Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 45
45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Jón Einar Jónsson
Náttúrufræðingurinn 87 (1–2), bls. 45–51, 2017
Ritrýnd grein /Peer reviewed
Eru tengsl milli
æðarvarps og
loðnugengdar?
Fæðuframboð af botndýrum er sá þáttur sem helst takmarkar líkams-
ástand æðarkollna fyrir varp. Hins vegar getur framboð á loðnu síðla
vetrar hjálpað til við að byggja upp næringarforðann. Prófað var hvort
fylgni væri milli fjölda æðarhreiðra í fjórum landshlutum og loðnuvísi-
tölu Hafrannsóknastofnunar 1985–2008. Loðnuveiðar hófust við Ísland
1963 og jukust hægt í fyrstu en tóku kipp upp á við 1976–1979 og svo aftur
1983–1989 eftir hallæri 1981. Fjöldi æðarhreiðra jókst 1980–1990 og náði
hámarki 1990 en loðnuvísitala stóð nokkuð í stað 1990–2000. Engin fylgni
var á milli loðnuvísitölu og fjölda æðarhreiðra 1985–2008 á Suðvesturlandi,
við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Hins vegar fækkaði æðar-
hreiðrum um 11% tímabilið 2001–2007, á sama tíma og loðnuvísitalan var
í sögulegu lágmarki í kjölfar breytinga á farleiðum loðnunnar. Æðarkollur
sleppa stundum úr varpárum, eða verpa seint, einkum ef næringarástand
þeirra er slakt að vori. Æðarhreiðrum fækkaði skyndilega við Breiðafjörð
1992, 1995, 1999, 2006. Öll árin var loðnuhallæri sama ár eða árið áður, en
hreiðrin náðu strax svipuðum fjölda árið eftir. Í slíkum árum er mögulegt
að loðnan gangi ekki inn á Breiðafjörð á leið sinni norðvestur á bóginn.
Tengsl stakra, slakra ára í fjölda æðarhreiðra við stök loðnuhallæri virðast
vera einu tengslin milli æðarvarps og loðnuvísitölu.
Inngangur
Fuglar þarfnast næringarríkrar
fæðu í aðdraganda varps en mis-
jafnt er hvort fuglategundir nærast
á álegutíma eða þreyja áleguna með
uppsöfnuðum næringarforða.1,2,3
Orkurík fæða hjálpar kvenfuglum
að búa sig undir varp og álegu og
því ræður aðgengi að fæðu síðla
vetrar miklu um varpárangur,3 bæði
hjá tegundum sem treysta á upp-
safnaðan orkuforða og þeim sem
getið étið á álegutíma.
Margir andfuglar (Anatidae) éta
meðan á álegu stendur en sumar
stærri tegundir treysta nánast ein-
göngu á næringarforða.4,5 Fæðuval
anda er talsvert breytilegt milli stofna,
1. mynd. Æðarfuglar sækja víða í hafnir, eins og þessi hópur í Stykkishólmi í febrúar 2016 / Common eiders frequently flock in harbours
around Iceland, like these eiders in Stykkishólmur in February 2016. Ljósm./Photo: Jón Einar Jónsson.