Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 51
512. febrúar 2018
Síðustu vikur hefur Kraftur, stuðnings-félag ungs fólks sem
greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur,
staðið fyrir árvekni- og
fjáröflunarátaki sem þau
kalla: Krabbamein kemur
öllum við | Lífið er núna.
Á sunnudaginn kemur,
þann 4. febrúar, verður
lokahnykkurinn í þessu
átaki þegar allir sem
vettlingi geta valdið koma
saman í Hörpunni og
perla armbönd sem síðan verða
seld á viðburðinum en ágóðinn
rennur allur til Krafts.
Kraftur stefnir á að slá Íslands-
met í fjölda þeirra sem koma að
armbandagerðinni og búist er við
enn betri mætingu en í fyrra.
Nokkrir frábærir listamenn
munu stíga á svið og stytta perlur-
um stundir en meðal þeirra má
nefna Valdimar, Amabadama,
Úlfur Úlfur og svo DJ Sóley
sem nýlega lauk við krabba-
meinsmeðferð sjálf.
Lætur hárið fjúka til styrktar
krabbameinssjúkum
Ester Amíra Ægisdóttir, 11 ára,
ætlar að láta hárið fjúka á við-
burðinum til styrktar krabba-
meinssjúkum. En báðar ömmur
hennar hafa greinst með krabba-
mein og ákvað hún að láta klippa
hár sitt til hárkollugerðar fyrir
krabbameinssjúka og safna
áheitum til styrktar Krafti.
Upphaflegt markmið hennar
var að safna yfir 100.000 krón-
um en hún er þegar komin vel yfir
þá upphæð.
Viðburðurinn hefst klukkan
13.00 og stendur til klukkan 17.00.
Ókeypis er í bílastæði Hörpu
meðan á viðburðinum stendur í
boði 115 security. Aðgangur er að
sjálfsögðu ókeypis og allir hjartan-
lega velkomnir.
Ætla að slá
Íslandsmet Í
armbandagerð
á sunnudaginn
Valdimar, Úlfur Úlfur, amabadama og dJ sóley
skemmta. Ókeypis aðgangur. allir hvattir til að mæta.
DJ Sóley Sóley
greindist með
brjóstakrabba-
mein í fyrra. Hún
mun spila skemmti-
lega tónlist á
sunnudaginn svo
að perlarar fái
meiri innblástur.
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is