Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 42

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 42
Náttúrufræðingurinn 42 að meðaltali um hásumarið. Meðal- tal alls ársins er 7%. Dálítið hágildi er á tíðniferlinum í október. Til að auðvelda samanburð á árstíðasveifl- unni milli stöðva er dreginn ferill sem sýnir frávik einstakra mánaða frá ársmeðaltalinu. Slík frávikalína er dregin fyrir alla stöðvaflokk- ana á 5. mynd. Ljóst er að í öllum flokkum er hægviðri tíðast á sumrin og allir tíðniferlarnir á 5. mynd sýna annað hágildi í október. Hægviðri er sjaldgæfast síðari hluta vetrar og snemma vors. Lítill munur er á flokkunum fimm, en þó má segja að á hálendinu séu vetrarstillur hlutfallslega algengar en septem- berstillur sjaldgæfar. Um hávetur er lítill munur á lofthita að næturlagi og á daginn. Þannig er það ekki á sumrin. Hiti er að jafnaði hæstur síðdegis og lægstur eldsnemma morguns. Tíðni hægviðris sveiflast líka í takt við sól- arganginn. Sjötta mynd sýnir dæg- ursveiflu hægviðris í Reykjavík og á Hjarðarlandi. Mög miklu munar á nóttu og degi og ljóst er að hin háa tíðni hægviðris að sumarlagi sem birtist á 4. og 5. mynd á fyrst og fremst rætur að rekja til stillu á öðrum tímum sólarhrings en yfir hádaginn. Línuritin á 7. mynd varpa tíru á árstíðasveifluna og ekki síst á það sem liggur að baki hauststillunni. Ætla má að vindur á toppi Skálafells gefi allþokkalega vísbendingu um vindinn sem blæs yfir stórum hluta landsins, ofan við loftlagið sem næst er yfirborði jarðar. Eins og búast má við er tíðni tiltölulega hægra vinda á Skálafelli mest á sumrin en minnst yfir háveturinn. Miklu mun- ar á ágúst og september, en þá eykst hitamunur milli norðurslóðalofts og suðrænna loftmassa og lægðum fjölgar hratt. Tíðni hægra vinda yfir landinu breytist hins vegar lítið frá september fram í október. Engin einföld skýring er á því hökti, en Trausti Jónsson hefur meðal fárra annarra lýst því í kveri um árstíða- sveiflur.2 Tíðni hitahvarfa eykst á hinn bóginn mikið frá september fram í október, til samræmis við minni sólgeislun og styttri dag. Þar 3. mynd. Meðaltíðni hægviðris árin 2005–2015 í þeim flokkum veðurstöðva sem nánar er lýst í textanum (%). – Mean frequency of calm winds in the different groups of weather stations. Data from 2005–2015 (%). 4. mynd. Meðalhlutfall hægviðrisathugana í sérhverjum mánuði í Reykjavík 2005–2015 (%; brotinn ferill) og hlutfall meðalfráviks sérhvers mánaðar af ársmeðaltali (%; óbrotinn ferill). – Frequency of calm winds in Reykjavik (%; dashed line) and proportion of the mean number of calm observations of individual months to the annual mean (%; solid line). 5. mynd. Hlutfall meðalfráviks hægviðrisathugana sérhvers mánaðar frá ársmeðaltali í veður- stöðvaflokkunum fimm (%). – Proportion of the mean number of calm observations of individ- ual months to the annual mean of calm winds for the different groups of weather stations (%).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.