Náttúrufræðingurinn - 2017, Page 17
17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
árunum 1985–2013 voru greind til
að rannsaka útbreiðslu, fjölda og
lengdardreifingu botnlægs ískóðs
við Ísland. Stofnmælingin byggist á
stöðluðum togum á föstum stöðvum
á landgrunninu umhverfis Ísland, á
um 50–500 m dýpi. Árlegur fjöldi
stöðva hefur aðeins breyst lítillega
og var að meðaltali 563 stöðvar
(3. mynd). Stöðluð toglengd var 4
sjómílur og hefur sama veiðarfæri
verið notað allan rannsóknartímann.
Spönn milli vængja vörpunnar var
17 m, möskvastærð í fremrihluta 135
mm og í millistykki 80 mm. Pokinn
var klæddur með 40 mm möskva.
Grunngögnin eru fjöldi ískóðs á
stöð (fjöldi í togi). Í upphafi var
ískóð aðeins talið í aflanum en frá
1996 var það einnig lengdarmælt.
Frumskoðun á útbreiðslu ískóðs
sýndi að meginútbreiðslusvæðið
var á ytri hluta landgrunnsins, frá
Vestfjörðum og réttsælis að miðjum
Austfjörðum (3. mynd). Frekari
greining á langtímabreytingum
var því einskorðuð við það svæði.
Fjöldi stöðva á þessu svæði var frá
216 árið 1998 til 254 árið 1994 (með-
altal 240 stöðvar).
Tvíkosta aðhvarfsgreining (e.
logistic regression) með tölfræðifor-
ritinu R26 var notuð til þess að meta
og bera saman frá ári til árs hlutfall
togstöðva þar sem ískóð fékkst og
fékkst ekki.27 Núll-þanin neikvæð
tvíkosta aðhvarfsgreining (zero-in-
3. mynd. Togstöðvar í árlegri Stofnmælingu
botnfiska og útbreiðsla ískóðs í mars 1989,
1994 og 1995. Á langflestum stöðvum var
togað árlega þann tíma sem rannsóknin nær
yfir (1985–2013). Litaðir punktar sýna
fjölda á stöð þau þrjú ár sem ískóð fékkst á
flestum stöðvum. Rauðar punktalínur af-
marka meginútbreiðslusvæði ískóðs. Mjóar
svartar línur eru jafndýptarlínur á 500 og
1000 m. – Standard sampling stations in
the Icelandic Groundfish Survey 1985–
2013 and distribution of polar cod in March
1989, 1994, and 1995. The years shown are
those when polar cod were caught at the
highest number of stations. The coloured
points show number of polar cod caught per
station. The red dotted lines delimit the
main distribution area of polar cod and thin
lines show the depth contours at 500 and
1000 m.