Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 35
FermingarHelgarblað 2. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Grillað á staðnum og
enginn þarf að vaska upp
GrillvaGninn í ferminGarveisluna
Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grill-aður kjúklingur. með þessu eru
gjarnan ostagratín-kartöflur, salat
með fetaosti, bernaise-sósa og rauð-
vínssósa,“ segir svanur Hafsteins-
son, eigandi Grillvagnsins, sem hefur
boðið upp á veisluþjónustu síðan árið
1990. „allur undirbúningur fer fram í
stóreldhúsi okkar í mosfellsbæ, ekið
er á veislustaðinn og klárað að elda
í bílunum sem búnir eru fullkomnu
eldhúsi.“ starfsemin hófst með einum
grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir
að ráða sjö misstórum grillbílum og
tveimur grillvögnum, og veitir ekki af.
„Þegar mest er að gera í ferm-
ingunum náum við að taka 10–12
veislur á dag með þessum flota enda
eru veislurnar ekki allar á sama tíma
sem betur fer,“ segir svanur. Hann
segir marga eiga erfitt með að trúa
því að Grillvagninn bruni í hlað um
hávetur og menn taki til við að grilla
lamb úti í kuldanum en þetta er í boði
í öllum veðrum.
„síðan förum við inn í hús og setj-
um upp borð þar sem við afgreiðum
matinn en við komum alltaf með
kokka í veisluna. Það setur skemmti-
legan brag á veisluna og fólk hefur
líka gaman af að sjá grillbílinn fyrir
utan og okkur að störfum þar,“ segir
svanur.
Úrvalið er fjölbreytt en áherslan
er á kjötrétti. „í seinni tíð eru ham-
borgaraveislur orðnar mjög vinsælar í
fermingum. Það er líka í boði að bæta
við kjúklingalundum á spjóti og sumir
vilja líka grillaðar pylsur með.“
Grillvagninn kappkostar að hafa
eingöngu úrvalshráefni í hamborg-
urunum og öllum öðrum mat. „maður
lærði það fljótt í þessum bransa að
það margborgar sig að hafa topp-
hráefni.“
Lamb og purusteik fyrir austan fjall
„sum fermingarbörn kjósa að hafa
nautalundir í veislunni sinni og það
er auðvitað rosalega flott þó að það
kosti sitt. Þá eru bakaðar kartöflur,
bernaisesósa og piparsósa. eldra
fólkið, þeir sem komnir eru yfir sjötugt,
vilja hins vegar oftar en ekki bara
lamb.“
Grillvagninn þjónustar landsbyggð-
ina líka og segir svanur að matar-
smekkur sé dálítið breytilegur eftir
landsvæðum. „ef við keyrum austur
fyrir fjall er það yfirleitt alltaf lamb
eða purusteik. Það er alveg magn-
að hvernig þetta breytist um leið og
maður er kominn yfir Ölfusbrúna, þar
er fólk lítið í fuglakjötinu.“
Grillvagninn býður líka upp á kalkún
og margir velja saman lambalæri og
kalkúnabringur í veisluna sína.
„við komum með alla diska og
hnífapör rúlluð inn í hvíta servíettu og
tökum allt óhreint með okkur. Það er
því ekkert uppvask eftir veisluna og
mörgum þykir afskaplega þægilegt
að losna við það,“ segir svanur.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni grillvagninn.is. Tekið er á móti
fyrirspurnum og pöntunum í síma
898 3189 og á netfanginu grillvagn-
inn@grillvagninn.is.