Morgunblaðið - 27.09.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef verið stuðningsmaður þessa
verkefnis frá upphafi og ég er opinn
fyrir öllum leiðum til að það verði að
veruleika. Helst fyrr en seinna,“ seg-
ir Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Morgunblaðið hefur greint frá
áhuga heimamanna í Vík í Mýrdal á
gerð jarðganga í gegnum Reynisfjall
og láglendisvegar. Fundað hefur
verið í tvígang þar með hagsmuna-
aðilum. Í yfirliti um innihald sam-
gönguáætlunar kom fram að hring-
vegur um Mýrdal og jarðgöng um
Reynisfjall væru sett á 2.-3. tímabil
áætlunarinnar. Reiknað er með 5,3
milljörðum króna til verksins. Þá
sagði að leitað yrði leiða til að fjár-
magna verkefnið í samstarfi við
einkaaðila.
Sigurður Ingi hefur boðað komu
sína á opinn fund um samgöngumál
sem haldinn verður í Víkurskóla í
Vík á mánudaginn næsta, 1. október
klukkan 20. „Mér finnst skipta máli
að hlusta á heimafólk,“ segir Sig-
urður Ingi sem kveðst sannfærður
um ágæti umræddrar fram-
kvæmdar.
„Ég held að þetta muni skipta
máli. Þetta yrði stytting á tíma,
sparnaður í akstri, minni útblástur.
Það er jákvætt að stytta hringveginn
og fara með umferðina úr þorpinu.
Og ekki síður að komast fram hjá
fjallvegi þar sem hætta stafar af
Gatnabrúninni.“
Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson
Reynisfjall Gert er ráð fyrir láglendisvegi með Dyrhólaósi til vinstri. Göng verði svo grafin gegnum fjallið til Víkur.
Ráðherra fundar með Mýrdælingum
Styður jarðgöng í gegnum Reynis-
fjall Opinn fyrir öllum leiðum
Samninganefnd stéttarfélagsins
Einingar-Iðju fer fram á að laun
hækki í krónum, ekki prósentum, í
kjaraviðræðum í haust. Sammæli er
um að þetta verði stærsta krafa fé-
lagsins að því er fram kemur í pistli
Björns Snæbjörnssonar, formanns
Einingar-Iðju, á vef félagsins.
„Þannig er tryggt að lægstu
launin hækki mest í prósentum tal-
ið. Sömuleiðis er nefndin einhuga
um hækkun skattleysismarka,
sömuleiðis að vaxta- og barnabætur
hækki. Þá er lögð áhersla á að af-
nema ósanngjarnt tvöfalt kerfi lág-
markslauna og taxta,“ segir í pistli
Björns.
„Yfirlýsingar vinnuveitenda að
undanförnu benda til þess að kjara-
baráttan verði harðari en oft áður.
Allar hagtölur benda hins vegar til
þess að góðæri ríki í landinu og nú
gerir verkafólk
kröfu um að
njóta góðærisins,
sem engu líkara
er en að hafi ver-
ið hannað að
þörfum toppanna
og sjálftökuliðs-
ins,“ ritaði Björn.
Eining-Iðja á
aðild að Starfs-
greinasambandi
Íslands, en fram kemur í pistli
Björns að kröfugerð félagsins hafi
verið send til Starfsgreina-
sambands Íslands 18. september sl.,
en ráðgert er að kröfugerð sam-
bandsins verði kynnt opinberlega
10. október nk. Björn segir kröfu-
gerð Einingar-Iðju ítarlega og vel
ígrundaða, enda byggða á við-
horfum þorra félagsmanna.
Hækki í krónum
frekar en prósentum
Björn
Snæbjörnsson
Eining-Iðja skilar kröfugerð til SGS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins (SA), segir að sér sé
fyrst og fremst brugðið við að sjá
kröfugerð Stéttarfélagsins Fram-
sýnar á Húsavík á hendur atvinnu-
rekendum, um að
lágmarkslaun
verði 375 þúsund
krónur.
„Á sama tíma
og verkalýðs-
félögin eru að
kalla eftir ábyrgð
atvinnulífsins og
skilningi á stöðu
þeirra sem lægst
hafa launin, þá
virðast mörg þeirra vera að sýna
takmarkaðan skilning á stöðu fyr-
irtækjanna, sem félagsmenn verka-
lýðsfélaganna starfa hjá. Það er vit-
anlega umhugsunarefni fyrir okkur
öll, ef verkalýðsfélögin ætla að fara
fram með þessum hætti og sýna þar
með takmarkaða ábyrgð í atvinnulíf-
inu,“ sagði Halldór Benjamín í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, þegar
hann var spurður um álit SA á ný-
framkominni kröfugerð Framsýnar.
„Við hjá Samtökum atvinnulífsins
vonum heilshugar, að kröfur þeirra
verkalýðsfélaga, sem munu leiða
þær kjaraviðræður sem framundan
eru verði í meira samræmi við raun-
veruleikann, en þessar kröfur
Framsýnar eru,“ sagði Halldór jafn-
framt.
Myndi valda öllum tjóni
Halldór segir að til þess að fólk
átti sig á þeim stærðum sem um er
að tefla, vilji hann benda á að fyr-
irtækin í landinu greiði rétt um eitt-
þúsund milljarða í laun og launa-
tengd gjöld á hverju ári og hlutfall
launa og launatengdra gjalda hafi
aldrei verið hærra.
„Ef við heimfærum hvað þessi
kröfugerð Framsýnar myndi þýða
fyrir fyrirtækin í landinu, þá væru
fyrirtækin að taka á sig 200 til 300
milljarða hækkun launakostnaðar á
ári. Það sér hver maður í hendi sér,
að slíkt myndi bara leiða til rangrar
niðurstöðu fyrir alla og valda öllum
tjóni. Þessi nálgun hefur einfaldlega
gengið sér til húðar,“ sagði Halldór
Benjamín ennfremur.
Samtökum atvinnulífsins
var brugðið við kröfurnar
Þýði 200 til 300 milljarða hækkun launakostnaðar á ári
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Morgunblaðið/Ómar
Atvinnulíf Halldór Benjamín Þorbergsson bendir á að fyrirtækin í landinu
greiði um eitt þúsund milljarða í laun og launatengd gjöld á hverju ári.
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Gísli Jónsson dr.med.
Sérgrein hjartasjúkdómar og lyflækningar
hefur flutt læknastofu sína frá Domus Medica
á Álfaskeið 16, Hafnarfirði.
Tímapantanir virka daga 9-17 í s. 517 05 05
F
IM
M
TU
DAGSLEIKU
R
•
M
O
RGUNBLAÐ
SI
N
S
•
FINNDU
HAPPATÖLUNA
Í BLAÐINU
– og þú gætir dottið
í lukkupottinn