Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 22
22 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
Ó
hætt er að segja að Sveinn
Gestur Tryggvason, sem
situr af sér dóm vegna and-
láts Arnars Jónssonar Asp-
ar, vandi Halldóri Vali Pálssyni, for-
stöðumanni á Litla-Hrauni, ekki
kveðjurnar á Facebook-síðu sinni.
Sveinn Gestur má ekki vera á netinu
en virðist hafa komist í 4G-sam-
band á Hólmsheiði þangað sem
Halldór flutti Svein Gest nýverið.
Sveinn Gestur segir forstöðumann-
inn „tuskumenni“ og „heigul“.
Lögðu niður störf
Sveinn Gestur er sagður vera einn
þeirra sem hafa mótmælt refsiað-
gerðum Halldórs Vals einna há-
værast. Fangar fóru nýverið í verk-
fall, lögðu niður störf og hættu að
mæta til náms, þar sem Halldór
lokaði íþróttasalnum og takmark-
aði heimsóknir barna. Það gerði
Halldór vegna árásar þriggja fanga
á 18 ára hælisleitanda. Er nú öllum
föngum refsað fyrir ofbeldi hinna.
Heimildir DV innan fangelsis-
ins herma að sá atburður hafi ver-
ið skrumskældur í fjölmiðlum.
Pilturinn hafi verið laminn, ekki
vegna þjóðernis hans heldur frem-
ur vegna dólgsháttar hans við aðra
fanga. Enn fremur hafi verið talað
líkt og hálft fangelsið hafi átt þátt í
árásinni meðan hið sanna sé að þrír
menn hafi ráðist á piltinn. Föngum
þyki því stórkostlega ósanngjarnt
að öllum sé refsað fyrir þennan at-
burð sem örfáir fangar áttu þátt í.
Vildu ekki setja sig upp á móti
Þeir sem hafa mótmælt þessu
einna harðast eru Sveinn Gestur
og Börkur Birgisson en hvorug-
ur þeirra átti þátt í árásinni. Þeir
eru sagðir hafa verið nokkurs kon-
ar verkalýðsleiðtogar á Hraun-
inu en hafi í kjölfarið verið flutt-
ir á Hólmsheiði. Í Fréttablaðinu
sagði að fangar þyrðu ekki öðru
en að taka þátt í aðgerðum Barkar
og Sveins Gests, þrátt fyrir að vilja
mæta til vinnu eða í skóla. Væru
fangar hræddir við að setja sig upp
á móti Sveini og Berki sem eru
dæmdir fyrir alvarleg ofbeldisbrot.
„Tuskumenni og heigull“
Líkt og fyrr segir hjólar Sveinn
Gestur í Halldór Val á Facebook og
birtir af honum mynd.
„Þetta er smámennið hann
Halldór Valur Pálsson. Halldóri
finnst eðlilegt að refsa heilu fang-
elsi fyrir slæma hegðun þriggja
fanga. Halldór er tuskumenni og
heigull. Halldór er búinn að láta
flytja mig tvisvar sinnum á inn-
an við viku. Fyrst tvístraði hann
ganginum mínum og sendi mig og
nokkra vini mína alla á sitthvorn
ganginn. Síðan í dag sendi hann
mig og einn þessara vina minna á
Hólmsheiði. Það hefur enginn get-
að gefið okkur nokkra útskýringu á
þessum tilefnislausu flutningum,
en það er samt ágætt að vera kom-
inn hingað þar sem er svo gott 4g
samband og auðvelt að komast í
tölvu. Ef þið sjáið Halldór einhver-
staðar, skilið þá kærri kveðju frá
mér og þakkið honum fyrir flutn-
inginn,“ skrifar Sveinn Gestur en
vinurinn sem hann vísar til er
Börkur Birgisson.
Baldur og Trausti höfðu sig
mest í frammi
DV fjallaði um líkamsárásina gegn
hælisleitandanum unga í síðustu
viku. Fórnarlambið, Marokkói,
var í haldi vegna ítrekaðra tilrauna
til að komast úr landi með því að
smygla sér um borð í flutninga-
skip. Hann var að spila körfubolta
í íþróttahúsi fangelsisins þegar
árásin átti sér stað.
Heimildir DV herma að tveir
fangar hafi haft sig mest í frammi,
Baldur Kolbeinsson og Trausti
Rafn Hendriksson. Samkvæmt
heimildum DV hafði ungi hælisleit-
andinn átt í deilum við hóp fanga
um nokkurt skeið. Gengu hótanir á
víxl þar til upp úr sauð með hinum
framangreinda voveiflega hætti.
Baldur hefur meira og minna
setið í fangelsi frá sautján ára
aldri. Hann hefur ítrekað ratað í
fréttirnar fyrir átök við samfanga
sína í gegnum árin. Hann hlaut 18
mánaða fangelsisdóm árið 2014
fyrir tvær líkamsárásir sem framd-
ar voru með nokkurra mánaða
millibili á útivistarsvæðinu á Litla-
Hrauni. n
Sveinn Gestur og Börkur í verkalýðsbaráttu á Litla-Hrauni
„Halldór er tusku-
menni og heigull“
Sveinn Gestur Tryggvason laumast á netið og hraunar yfir forstöðumann Litla-Hrauns
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Uppreisnir á Hrauninu
Neituðu að versla í sjoppunni
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem greint er frá uppreisn fanga á Litla-Hrauni. Árið 2011 var
greint frá því að ólga ríkti á Hrauninu vegna hás vöruverðs í sjoppunni í fangelsinu.
Sögðu fangar, sem fengu vikulega matarpeninga, að vöruverð þar væri 20 prósentum
hærra á Litla-Hrauni en á Kvíabryggju og öðrum fangelsum landsins. Hótaði Margrét
Frímannsdóttir, þáverandi forstöðumaður Litla-Hrauns, að loka sjoppunni vegna
mótmælanna.
Ósáttir við skyndileit
Árið 1993 fjallaði Tíminn um uppreisn fanga á Litla-Hrauni í kjölfar skyndileitar. Farið
var í leitina vegna gruns um að einhver hluti fanga væri undir áhrifum lyfja sem ekki
væru útgefin af fangelsislækni. Í kjölfar leitarinnar hófst eins konar uppreisn sem 40
fangar af 52 tóku þátt í. Óróleikinn ríkti í rúman sólarhring og voru alls átta fangar fjar-
lægðir úr fangelsinu. Lögregla úr Reykjavík og frá Selfossi var í viðbragðsstöðu vegna
málsins. Taka skal fram að á þessum tíma dvöldu allir fangarnir í sama rými og skipti
þá engu þótt þeir ættu ólíkan afbrotaferil að baki.
Börkur Birgisson
Verkalýðsleiðtogi? „Halldóri finnst eðlilegt að refsa heilu fangelsi fyrir slæma hegð-
un þriggja fanga. Halldór er tuskumenni og heigull,“ skrifar Sveinn Gestur.