Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 41
FermingarHelgarblað 2. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Ótrúleg gæði – ótrúlega lágt verð SJCAM SMávídeóvélAr: Þegar þú ert í veislu eða á öðrum mannamótum þá notarðu símann þinn til að mynda gleðina en það er öðruvísi þegar þú ert í veiðinni eða einhverju sporti, eða börnin á hjólabrettum, snjóbrettum, í fimleikum, boltaíþróttum eða öðru sporti sem ungir og frískir krakkar taka þátt því; þá þarf aðra græju til að mynda. ekki eru krakkarnir að fara að festa 100.000 króna síma á stöngina til að ná mynd af því þegar þau steypast í snjóinn eða sundlaugina. Nei, það þarf græju sem er byggð fyrir slíka aksjón og þolir hana,“ segir Arnar einarsson, eigandi vefversl- unarinnar Sportmyndavél- ar, sem býður upp á frá- bærar vídeómyndavélar undir merkinu SJCAM, en með þeim er hægt að ná mjög góðum mynd- skeiðum og ljósmyndum af sjálfum sér og öðrum á hreyfingu, til dæmis við útivist og alls konar vasklega iðju. „Þetta byrjaði allt með því að mig langaði í Go Pro myndavél en þau tæki eru frábær. en mér fannst þær heldur dýrar. ég rakst á SJCAM á netinu og prófaði að kaupa hana. Nokkrum árum síðar á ég hana ennþá, hún hefur aldrei bilað, gæðin á myndefn- inu úr henni komu mér mjög á óvart og hún hefur reynst mér mjög vel.“ SJCAM er kín- versk framleiðsla en ólíkt því sem margir eiga að venj- ast um margar kín- verskar vörur eru þetta afar vandaðar græjur. „Þær hafa fengið ofboðslega góða dóma. Frá því ég byrjaði að selja þessar vélar, í maí 2016, hef ég aðeins fengið eina vél til baka bilaða. vélarn- ar eru í tveggja ára ábyrgð og ef vél bilar fær viðskiptavinurinn einfaldlega nýtt tæki.“ Svo ódýrar að fólk trúir því ekki hvað þær eru vandaðar SJCAM vélarnar eru kjörin ferm- ingargjöf og má taka sem dæmi tvær tegundir, SJCAM SJ4000 og SJCAM SJ4000 WiFi. „Þetta eru þær vélar sem ég sel langmest af enda eru þær mjög ódýrar. Gæðin eru mikil: myndskeið í háskerpu og ljósmyndir í 12 megapixla gæðum. Skjár er á bakhliðinni svo þú getur séð ná- kvæmlega hvað þú ert að gera. Fjöldinn allur af stillingum um hvernig þú vilt hafa myndina, stilla lýsingu og allt það – þær eru með stöðugleika- stillingu þannig að myndin hristist lítið þó að þú sért á hlaupum,“ segir Arnar um SJ4000. SJCAM SJ4000 WiFi hefur síðan allt þetta til að bera auk nettengingar: „Þú getur tengt vélina beint við símann þinn og skoðað myndefni á símanum jafnóðum. Þú getur fylgst með sjálfum þér bruna framhjá vél- inni – eða skoðað myndir og mynd- skeið strax á símanum. Af símanum getur þú síðan hent efninu beint inn á Facebook, Instargram eða aðra samfélagsmiðla nánast um leið og myndefnið verður til.“ Þessar tvær vélar eru ótrúlega ódýrar. SJCAM SJ4000 kostar 13.488 kr. og SJCAM SJ4000 WiFi kostar 17.919 kr. vegna verðsins eiga margir erfitt með að trúa hvað þetta eru góð tæki. en fyrir utan að vera sterkar og endingargóðar eru mynd- gæðin frábær. „Það er ótrúlegt hvað maður fær góðar myndir úr þessu,“ segir Arnar. „en það þarf að passa sig á því að þessar vélar eru það góðar að það eru komnar alls konar eftirlíkingar af þeim sem eru alls ekki eins góðar. á hinum ýmsu söluvefjum eru til sölu vélar með nákvæmlega sama heiti en eru allt aðrar vélar og gæðin eru ótrygg,“ ráðið við þessu er að kaupa vél- arnar einfaldlega á vefnum sport- myndavelar.is til að fá örugglega ósvikna SJCAM. Frábær aukapakki innifalinn Með SJCM vélunum er mikið úr- val aukahluta staðalbúnaður og er innifalinn í verðinu. „Með vélinni fylgir einni kassi, hellingur af alls konar festingum til að festa vélina á hitt og þetta, vatnshelt hús þannig að hægt er að kafa með vélina í sjón- um eða sundlauginni og þolir hún þá 30 metra dýpi. Fyrir svo utan aukahlutina má nefna ótal frábæra eiginleika, eins og fjórfaldan aðdrátt og andlitsgreiningu,“ segir Arnar. Nánari upplýsingar eru inn á vefn- um sportmyndavelar.is og fjölmargar aðrar spennandi, vandaðar og ódýrar vörur sem þar eru til sölu. vörurnar eru eingöngu til sölu í vefverslun á vefnum sportmyndavelar.is. Sent er hvert á land sem er og upp að dyrum þar sem því verður við komið. Sendingarkostnaður er 1.500 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.