Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 40
Náttúrufræðingurinn
40
Lognið
Haraldur Ólafsson
Áralangar mælingar frá allmörgum veðurstöðvum á Íslandi sýna að hæg-
viðri er langalgengast á sumrin frá kvöldi fram á morgun. Síðsumars hríð-
fellur tíðni hægviðris en eykst svo aftur í október í takt við vaxandi tíðni
hitahvarfa í neðsta lagi lofthjúpsins. Hægviðri er mun algengara inni til
landsins og í fjörðum og dölum en úti við sjóinn og á hálendinu. Reikni-
líkan spáir hægviðri oftast þokkalega nákvæmlega í Reykjavík um sólar-
hring fram í tímann, en stöku sinnum munar þó nokkrum sekúndumetrum
á reiknaðri veðurspá og mælingum. Á það einkum við í veðri þar sem
vindur breytist hratt frá einni stund til annarrar, t.d. í éljagangi eða þar sem
flökt er á vindröst frá fjalli.
Inngangur
Margir láta sig varða hvort vindur
er hvass og því meira sem vindur-
inn er hvassari. Ýmsar ástæður
liggja þar að baki og lúta þær ekki
síst að öryggi, bæði á landi, sjó
og í lofti. Sumar athafnir manna
utanhúss þola ekki vind þótt lífi
eða miklum eignum sé ekki stefnt
1. mynd. Hauststilla í Reykjavík, laust eftir hádegi 30. september 2016. – Calm weather in
Reykjavík in the early afternoon on September 30, 2016. Ljósm./Photo: Haraldur Ólafsson.
í hættu. Í logni verður vindorka
ekki virkjuð. Í logni berst mengun
ekki burt heldur safnast fyrir við
mengunaruppsprettuna. Af því
getur stafað hætta þegar eiturgufur
safnast fyrir í lægðum og dældum í
landinu, t.d. við eldgos. Eru vanga-
veltur um slíkt ein ástæða þess að
ráðist var í þá athugun sem hér
er kynnt. Síðast en ekki síst þykir
flestum dæmalaust þægilegt og fal-
legt í logni. Í því verður vatnsflötur-
inn spegilsléttur eins og sjá má á 1.
mynd sem tekin var í hauststillu í
Reykjavík. Áður hefur verið fjallað
um vinda og vindáttaflökt á Íslandi
í Náttúrufræðingnum1 og þar er í
heimildaskrá sagt frá fleiri greinum
um skyld mál.
Í greinarstúf þessum verður leit-
ast við að svara nokkrum áleitnum
spurningum um logn og hægviðri,
hvenær helst megi vænta logns og
hvaða veðuraðstæður ýta undir
logn. Þá verður drepið á það hvern-
ig gengur að spá logninu. Notast
verður við veðurathuganir frá ýms-
um stöðum á Íslandi.
Vindur
Vindur fer af stað þar sem loft-
þrýstingur er breytilegur frá einum
stað til annars. Því meiri sem
þrýstistigullinn er, því hvassara
verður. Krappar vetrarlægðir valda
stormum en í grunnum sumar-
lægðum er stundum bara strekk-
ingsvindur. Þegar lægðirnar eru
fjarri veldur hitamunur á minni
kvarða staðbundnum vindum
á borð við hafgolu og landgolu,
fallvind og brekkuvind (2. mynd).
Haf- og landgolur eiga rætur að
rekja til hitamunar milli lands og
sjávar. Á sólskinsdegi á sumrin er
landið jafnan hlýrra en sjórinn og
gola berst af hafi. Að næturlagi
(eða í froststillum að vetrarlagi) er
sjórinn iðulega hlýrri en landið og
andvari getur staðið af landi út á
sjó. Fall- og brekkuvindar verða
þegar loft við jörð í landhalla er
kaldara eða hlýrra en loft í sömu
hæð yfir sjó, neðan hallans. Þá má
segja að kalt loft falli vegna eigin
Ritrýnd grein /Peer reviewed
Náttúrufræðingurinn 87 (1–2), bls. 40–44, 2017