Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 41
FermingarHelgarblað 2. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ótrúleg
gæði –
ótrúlega
lágt verð
SJCAM SMávídeóvélAr:
Þegar þú ert í veislu eða á öðrum mannamótum þá notarðu símann þinn til að mynda
gleðina en það er öðruvísi þegar þú
ert í veiðinni eða einhverju sporti, eða
börnin á hjólabrettum, snjóbrettum,
í fimleikum, boltaíþróttum eða öðru
sporti sem ungir og frískir krakkar
taka þátt því; þá þarf aðra græju til
að mynda. ekki eru krakkarnir að
fara að festa 100.000 króna
síma á stöngina til að ná mynd
af því þegar þau steypast
í snjóinn eða sundlaugina.
Nei, það þarf græju sem
er byggð fyrir slíka aksjón
og þolir hana,“ segir Arnar
einarsson, eigandi vefversl-
unarinnar Sportmyndavél-
ar, sem býður upp á frá-
bærar vídeómyndavélar undir
merkinu SJCAM, en með þeim
er hægt að ná mjög góðum mynd-
skeiðum og ljósmyndum af sjálfum
sér og öðrum á hreyfingu, til dæmis
við útivist og alls konar vasklega iðju.
„Þetta byrjaði allt með því að mig
langaði í Go Pro myndavél en þau
tæki eru frábær. en
mér fannst þær heldur
dýrar. ég rakst á
SJCAM á netinu og
prófaði að kaupa
hana. Nokkrum
árum síðar á ég
hana ennþá, hún
hefur aldrei bilað,
gæðin á myndefn-
inu úr henni komu
mér mjög á óvart
og hún hefur
reynst mér mjög
vel.“
SJCAM er kín-
versk framleiðsla
en ólíkt því sem
margir eiga að venj-
ast um margar kín-
verskar vörur eru þetta
afar vandaðar græjur. „Þær hafa
fengið ofboðslega góða dóma.
Frá því ég byrjaði að selja þessar
vélar, í maí 2016, hef ég aðeins
fengið eina vél til baka bilaða. vélarn-
ar eru í tveggja ára ábyrgð og ef vél
bilar fær viðskiptavinurinn einfaldlega
nýtt tæki.“
Svo ódýrar að fólk trúir því ekki hvað
þær eru vandaðar
SJCAM vélarnar eru kjörin ferm-
ingargjöf og má taka sem dæmi tvær
tegundir, SJCAM SJ4000 og SJCAM
SJ4000 WiFi. „Þetta eru þær vélar
sem ég sel langmest af enda eru
þær mjög ódýrar. Gæðin eru mikil:
myndskeið í háskerpu og ljósmyndir
í 12 megapixla gæðum. Skjár er á
bakhliðinni svo þú getur séð ná-
kvæmlega hvað þú ert að gera.
Fjöldinn allur af stillingum um
hvernig þú vilt hafa myndina,
stilla lýsingu og allt það –
þær eru með stöðugleika-
stillingu þannig að myndin
hristist lítið þó að þú sért á
hlaupum,“ segir Arnar um
SJ4000. SJCAM SJ4000
WiFi hefur síðan allt þetta til
að bera auk nettengingar:
„Þú getur tengt vélina beint við
símann þinn og skoðað myndefni á
símanum jafnóðum. Þú getur fylgst
með sjálfum þér bruna framhjá vél-
inni – eða skoðað myndir og mynd-
skeið strax á símanum. Af símanum
getur þú síðan hent efninu beint inn
á Facebook, Instargram eða aðra
samfélagsmiðla nánast um leið og
myndefnið verður til.“
Þessar tvær vélar eru ótrúlega
ódýrar. SJCAM SJ4000 kostar
13.488 kr. og SJCAM SJ4000 WiFi
kostar 17.919 kr. vegna verðsins eiga
margir erfitt með að trúa hvað þetta
eru góð tæki. en fyrir utan að vera
sterkar og endingargóðar eru mynd-
gæðin frábær. „Það er ótrúlegt hvað
maður fær góðar myndir úr þessu,“
segir Arnar.
„en það þarf að passa sig á því að
þessar vélar eru það góðar að það eru
komnar alls konar eftirlíkingar af þeim
sem eru alls ekki eins góðar. á hinum
ýmsu söluvefjum eru til sölu vélar með
nákvæmlega sama heiti en eru allt
aðrar vélar og gæðin eru ótrygg,“
ráðið við þessu er að kaupa vél-
arnar einfaldlega á vefnum sport-
myndavelar.is til að fá örugglega
ósvikna SJCAM.
Frábær aukapakki innifalinn
Með SJCM vélunum er mikið úr-
val aukahluta staðalbúnaður og er
innifalinn í verðinu. „Með vélinni fylgir
einni kassi, hellingur af alls konar
festingum til að festa vélina á hitt
og þetta, vatnshelt hús þannig að
hægt er að kafa með vélina í sjón-
um eða sundlauginni og þolir hún
þá 30 metra dýpi. Fyrir svo utan
aukahlutina má nefna ótal frábæra
eiginleika, eins og fjórfaldan aðdrátt
og andlitsgreiningu,“ segir Arnar.
Nánari upplýsingar eru inn á vefn-
um sportmyndavelar.is og fjölmargar
aðrar spennandi, vandaðar og ódýrar
vörur sem þar eru til sölu. vörurnar
eru eingöngu til sölu í vefverslun á
vefnum sportmyndavelar.is. Sent
er hvert á land sem er og upp að
dyrum þar sem því verður við komið.
Sendingarkostnaður er 1.500 kr.