Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 8
Náttúrufræðingurinn
8
Við greiningu á spurningunni
eftir bakgrunnsbreytum kemur í
ljós að körlum þykja raflínur óæski-
legri en konum og ferðamönnum
yngri en 25 ára þykja þær síður
óæskilegar en þeim sem eldri eru
(1. tafla).a Íslendingum þykja raf-
línur óæskilegri en öllum öðrum
þjóðernishópum nema öðrum
Norðurlandabúum. Ferðamönnum
sem koma á svæðin á eigin bílum
finnast raflínur óæskilegri en þeim
sem ferðast í hópferðabílum og bíla-
leigubílum. Þeir sem eru gangandi
og á mótorhjóli eða fjórhjóli eru
mjög andvígir raflínum en þessir
hópar eru of fámennir til að marg-
hliða samanburður sýni marktækan
mun.
Mikill munur er á milli staða
á því hversu óæskilegar raflínur
þykja. Raflínur þykja óæskilegri í
Nýjadal en í Skagafirði, Hólaskjóli,
við Aldeyjarfoss og Seltún, en svar-
endum við Seltún þykja þær mun
síður óæskilegar en ferðamönnum
á öðrum stöðum. Mikill munur er
einnig milli hópa viðhorfskvarðans
í svörum um æskileik raflína á rann-
sóknarstöðunum. Þjónustusinnar
eru sá hópur sem sættir sig helst við
raflínur og almennum ferðamönn-
um finnst þær nokkuð óæskilegri en
þjónustusinnum. Náttúrusinnum
og eindregnum náttúrusinnum
þykja raflínur mun óæskilegri en
fyrrnefndu hópunum tveimur. Þá
þótti þeim sem höfðu komið á svæð-
in áður raflínur óæskilegri en þeim
sem voru í fyrstu ferðinni og þeir
sem komu til að upplifa víðerni
töldu raflínur óæskilegri en þeir
sem komu ekki til að upplifa víðerni.
1. tafla. Fjöldi x S
t-próf / anova-próf
N t-test / anova
Alls – Total 2075 2,20 1,031 -
Konur – Female 1002 2,24 1,025 t= 2,134
Karlar – Male 947 2,14 1,033 p= 0,033
Yngri en 25 ára – Younger than 25 years 254 2,51 1,023 F= 6,745 p< 0,001
25-34 ára/years 396 2,24 0,994
35-44 ára/years 287 2,06 1,000
45-54 ára/years 356 2,11 1,031
55-64 ára/years 299 2,06 1,017
65 ára og eldri – 65 years and older 164 2,24 1,092
Ísland – Iceland 315 1,75 1,006 F= 9,204 p< 0,001
Þýskaland – Germany 356 2,20 0,924
Frakkland – France 251 2,13 1,021
Sviss/Austurríki – Switzerland/Austria 230 2,20 0,974
USA/Kanada – USA/Canada 216 2,34 1,000
Benelux – Netherlands/Belgium/Luxembourg 104 2,34 0,938
Tékkland/Slóvakía/Pólland – Czech rep./Slovakia/Poland 102 2,65 1,241
Ítalía/Spánn – Italy/Spain 100 2,38 1,004
Bretland/Írland – Great Britain/Ireland 94 2,55 1,150
Norðurlönd – Nordic countries 88 2,08 0,954
Önnur lönd – Other countries 93 2,35 1,081
Ísl. bús. á höfuðborgarsvæði – Icelanders living in capital 222 1,74 0,999 t= -0,413
Ísl. bús. á landsbyggð – Icelanders living outside capital 81 1,80 1,051 p= 0,680
Bílaleigubíll – Rental car 701 2,31 0,974 F= 5,773 p< 0,001
Hópferðabíll – Bus 529 2,27 1,058
Eigin bíll – Private car 518 2,00 1,061
Reiðhjól – Bicycle 31 2,15 1,190
Gangandi – On foot 26 1,71 0,908
Mótorhjól/fjórhjól – Motorcycle/quad bike 24 1,83 0,917
Hestbak – Horseback 21 2,05 1,117
Styttri ganga en 1 klst. – Hike shorter than 1 hour 75 2,25 1,010 F= 1,545 p= 0,187
1:00–2:59 442 2,16 0,913
3:00–4:59 266 2,09 1,063
5:00–6:59 128 1,98 0,981
7 klst. löng ganga eða lengri – 7 hour hike or longer 192 2,00 1,012
Aldeyjarfoss 338 1,95 0,907 F= 33,829 p< 0,001
Hagavatn 94 1,87 0,992
Hólaskjól 442 2,06 1,003
Nýidalur 88 1,57 0,836
Skagafjörður 230 2,13 1,070
Seltún 751 2,64 0,984
Trölladyngja 132 1,78 0,914
Dagsgestir – Day visitors 871 2,23 1,008 t= 1,442
Næturgestir – Overnight visitors 1037 2,15 1,041 p= 0,150
Komið áður – Repeat visitors 367 1,80 0,943 t= -7,912
Ekki komið áður – First time visitors 1669 2,28 1,027 p< 0,001
Þjónustusinnar – Urbanists 255 2,69 1,028 F= 49,647 p< 0,001
Almennir ferðamenn – Neutralists 1034 2,29 0,989
Náttúrusinnar – Moderate purists 364 1,76 0,912
Eindregnir náttúrusinnar – Strong purists 53 1,52 0,886
Kom til að uppl. víðerni – Visiting to experience wilderness 1754 2,12 1,012 t= -6,375
Kom ekki til að uppl. víðerni –
Not visiting to experience wilderness 130 2,78 1,038 p< 0,001
1. tafla.a Viðhorf ferðamanna til raflína á
svæðinu, greint eftir hópum. Útreikningar
byggðir á 5 stiga Likert-kvarða þar sem 1 =
mjög óæskilegar, 2 = frekar óæskilegar, 3 =
hvorki né, 4 = frekar æskilegar, 5 = mjög æski-
legar. x=meðaltal, S=staðalfrávik. – The
attitude of touists towards transmission lines
in the area, analysed according to groups. –
Evaluations based on the five point Likert
scale where 1 = very inappropriate, 2 = inapp-
ropriate, 3 = neutral, 4 = appropriate, 5 = very
appropriate. x= mean, S=standard deviation.
a Miðað er við tölfræðilega marktækan mun ef
p<0,05.