september
n Jonni – Hvarf 8. október
n Herkúles – Hvarf 13. október
n Emil – Hvarf 15. október
n Hvarf 27. október
n Hvarf 24. nóvember
n Hvarf 2. desember
„Það er mjög líklegt að sami aðili eða sömu aðil-
ar séu á bak við þetta,“ segir Helgi Gunnlaugsson,
afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við
Háskóla Íslands. Helgi segir miklar líkur á að við-
komandi búi í Hveragerði og hugsanlega telji ketti
vera meindýr sem þurfi að útrýma. „En að ganga
svona langt með að deyða þá er atriði sem maður
setur spurningarmerki við. Það er eitt að telja ketti
ekki vera velkomna í okkar umhverfi, en það er
annað að grípa til aðgerða af þessu tagi. Það vitn-
ar um einhverja ... bresti.“
Helgi segir að svona mál og umræða geti vak-
ið óhug hjá kattareigendum sem telji líklegt að
einhver hafi fargað kettinum þegar hann skil-
ar sér ekki heim. „Fólk er á tánum, þetta spyrst
út í bænum og hefur farið í fréttir. Þannig að við
hvert kattarhvarf fer fólk að gruna að þar sé maðk-
ur í mysunni.“ Telur Helgi að í svona málum geti
hæglega orðið stemning líkt og í Lúkasarmálinu
árið 2007. „Þá voru menn strax búnir að ákveða
að hann hefði verið drepinn og tiltekinn einstak-
lingur tengdur við það. Svo dúkkaði hundurinn
upp eins og ekkert hefði í skorist. Slíkt gæti átt sér
stað í þessu máli, en við vitum samt að það hafa
kettir verið drepir í Hveragerði og það er eitthvað í
gangi, en við vitum ekki hversu stórt málið er.“
LíKLegt að sami aðiLi
eða aðiLar séu að verKi
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is „Það er
markvisst
verið að fækka
köttum af
einhverjum sem ég
held að gangi ekki
heill til skógar
í hveragerði
Blakki Blakki hvarf í september 2017.
Bergljót er nú með tvo ketti, kettling sem
fer ekki út úr húsi og Blökku, systur Blakka,
sem Bergljót segir vera mannafælu.
Bergljót Davíðsdóttir Bergljót
hefur búið í Hveragerði í 11 ár, hún er mikill
dýravinur og hefur átt fjóra ketti á fjórum
árum sem hafa horfið. MynD Sigtryggur Ari