Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 29

Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 29
29 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 6. mynd. Hér sést hvernig örlítill afgasaður svartur hraunfláki hefur runnið upp úr sprungu í gliðnunaratburðunum í Kröflu í október 1980. Samfara gosi rennur hraun ofan í sprungur og upp úr þeim aftur annars staðar. Slík hraun hafa verið nefnd gjávellur.55 – A tiny degassed lava patch flowed out of this fracture during a rifting event in the Krafla fissure swarm in October 1980. Such lava patches are formed when lava flows into fractures and out of them again. Ljósm./Photo: Ásta Rut Hjartardóttir. eftir því sem sigið óx, og eftir fyrstu vikuna urðu skjálftar stærri en 5 stig nánast daglegt brauð.35 GPS-mælir sem komið var fyrir á ísnum innan öskjunnar sýndi að sigið nam um hálfum metra á sólarhring. Hæðar- mælingar úr flugvél og InSAR- myndir úr gervitunglum sýndu vel lögun sigskálarinnar.35 Hinn 24. ágúst náði skjálfta- virknin norður fyrir Vatnajökul og 27. ágúst sást í könnunarflugi vísindamanna með TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, að gamlar sprungur höfðu hreyfst og nýjar myndast norðan Vatnajökuls. Um 700–1.000 m breiður og 5 km lang- ur sigdalur hafði myndast norð- ur frá jaðri Vatnajökuls. Norðan þess sigdals mátti sjá mjórri sigdal sem var einungis um 250–450 m breiður (7. mynd). Nýjar sprung- ur í Vatnajökli gáfu til kynna að sigdalur hefði einnig myndast undir jöklinum.34 Hinn 29. ágúst náði kvikan loks til yfirborðs eftir að hafa farið um 48 km leið frá Bárðarbungu, og úr varð eldgos sem stóð í um tvær klukkustundir. Þetta eldgos átti sér stað innan gömlu gígaraðarinnar sem Holuhraun eldra hafði runnið úr örfáum öldum fyrr, og innan nýja mjóa sigdalsins sem hafði sést í könnunarfluginu tveimur dögum fyrr (7. mynd). Hið skammlífa eldgos varð á um 600 m langri gossprungu, en tveimur dögum síðar, 31. ágúst, hófst aðalgosið. Það varð á sömu gossprungu en lengdi hana um 300 m til suðurs og 1.000 m til norðurs. Þetta gos stóð í um sex mánuði. Að auki opnuðust þrjár 110–250 m langar gossprungur 2,3 km sunn- an við meginsprunguna. Eldvirkni í þessum syðstu gossprungum varð þó lítil og skammlíf, stóð einungis í um tvo daga. Bergfræðileg greining á efni gossins og mælingar á inni- haldi gassýna gáfu til kynna að kvik- an væri komin úr kvikuhólfi á um 12 km dýpi, sem er í samræmi við niðurstöður aflögunarmælinga.35 Flestar sprungnanna sem hreyfð- ust í gliðnunaratburðunum árið 2014 liggja í jöðrum sigdalsins og teikna upp útmörk hans. Eldgosin árið 2014 áttu sér stað innan sigdals- ins, yfirleitt nærri miðju hans (7. og 8. mynd). Þetta er nokkuð dæmigert fyrir atburði af þessu tagi, enda er það kvikugangurinn sem myndar og víkkar sigdalinn, þar sem kviku- gangar geta orðið fáeinir metrar að breidd og taka þar með pláss í jarð- skorpunni (3. mynd). Vídd sigdals er talin geta gefið upplýsingar um dýpi niður á kviku,36,37 og þar með sagt til um hvort von sé á eldgosi. Sem áður segir var syðri sigdalur- inn sem sást í könnunarfluginu 27. ágúst um 700–1.000 m breiður en sá nyrðri einungis um 250–450 m breiður. Þetta gaf til kynna að kvika væri komin grunnt í jarðskorpuna, líklega á innan við 300 m dýpi,8 enda kom á daginn að eldgos hófst innan mjóa sigdalsins tveimur dög- um síðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.