Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 11
11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
2. tafla. Viðhorf til raflína á láglendi og hálendi,
greint eftir hópum. – The attitude towards
transmission lines in lowland areas and the
highlands analysed by groups. Útreikningar
byggðir á 5 stiga Likert-kvarða þar sem 1 =
mjög neikvætt, 2 = frekar neikvætt, 3 = hvorki
né, 4 = frekar jákvætt, 5 = mjög jákvætt. x=-
meðaltal, S=staðalfrávik. – Evaluations based
on the five point Likert scale where 1 = very
negative, 2 = somewhat negative, 3 =
neutral, 4 = somewhat positive, 5 = very
positive. x= mean, S=standard deviation.
um er hæst í Skagafirði (11,4%) og
við Seltún og Trölladyngju (8,6%)
en lægst við Aldeyjarfoss (4,2%),
við Hagavatn (4,3%) og í Nýjadal
(4,6%). Um 13% þjónustusinna, 8%
almennra ferðamanna og 5% nátt-
úrusinna töldu raflínur geta verið til
staðar án þess að spilla víðernum en
enginn eindreginn náttúrusinni var
þeirrar skoðunar.
Umræður og ályktanir
Samkvæmt rannsókninni sem hér er
kynnt telja ferðamenn raflínur vera
með óæskilegustu mannvirkjum á
rannsóknarstöðunum sjö og hefði
meirihluti ferðamanna minni áhuga
á að ferðast um þessi svæði ef raf-
línur lægju þar um. Ferðamenn
vilja síður hafa raflínur á hálendi
en á láglendi og fæstir telja að raf-
línur eigi að vera á víðerni. Þetta
er í góðu samræmi við niðurstöður
Devine-Wrights og Howes,4 sem og
ýmsar rannsóknir sem hafa verið
gerðar hér á landi25,41,47 sem sýna
að andstaða við raforkumannvirki
er meiri í lítt spilltri náttúru en þar
sem mannshöndin hefur komið
nærri.
Rannsókn þessi sýnir jafnframt
að það er nokkuð misjafnt er hversu
viðkvæmir ferðamenn eru fyrir raf-
línum í náttúrunni. Þeir sem koma
sérstaklega á svæðin til að upplifa
víðerni eru neikvæðari í garð raflína
en þeir sem koma ekki gagngert
að upplifa þau, og náttúrusinnar
eru einnig neikvæðari en almennir
ferðamenn og þjónustusinnar. Það
er í samræmi við aðrar rannsókn-
ir um skiptingu ferðamanna eftir
viðhorfskvarðanum.26,45
Jafnframt myndu raflínur síst hafa
áhrif á komu ferðamanna í Seltún á
Reykjanesi. Á hinum stöðunum sex
telja aftur á móti yfir 75% að raflínur
myndu draga úr áhuga þeirra á að
ferðast um svæðið. Rétt er að minna
á að ferðamennska við Seltún er
annars konar en á hinum stöðunum
sex, því að þar er meirihluti gest-
anna erlendir ferðamenn í dagsferð
frá Reykjavík og stoppa stutta stund
til að skoða hverasvæðið. Svæðið í
kringum Trölladyngju er hins vegar
fyrst og fremst göngusvæði íbúa á
höfuðborgarsvæðinu og hin svæðin
eru ýmist inni á hálendinu eða rétt
við jaðar þess. Truflun frá raflínum
virðist bæði vera háð staðnum sem
slíkum og mismunandi eftir mark-
hópum á ólíkum svæðum, en þessir
markhópar eru aftur misviðkvæmir
fyrir mannvirkjum í náttúrunni.
Rannsóknin sýnir jafnframt að
töluverður munur er milli viðhorfa
eftir þjóðerni og er mest andstaða
við raflínur meðal Íslendinga, auk
Frakka og Norðurlandabúa. Ein
skýring á andstöðu Íslendinga gæti
verið að þeir hafi áður komið á svæð-
in og því myndað sterkari tengsl við
staðina en erlendu ferðamennirnir.
Eins og áður segir vilja ferðamenn
síður að raflínur liggi um hálendið
en láglendi. Þetta á við um alla
hópa nema íbúa landsbyggðarinn-
ar, sem voru eini hópurinn sem
var ekki marktækt neikvæðari
gagnvart raflínum á hálendinu en
á láglendi. Mögulega er hægt að
útskýra viðhorf þeirra með tengsl-
um svarenda við láglendissvæðin
sem um ræðir, þ.e. hvort þeir nýta
þau sjálfir til ábúðar eða fara oft
þar um. Líkt og Devine-Wright13
hefur bent á gera tilfinningatengsl
það oft að verkum að fólk á erfitt
með að sjá fyrir sér og sætta sig
við breytingar á stöðum sem það
tengist og því gætu svarendur sem
búa á landsbyggðinni átt erfitt með
að sjá fyrir sér háspennulínur liggja
um sveitir sem þeir búa nálægt eða
þekkja vel. Einnig gæti verið um að
ræða viðhorf sem á ensku eru kölluð
NIMBY-viðhorf („not in my backy-
ard“)48 og gætu nefnst heimatúns-
viðhorf á íslensku. Ýmsir49–51 hafa í
rannsóknum um viðhorf til endur-
nýjanlegra orkugjafa sýnt fram á að
fólk er oft mótfallið byggingu orku-
mannvirkja í nærumhverfi sínu jafn-
vel þó að það sé almennt fylgjandi
nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir52
kannaði greiðsluvilja Íslendinga til
að leggja jarðstrengi í stað mastra
til minnka neikvæð sjónræn áhrif af
raflínum á Hellisheiði. Niðurstöður
könnunar hennar sýndu að sjónræn
áhrif raflína skiptu nokkru máli fyr-
ir almenning og mest þá sem búa
nálægt línunum. Aftur á móti hafa
aðrar rannsóknir14,53 sýnt fram á
að greiðsluvilji til að sjá ekki lín-
5. mynd. Áhrif raflína frá
viðkomandi virkjunum á
áhuga svarenda á að ferð-
ast um svæðið. –The effect
of the transmission lines
from the power plants in
question on the interest of
the respondents in travell-
ing in the area.