Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 46
Náttúrufræðingurinn 46 svæða og árstíma. Misjafnt er eftir andategundum, svæðum og árstíð- um hvort fiskur er tilviljunarkennd fæða eða reglubundin. Svokallaðar fiskiendur (Mergus spp.), svo sem toppönd (Mergus serrator) og gulönd (Mergus merganser) eru sérhæfðar fiskiætur. Sjóendur (Mergini) aðr- ar en fiskiendur éta mest hrygg- leysingja en nýta sér einnig hrogn smærri fiska, svo sem síldar (Clupea spp.) og loðnu (Mallotus villosus). Kolönd (Melanitta deglandi) (var áður deilitegund); korpönd (Melinitta fusca deglandi) við norðaustanvert Kyrrahaf (í Washington-fylki og Bresku Kólumbíu) lifa til dæmis mest á samlokum en skipta tíma- eða svæðisbundið yfir í fisk, krabba- dýr, burstaorma og skrápdýr síðla vetrar.6 Aðrar kafendur taka fisk eða hrogn þegar tækifæri gefst, til dæmis kúfendur (Aythya affinis) sem sækja stundum í beitufiskeldi (e. baitfish farms) í Bandaríkjunum.7 Duggönd (A. marila) og skúfönd (A. fuligula) eru náskyldar kúfönd og hafa hornsíli (Gasterosteus aculeatus) og hrogn þeirra fundist í mögum þessara tegunda sum ár á Mývatni, einkum þegar lítið var um aðra fæðu.8,9 Sjóendur færa sig milli svæða í leit að hrognum smáfiska að vori eða seinni hluta vetrar.10,11,12 Forðasöfnun fyrir varp er þá í há- marki og fiskigengd á sama tíma því jákvæð viðbót í fæðu, til dæm- is meðal straumanda (Histrionicus histrionicus) í Bresku Kólumbíu. Þær straumandakollur sem átu hrogn Kyrrahafssíldar (C. pallasii) þyngd- ust hraðar en straumandakollur sem átu krabba og snigla á sama tíma, þ.e. í marsmánuði, þótt þyngdin jafnaðist út milli hópanna um miðj- an apríl.13 Um miðjan vetur voru samlokur uppistaðan í fæðunni en fjölbreyttari fæða var tekin seinni hluta vetrar.6 Æðarfuglar (Somateria mollissima) (1. mynd) lifa mest á botndýrum, einkum kræklingi (Mytulis edulis) og öðrum samlokum, sniglum og krabbadýrum.14,15,16,17 Æðarfuglar éta hrogn loðnu og grásleppu (Cyclopterus lumpus)15,18,19 og geta tekið ýmsa smærri fiska ef færi gefst.20 Ís lendingum hefur lengi verið ljóst að æðarfuglar éta loðnu á veturna, og var það sýnilegt þegar fylgst var með löndun úr fiski- skipum á árum áður.14,16 Arnþór Garðarsson19 lýsir því svo (bls. 97–98): Bestu kræklingamiðin nýtast oft illa síðari hluta vetrar, m.a. vegna ísa. Æðarfuglinn sækir þá dýpra og utar og lifir þá á ýmiss konar botn- dýrum öðrum. Á útmánuðum verð- ur loðna Mallotus villosus, og síðan loðnuhrogn, oft aðalfæðan. Loðnan er mikið étin inni í höfnum, þar sem hún fellur í sjóinn við uppskip- un. Þegar loðnan hrygnir, hópast æðarfuglinn á þau mið. Æðarhópar í loðnuleit inni í höfnum skipta oft þúsundum fugla og þykir mörgum tilkomumikið á að horfa. Enn stærri verða þó hóparnir þar sem loðnan er að hrygna, og skipta fuglarnir í þeim stundum tugum þúsunda. Nýta má maga úr æðarfuglum sem drukkna í grásleppunetum til að rannsaka fæðuval æðarfugls að vori og snemma sumars en ekki á öðrum árstímum. Fæðan hér við land hefur aðallega verið rannsök- uð vor, sumar og haust.16,17,21 Eina dæmið um rannsókn að vetri til (söfnun fugla í nóvember og febr- úar) er úr Skerjafirði frá 199316 og 2. mynd. Útbreiðslukort æðarfugls Somateria mollissima og helstu stofna loðnu Mallot- us villotus á norðurhveli jarðar. Höfundur teiknaði eftir a) útbreiðslukorti CBIRD-hóps CAFF,35 b) varpútbreiðslukorti fyrir æðarfugl fyrir austanvert Rússland,52 c) útbreiðslu- korti æðarfugls fyrir Norður-Ameríku53 (fyrir austurströnd Bandaríkjanna) og d) korti Hjálmars Vilhjálmssonar fyrir loðnustofna.34 – Range map of common eider Somateria mollissima and primary capelin populations Mallotus villosus in the Northern Hemi- sphere. Drawn by the author after: a) the eider range map from the CBIRD group within CAFF, 35 breeding range map for north-eastern Russia,52 c) for eastern United States: the range map for North America53 and d) map made by Hjálmar Vilhjálmsson for primary capelin populations.34
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.