Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 36
Fermingar Helgarblað 2. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Ljósmyndakassar í veisl-um eru bráðskemmtileg nýjung sem hefur verið að
breiðast út hér á landi undan-
farin misseri. Veislugestir taka
af sér skemmtilegar myndir og
geta notað ýmsa leikmuni til
að skreyta myndina. Fólk getur
fengið myndina sína til sín
rafrænt um leið og búið er að
taka hana.
Myndakassarnir höfða til
fólks á öllum aldri, lítilla barna
jafnt sem eldri borgara.
Elías Birkir Bjarnason
rekur fyrirtækið Instamyndir
sem sérhæfir sig í útleigu á
myndakössum. Hann hefur
verið með þessa starfsemi
frá árinu 2015 við stigvax-
andi vinsældir. „Þetta er í
rauninni bara „photobooth“,
ljósmyndaklefi þar sem boðið er upp
á ýmsa möguleika við að taka myndir.
Það eru alvöru myndavélar og linsur
í þessu, mikil gæði. Það geta fylgt
leikmunir fyrir myndatökurnar en
aðrir kjósa að nota sína eigin muni,“
segir Elías.
Hægt er að senda sér myndirnar
í sms og tölvupósti og oftar en ekki
eru myndirnar komnar á netið, t.d. á
Facebook-síðu við-
komandi, skömmu eftir
myndatökuna.
„Þetta höfðar til fólks á
öllum aldri. Krakkar hafa mjög
gaman af þessu og við höfum
líka farið með svona myndaklefa í
áttræðisafmæli á elliheimili þar sem
þeir hafa vakið mikla lukku. Þannig að
þetta er fyrir alla,“ segir Elías. Hann
segir jafnframt
að mynda-
klefarnir henti
afskaplega vel í
fermingarveislur og
mörgum finnist gott
að geta náð myndum af
öllum gestunum í sparifötunum.
Instamyndir setja upp myndaklef-
ann á staðnum og taka hann síðan
niður að veislu lokinni. Afar auðvelt er
að taka myndir og einfaldar leiðbein-
ingar eru á skjánum.
Núna er í gangi sérstakt ferm-
ingartilboð hjá Instamyndum: Mynda-
kassi og bakgrunnur á 30.000 krónur.
Enginn annar kostnaður fylgir notkun
myndakassans í veislunni.
Til að panta myndakassa í veisluna
og fá nánari upplýsingar er best að
fara inn á vefsíðuna instamyndir.is og
framhaldið skýrir sig sjálft.
Skemmtilegar myndir
af öllum gestum
INsTAMyNdIr.Is: MyNdAKAssI í VEIsluNA
Kerti, ljósmyndasteinar, silfurskartgripir
og margt fleira handa fermingarbarninu
pollyANNA.Is og sKAuTAlIF.Is
Við bjóðum upp á falleg ferm-ingarkerti með nafni ferm-ingarbarnsins og mynd af
því. Kertið brennur niður en myndin
stendur eftir og breytist í nokkurs
konar kertalukt sem fermingar-
barnið getur átt um ókomna tíð,“
segir gíslína Vilborg Ólafsdóttir, sem
rekur vefverslanirnar pollyanna.is og
skautalif.is.
Hún selur einnig ljósmyndasteina
sem eru afar vinsælir en þá er ljós-
mynd sett á þar til gerða ljósmynda-
steina og útkoman er mjög falleg.
Fallegt að hafa með á gjafaborðinu
eða sem afmælis- eða jólagjöf t.d.
til ömmu og afa með mynd af ferm-
ingarbarninu. Hægt er að fá fleiri
hugmyndir til að setja ljósmyndir á
sem hægt er að skoða inni á vefversl-
uninni. Einnig er hægt að fá fleiri vör-
ur sem hægt er að setja á persónu-
legar myndir eða skilaboð. Má þar
nefna símahulstur, bolla, glasamottur
og fleira, sem geta verið skemmti-
legar gjafir til fermingarbarnsins frá
vinum þess.
Kerti, ljósmyndasteinar og aðr-
ar vörur til merkingar eru inni á
pollyanna.is, en á skautalif.is er úrval
af vönduðum ítölskum silfurhálsmen-
um, fyrir fimleikastráka og -stelpur,
skautastelpur og ballettstelpur. Á
skautalif.is eru líka margvíslegar vörur
sem tengjast skautaíþróttinni en
einnig er hægt að kíkja við í verslun
skautalífs í skautahöllinni í laugardal.
„Þar er gott úrval af skautatengdum
vörum og án efa hægt að finna góða
og nytsama gjöf fyrir skautastelpur,“
segir gíslína.
Vörur úr vefverslununum
pollyanna.is og skautalif.is eru sendar
um land allt og er sendingarkostn-
aður 750 kr. á hverja sendingu. Hann
fellur hins vegar niður ef keypt er fyrir
10.000 kr. eða meira.