Náttúrufræðingurinn - 2017, Page 44
Náttúrufræðingurinn
44
getur verið í logni aðra stundina
og hina stundina í strekkingsvindi.
Hægt er að herma þessa hegðun
vindsins ef nákvæmt er reiknað, en
líklega er ógjörningur að tímasetja
breytingarnar nákvæmlega fyrir-
fram. Það er með öðrum orðum
óvíst að í tilvikum sem þessum
verði vindi nokkurn tímann spáð
hárrétt í tíma og rúmi. Á hinn
bóginn er hægt að segja fyrir um að
óvissa verði tiltölulega mikil.
Ekkert er nýtt undir
sólinni
Höfundi er ekki kunnugt um að
hægviðrisathugun af þessu tagi hafi
áður verið gerð, hvorki á Íslandi
né annars staðar, en þegar rýnt er í
tungumálið mætti ætla að það sem
hér hefur verið lýst hafi lengi verið
vitað. Oft er talað um vetrar- og
hauststillur, en vor- og sumarstilla
láta síður vel i munni. Fellur það
ágætlega að tiltölulega hárri tíðni
hægviðris í október og ljóst er að
sumstaðar og þá einkum inn til
landsins eru vetrarstillur tíðari en
stillur að vori. Í fljótu bragði mætti
ætla að vangaveltur af þessu tagi
brotlentu harkalega þegar kemur
að sumrinu. Svo er þó ekki, því
sumarstillan sem hljómar ókunn-
uglega er í raun kvöld-, nætur- og
morgunstilla, en allt eru það heiti
sem flestum eru vel kunn. Með
nokkrum sanni má því segja að
vitneskjan um dægur- og árstíða-
sveiflu hægviðrisins hafi leynst í
tungumálinu, en hér birtist hún í
tölum og línuritum.
Summary
Calm winds
Time series of weather observations
from weather stations in Iceland are ex-
plored in order to assess the frequency
of calm winds in time and space. Calm
winds are particularly frequent during
night-time in the summer and a second-
ary maximum in their frequency is in
the autumn. The autumn maximum is
associated with rapid increase in fre-
quency of low level atmospheric inver-
sions. A state of the art numerical
weather prediction model predicts the
calm winds reasonably well in
Reykjavík. The largest errors are associ-
ated with weather characterized by
rapid fluctuations in wind speed, such
as in convective situations and close to
windshear downstream of a mountain.
8. mynd. Tíðnidreifing vindhraða í 24 klst.
veðurspá sem reiknuð er með líkaninu
Harmonie þegar mældur vindur er undir 1
m/s og tíðnidreifing vindhraða þegar spáð
hefur verið vindhraða undir 1 m/s eða 1,6
m/s 24 klst. fyrr. Gögn frá Reykjavík 2015.
– Frequency distribution of wind speed in a
numerical weather forecast with 24 hours
lead time, produced with the Harmonie
model, when the observed winds are less
than 1 m/s and frequency distribution of
observed wind speed when a 24 hours fore-
cast predicted wind speed less than 1 m/s or
less than 1,6 m/s. Data from Reykjavík in
2015.
Heimildir
1. Haraldur Ólafsson 2016. Vindáttarbreytingar. Náttúrufræðingurinn 86
(1–2), bls. 52–55.
Trausti Jónsson 2002. Sveiflur III. Árstíðasveiflur á Íslandi. Greinargerð
Veðurstofu Íslands nr. 02033 / VÍ-ÚR21. Veðurstofa Íslands, Reykjavík.
21 bls. Skoðað 18. maí 2017 á http://www.vedur.is/media/vedursto-
fan/utgafa/greinargerdir/2002/02033.pdf
2. Seity, Y., Brousseau, P., Malardel, S., Hello, G., Bénard, P., Bouttier, F., Lac,
C. & Masson, V. 2011. The AROME-France Convective-Scale Operational
Model. Monthly Weather Review 139. 976–991. DOI:
10.1175/2010MWR3425.1
3. Veðurstofa Íslands 2015. HARMONIE veðurspálíkanið. Veðurspá í þéttu
reiknilíkani. Skoðað 18.5. 2017 á http://www.vedur.is/vedur/frodlei-
kur/greinar/nr/3226
4. Hirlam 2009. General description of the Harmonie model. Sótt 20.
febrúar 2017 á http://hirlam.org/index.php/hirlam-programme-53/
general-model-description/mesoscale-harmonie.
Um höfundinn
Haraldur Ólafsson (f. 1965) er prófessor í veðurfræði við
Háskóla Íslands með aðsetur á Veðurstofu Íslands.
Hann lauk cand. mag.-prófi við Háskólann í Ósló 1986,
cand. scient.-prófi við sama skóla 1991 og doktorsprófi
við Paul Sabatier-háskólann og Centre National de
Recherches Météorologiques í Toulouse 1996. Hann
hefur starfað á Veðurstofu Íslands og við Háskóla Ís-
lands, og stýrði um hríð veðurdeild Háskólans í Björg-
vin í Noregi. Haraldur stóð fyrir stofnun Rannsóknastofu
í veðurfræði, Veðurfélagsins og Reiknistofu í veður-
fræði.
Póst- og netfang höfundar:
Haraldur Ólafsson
Veðurstofu Íslands
108 Reykjavík
Netfang: haraldur@vedur.is