Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 41

Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 41
41 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags þunga niður brekkur eða að loftið leiti upp brekku ef það er hlýtt. Vindur er að jafnaði hægari eftir því sem nær dregur yfirborði jarðar, eins og flestir sem legið hafa í grasi hafa veitt eftirtekt. Orða má það á þann veg að bremsuáhrif jarðar- innar á vindinn séu mest við yfir- borð jarðar, en fjari smám saman út eftir því sem ofar dregur. Þegar kalt og eðlisþungt loft er niðri við yfirborð jarðar og hlýrra og eðlis- léttara loft er ofar (hitahvörf) ber- ast þessi bremsuáhrif ekki að ráði upp á við. Þá getur verið logn við yfirborð jarðar, en strekkingur í aðeins nokkur hundruð metra hæð. Hentugt getur verið að sjá slíkt fyrir sér með því að ímynda sér hvass- viðri yfir vatni sem er miklu eðlis- þyngra en loftið; loftið er á fleyg- iferð, en straumurinn í vatninu er mjög hægur miðað við loftið. Gögn Í grein þessari er byggt á mælingum á sjálfvirkum veðurstöðvum Veður- stofu Íslands á klukkustundarfresti. Að jafnaði er notast við mælingar árin 2005 til 2015 að báðum árum meðtöldum. Gert er ráð fyrir að mælabilanir séu óháðar því hvort það er logn eða ekki og er því horft framhjá þeim. Þess er þó gætt að bilanir sem leiða til þess að vindur mælist enginn, til dæmis vegna ísingar, séu ekki túlkaðar sem logn. Við skoðun á stöðugleika lofts var litið til allra mælinga sem gerðar hafa verið samtímis á toppi Skálafells og á Korpu í Mosfellsbæ árin 1997–2016. Veðurstöðvarnar sem um ræð- ir eru Eyrarbakki, Skarðsfjöruviti og Raufarhöfn og er meðal- tal þeirra nefnt strönd; Kálfhóll, Kirkjubæjarklaustur og Ásbyrgi, en meðaltal þeirra er nefnt inn- sveit; Húsafell, Reykir í Fnjóskadal og Hallormsstaður sem nefnd- ar eru dalur; Flateyri, Akureyri og Kollaleira sem saman mynda fjörð; og Hveravellir, Sáta og Sandbúðir sem nefndar eru hálendi. Sjálfvirkar veðurstöðvar eru vissulega mun fleiri á Íslandi, en aðeins hluti þeirra hefur mælt samfellt allt umrætt tímabil. Þá er landslag á Íslandi margbreytilegt, ströndin vogskorin og margar veðurstöðvar geta fall- ið í fleiri en einn flokk. Gögn frá slíkum stöðvum eru ekki notuð og takmarkar það fjölda veðurstöðva enn frekar. Það kemur þó ekki að sök vegna þess að ekki er ætlun- in að leggja nákvæmt mat á tíðni logns við mismunandi aðstæð- ur. Það veður aðeins gert af sæmi- legri nákvæmni með mælingum á þeim stað sem um ræðir hverju sinni. Þessum stöðvum til viðbót- ar eru Veðurstofan í Reykjavík og Hjarðarland í Biskupstungum. Í þessari grein er einkum fjallað um hægviðri og er það skilgreint á þann veg að 10 mínútna meðalvindhraði sé undir 1 m/s. Hversu oft er hægviðri? Nánasta umhverfi sérhverrar veð- urstöðvar hefur vitaskuld áhrif á tíðni hægviðris en ætla má að þættir á borð við fjarlægð frá sjó og fjöllum og hæð yfir sjó hafi líka áhrif. Skoðum það nú nánar. Súluritið á 3. mynd sýnir hlutfall hægviðris í fyrrnefndum flokkum veðurstöðva. Hægviðri er áberandi fátíðast við ströndina og á hálendinu eða í aðeins um og undir 3% allra mæl- inga. Töluverðu munar þegar farið er inn til sveita en þar eru hæg- viðrisathuganir að meðaltali um 7% allra athugana. Hægviðri er enn tíðara í fjörðum, eða um 13% tímans og í dölum er hægviðri að meðaltali um 16% tímans. Munurinn milli stöðvaflokka sem er á 3. mynd kemur ekki á óvart. Lág tíðni hægviðris við ströndina á sér að öllum líkindum nokkr- ar orsakir. Í fyrsta lagi veitir sjór vindinum minna viðnám en land, ekki síst þegar stillt er og engin alda. Í öðru lagi er sjór við Ísland oftar en ekki hlýrri en loftið. Við þær aðstæður spillast hitahvörf við jörð gjarnan og þá er ólíklegra en ella að þær aðstæður komi upp að vindur „fljóti“ ofan á köldu lofti við yfirborð jarðar eins og lýst er hér að framan. Í þriðja lagi er iðulega hafgola við ströndina á sumrin, en hún er því fátíðari sem fjær dregur sjónum. Fjöllin veita greinilega skjól sem um munar í dölum og fjörð- um. Munurinn á dölum og fjörðum er ekki mikill og það bendir í þá átt að þau áhrif sem sjórinn hef- ur til að fækka hægviðrisstundum á strandarstöðvunum dvíni inni á fjörðum. Allt er þetta þó mjög háð aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Árstíða- og dægur- sveifla Vaknar þá spurningin hvenær ársins og hvenær sólarhringsins helst sé að vænta hægviðris. Fjórða mynd sýnir árstíðasveiflu hægviðris í Reykjavík. Að vetrarlagi er hægviðri að meðal- tali um 5% athugana en í allt að 12% 2. mynd. Haf- og landgola, fall- og brekkuvindur. – Sea-breeze, land-breeze, katabatic and anabatic flow.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.