Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 JÓN BERGSSON EHF Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM Hentar þetta þínum garði, svölum, rekstri eða sumarbústað? Dóra Magnúsdóttir dora@mbl.is Í lok ágúst sendi Fjölskyldan á mbl.is út skilaboð um að verið væri að leita að fjölskyldu til að taka þátt í Plast- lausum september. Það eina sem far- ið var fram á var að fjölskyldan sem yrði fyrir valinu vildi minnka notkun sína á einnota plasti og bæta um- hverfisvernd sína almennt í sept- ember, og vonandi til frambúðar. Einnig var lögð áhersla á að fjöl- skyldan sem tæki þátt hefði svigrúm til að bæta sig. Fjölmargar fjölskyldur höfðu sam- band og vildu taka þátt. Fyrir valinu varð ung fjölskylda, hjón með tvo unga syni sem búa tímabundið heima hjá foreldrum föðurins. Þrjár kyn- slóðir undir sama þaki sem búa þröngt og í sátt meðan unga fjöl- skyldan bíður eftir að framtíð- arhúsnæði hennar verði fullklárað. Þetta eru þau Eva Bryngeirsdóttir og maðurinn hennar Ingólfur Júlíus Pétursson sem eiga synina Krumma Rafn Ingólfsson þriggja ára og Úlf Örn níu mánaða. Eva starfar við vörustjórnun hjá fyrirtækinu Bram- mer sem þjónustar álverið á Reyð- arfirði en Ingólfur er vélvirki hjá Launafli, sem einnig starfar fyrir ál- verið. „Tengdó“, eins og Eva kallar foreldra mannsins hennar þar sem þau búa, eru þau Inga Dís Ingólfs- dóttir, sem starfar í Landsbankanum á Reyðarfirði, og Pétur Sigurðsson, vélvirkjameistari hjá Alcoa. Eva segir að hún sé alveg komin þokkalega á veg með að flokka en viðurkennir að hafa orðið svolítið hissa á metnaði tengdaforeldra sinna þegar kom að því að flokka rusl. Til dæmis aðskilji þau álþynnur frá plasti á lyfja- og vítamínþynnum og skoli alltaf jógúrt og skyr samvisku- samlega og taki hreina álþynnuna frá. Enginn afsláttur gefinn á smá- atriðunum! Þannig að þó að hún og Ingólfur hafi talið sig vera ágætlega á veg komin með flokkun hafi þau lært heilmikið á því að búa með for- eldrum Ingólfs. Þau starfa bæði í tengslum við álverið og þar er strangt eftirlit með flokkun sem einnig hefur kennt þeim heilmikið. -Nú eruð þið greinilega að hugsa um umhverfisvernd og minni plast- notkun nú þegar. En hvernig getið þið gert enn betur i september? „Við getum nú alltaf bætt okkur í að muna eftir margnota plastpokum. Það þýðir lítið að eiga 20-30 marg- nota poka, gleyma þeim alltaf heima og kaupa plastpoka! Svo verð ég að viðurkenna að við höfum notað of mikið af plaströrum, en við búum oft- til þeytinga hér heima og Krummi litli er hrifinn af þeim en vill alltaf rör. Ég hef frétt að það er hægt að kaupa margnota málmrör og einnota papparör, þarf að skoða það allt sam- an betur. Ég er líka smá í vandræð- um í búðinni því ég hef ekki fundið neitt annað en plast til að halda ávöxtum og grænmeti saman en ég get kannski fundið út úr því. Svo er ég hætt að drekka gos, það sparast nú heilmikið einnota plast á því. Reyndar vil ég taka fram að ég hef alltaf notað flöskurnar undan gosi oft, þannig að þær hafa ekkert verið einnota. Maðurinn minn er ekki al- veg til í að hætta í gosinu en kaupir frekar dósir en plast. Þannig að þetta er svona það sem ég sé fyrir mér í fljótu bragði.“ Búinn að hreinsa marga pallfarma af plasti úr fjörunni á Eskifirði - Plastlaus september snýst ekki bara um að nota minna plast heldur líka hreinsa upp plast í náttúrunni og plokka, sem góðu heilli er hreinlega orðið tískufyrirbrigði. Eruð þið til dæmis að plokka? „Heldur betur. Það var maðurinn minn sem fann upp plokkið löngu áð- ur en það varð vinsælt. Eða svo segir hann! Það er alla vega staðreynd að hann hefur eytt mörgum klukkutím- um í að henda plastúrgangi úr fjör- unni hér á Eskifirði og í nágrenni upp á pallbílinn okkar og koma úr- ganginum flokkun. Algerlega óskipu- lagt og án hvatningar.“ -Hvað með Krumma litla, er hann áhugasamur um flokkun og þess háttar? Hann er allavega sérlega áhuga- samur um rusl og kann aðeins að flokka. Vill mjög gjarnan hjálpa okk- ur með að henda rusli og þess háttar. Hann er mikill áhugamaður um Hvolpasveitina eins og flestir jafn- aldrar hans og á eitt leikfang úr þess- ari seríu, endurvinnsluhvolpinn Rikka, en hans mottó er: Engu skal farga, öllu skal bjarga! Þannig að þar er góður, kannski ekki liðsmaður í verkefninu, en liðshvolpur kannski? Svona hlutir hjálpa foreldrum heil- mikið að fræða börnin um endur- vinnslu og umhverfisvernd. Plastmengunin stingur mjög í stúf í náttúrunni -Hvað hvatti ykkur til að taka þátt í Plastlausum september og verða Plastlausa fjölskyldan? Við búum náttúrulega hérna úti í náttúrunni og þegar við sjáum plast og annað rusl á víðavangi stingur það mjög í stúf við umhverfið. Svo höfum við eins og allir aðrir séð myndbönd og fréttir af gríðarlegri plastmengun í hafinu og höfum áhyggjur af því eins og aðrir, ekki síst aðrir for- eldrar. Þó að við flokkum á fullu sjáum við líka hvað við, sem ein dæmigerð íslensk fjölskylda, erum að skila af okkur gríðarlegu magni af rusli, þó svo að við flokkum það. Þannig að það skiptir bara mjög miklu máli bæði að flokka en ekki síð- ur að skipuleggja flokkunina þannig að hún sé sérlega aðgengileg í dags- ins önn. Plastlausa fjölskyldan á Eskifirði Á Eskifirði búa hjón með tvo unga syni sem ætla að taka þátt í Plastlausum september og verða Plast- lausa fjölskyldan á mbl.is. Þau eru nú þegar dugleg að flokka og plokka en telja sig geta gert enn betur og munu deila myndum af plastafrekum sínum á Instagram með myllumerkinu #PlastlausaFjöl- skyldan. Fjölskyldan á mbl.is ætlar að fylgjast með. Plokkpabbinn Ingólfur Júlíus Pétursson og Úlfur Örn í austfirskum berjamó. Þeir ætla að leggja sitt af mörkum í náttúruvernd í haust og til frambúðar en sá fyrrnefndi telur sig hugsanlega vera óþekktan frumkvöðul plokksins. Plastlausa mamman Eva Bryngeirsdóttir og Krummi Rafn ætla að taka þátt í plastlausum september. Ungir plokkarar Þessir ungu eskfirsku plokkarar létu sitt ekki eftir liggja í umhverfisvernd í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.