Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Greiningarsýning á ljósmyndum Al-
freðs D. Jónssonar verður opnuð í
Þjóðminjasafninu á laugardaginn.
Með sýningunni er leitað eftir aðstoð
almennings við að þekkja fólk á ljós-
myndum sem hann tók á fyrri hluta
síðustu aldar. Alfreð rak ljósmynda-
stofu, fyrst á Klapparstíg 37 árin
1931 til 1935 og síðan á Laugavegi 23
árin 1935 til 1952.
Filmusafn Alfreðs, sem telur um
20 þúsund myndir, var afhent Þjóð-
minjasafninu til varðveislu árið 2009.
Það var að litlu leyti skráð. Mynd-
irnar á sýningunni eru allar frá ljós-
myndastofu Alfreðs.
Óþekkt og nafnlaust
Fólkið á myndunum er allt óþekkt
og nafnlaust. „Gildi myndar eykst
mikið ef vitað er hvern hún sýnir,“
segja starfsmenn safnsins. Morgun-
blaðið leggur málinu lið með því að
birta nokkrar myndanna á sýning-
unni. Lesendur sem þekkja fólkið
eru beðnir að koma þeim upplýs-
ingum á framfæri við safnið.
Samhliða sýningunni verða mynd-
irnar á sýningunni ásamt fleiri
óþekktum myndum Alfreðs aðgengi-
legar á vefnum sarpur.is. Þar gefst
fólki kostur á að skoða myndirnar og
koma með athugasemdir rafrænt.
Greiningar af sýningunni verða sett-
ar inn í Sarp jafnóðum og öfugt
(þ.e.a.s. greiningar sem fást í gegn-
um Sarp verða settar við myndirnar
á sýningunni).
Að sögn Kristínar Höllu Baldvins-
dóttur, sérfræðings hjá Þjóðminja-
safninu, var Alfreð D. Jónsson al-
þýðuljósmyndari, þ.e.a.s. viðskipta-
vinir hans voru fyrst og fremst
almenningur. Eins er talsvert um
myndir af hermönnum sem stað-
settir voru hér á landi.
Í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóð-
minjasafni eru að sögn Höllu varð-
veittar tæplega sjö milljónir mynda
svo þar er um gríðarlegt heimilda-
safn að ræða, bæði úrval þjóðlífs- og
mannamynda frá upphafi ljósmynd-
unar 1839 og fram yfir aldamótin
2000, en líka besta varðveitta úrval
teiknaðra og málaðra manna- og
þjóðlífsmynda frá Íslandi frá 16.-19.
öld. Þangað leita fræðimenn og
námsmenn og reglulega birtast í rit-
gerðum, blöðum og bókum ljós-
myndir og teikningar sem ekki hafa
sést áður. Hlutverk Ljósmynda-
safnsins er að safna, skrá og varð-
veita ljósmyndir, glerplötur, filmur,
skyggnur og önnur gögn er tengjast
ljósmyndum.
Kristín Halla segir að þátttaka á
greiningarsýningum safnsins hafi
verið góð í gegnum tíðina og hafi oft
náðst að greina heilu myndasöfnin
með þessari aðferð.
Aðgangur á sýninguna er ókeypis.
Óþekkt fólk á gömlum ljósmyndum
Þjóðminjasafnið leitar aðstoðar almennings við að nafngreina fólk á portrettmyndum Alfreðs D.
Jónssonar frá fyrri hluta síðustu aldar Alfreð rak ljósmyndastofu í Reykjavík 1931 til 1952
Fjölskylda Líklega foreldrar með börn sín, öll eru þau í sínu besta pússi. Lítil stúlka Þessa fallegu peysu hefur mamma kannski prjónað og húfuna líka.
Barnmörg Hjón fyrir miðju eiga líklega öll þessi átta börn sem flest eru uppkomin.Fjórar kynslóðir Ekki er ólíklegt að hér séu langamma, amma, móðir og dóttir hennar.
FLEIRI MYNDIR 28
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
TOYOTA LAND CRUISER 150 GX
nýskr. 06/2010, ekinn 158 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verulega flott eintak! Verð 4.440.000 kr.
Raðnúmer 380096
RENAULTMASTER DCI125 L2H2
nýskr. 01/2015, ekinn aðeins 47 Þ.km, dísel, 6 gíra.
Verð 2.490.000 kr. + vsk.
Raðnúmer 257493
ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
NÝR - SKODAOCTAVIA AMBITION
Árgerð 2018, ekinn 0 KM, dísel, beinskiptur.
Verð 3.470.000 kr.
Raðnúmer 380131
NÝR - FORDTRANSIT 350 L3H1D/C
TREND FWD dísel (131 hö), 6 gírar.
TILBOÐSVERÐ 3.999.000 kr. + vsk.
Raðnúmer 257474
NÝR - FORDTRANSIT 350 TREND L3H1
4WD dísel (170 hö), 6 gíra.
Verð 5.150.000+ vsk.
Raðnúmer 230593
Bílafjármögnun Landsbankans