Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 76
Guðrún Óla Jónsdóttir
gudruno@mbl.is
„Mér var boðin skólavist í eitt ár en
svo er aldrei að vita nema ég geti
haldið áfram ef ég stenst prófin,“
segir Þorbjörg Jónasdóttir, fimmtán
ára nemandi í ballett við Listdans-
skóla Íslands.
Þorbjörg er á leið til San Franc-
isco í Bandaríkjunum á föstudaginn
þar sem hún mun stunda ballettnám
í vetur við skóla San Francisco-
ballettsins. Ballettflokkurinn er
þekktur um allan heim, en Helgi
Tómasson er listrænn stjórnandi
hans.
Hafði engu að tapa
„Ég fór á námskeið þarna úti í
skólanum núna í sumar og í lok þess
var mér boðin skólavist í eitt ár. Ég
hafði fyllt út umsókn fyrir veturinn
en átti ekki von á því að komast inn,
svo að þetta var mjög óvænt ánægja.
Ég hafði bara hugsað að ég hefði
engu að tapa þótt ég prófaði að
sækja um,“ segir Þorbjörg.
Hún hefur stundað nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð, en
verður í vetur í fjarnámi frá Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla, þar
sem ekki er boðið upp á fjarnám í
MH. „Ég get lært á morgnana og
svo fer ég í ballettskólann síðdegis.
Ég fæ svo frí á sunnudögum,“ segir
Þorbjörg.
Krefjandi listgrein
Hún segist dansa í um það bil þrjá
klukkutíma á dag, en hún hefur æft
ballett frá fjögurra ára aldri. Fyrst
lærði hún í Ballettskóla Sigríðar Ár-
manns en hefur verið í Listdans-
skóla Íslands frá því hún var níu ára.
Er þetta ekki mikið álag?
„Jú, þetta er rosalega mikið álag
og stundum fær maður álagsmeiðsli.
Þetta er ekki alltaf dans á rósum.
Maður þarf líka að passa sig á að
hvíla sig vel og passa upp á matar-
æðið.“
Hún bætir við að þetta sé þó alveg
þess virði, því að ballettinn sé svo
skemmtilegur. „Þetta er svo krefj-
andi listgrein þar sem maður þarf
alltaf að gera eins vel og maður get-
ur. Það er samt ekkert fullkomið og
maður getur alltaf bætt sig. Svo er
ég svolítið feimin og næ að tjá mig í
gegnum dansinn,“ segir Þorbjörg.
Hún segir að draumahlutverkin
séu mörg en hlutverk Þyrnirósar lík-
lega það sem henni finnist mest
spennandi.
Hvert stefnirðu í ballettinum?
„Mig langar að verða atvinnu-
dansari en þetta er harður heimur
og samkeppnin er mikil. Þannig að
maður getur ekki gert annað en að
taka bara einn dag í einu og gera sitt
besta.“
Ung ballerína Þorbjörg Jónasdóttir er aðeins fimmtán ára og mun stunda ballettnám í San Francisco í vetur.
Ekki alltaf dans á rósum
en þó alveg þess virði
Ballettdansmey boðið í skóla San Francisco-ballettsins
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
NATUZZI B888 sófi með skemilenda til hægri eða vinstri. Madison N20RA
leður. L310 x B243 x 104 cm. 729.900 kr. Nú 399.900 kr.
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
25-50% af völdum vörum
2fyrir1
AF ÖLLUM
RÚMFÖTUM
50%
AF ALLRI
SUMARVÖRU
2fyrir1
AF ÖLLUM
HANDKLÆÐUM
45%
Sigurður og Jansson
leika saman djass
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 249. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Morgunblaðið rýnir í dag í liðin fjög-
ur sem spáð er neðstu sætunum í
Olís-deild karla í handbolta í vetur.
Leiktíðin hefst á sunnudaginn. Tals-
verðar breytingar hafa orðið hjá
Fram, róðurinn virðist verða þungur
hjá Akureyri og nýliðum KA, og hið
sama má segja um Gróttu þar sem
uppstokkun hefur verið mikil innan
sem utan vallar. »2 og 3
Fallbarátta fyrir
norðan og á Nesinu?
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu leikur á laugardag fyrsta
leik sinn í nýrri Þjóðadeild UEFA
þegar liðið mætir Sviss ytra. Ísland
er eitt þeirra tólf liða sem leika í A-
deild. Nái liðið að enda í hópi
þeirra tíu sem best-
um árangri ná í A-
deildinni verð-
ur það í efsta
styrkleika-
flokki þegar dreg-
ið verður í riðla
fyrir undan-
keppni EM sem
fram fer öll á
næsta ári. Sviss
hefur skipt sjö leik-
mönnum út síðan á
HM í sumar. »4
Ísland byrjar sem eitt
af tólf bestu í Evrópu
Sigurður Flosason altsaxófónleikari
og sænski píanóleikarinn Lars
Jansson leika á Jazzhátíð í Reykja-
vík í Hannesarholti í kvöld kl. 19.30.
Sigurður og Jansson hafa leikið
töluvert saman og munu í kvöld
flytja tónsmíðar beggja sem og vel
valda, sígilda og sígræna ópusa.