Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 52

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 52
Náttúrufræðingurinn 52 Jóhann Örlygsson og Sean Michael Scully Framleiðsla vetnis með hitakærum bakteríum INNGANGUR Áhugi á framleiðslu lífeldsneytis hefur aukist gríðarlega á síðustu tíu árum, aðallega í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun í formi bruna jarðefnaeldsneytis. Nýting þeirrar takmörkuðu auðlindar hefur einnig leitt til aukins styrks af koltvísýringi í andrúmslofti, sem talið er meginor- sök hækkandi hitastigs á jörðinni.1,2 Við bruna jarðefnaeldsneytis eru notaðar steinrunnar leifar plantna sem hafa safnast fyrir í milljónir ára en við bruna lífeldsneytis er not- aður lífmassi sem oftast hefur orðið til sama ár og hann er nýttur til elds- neytisframleiðslu. Helstu tegundir lífeldsneytis eru lífetanól, lífdísill og lífmetan. Þótt koltvísýringur losni út í andrúmsloftið við bruna þessa lífeldsneytis er kolefnislosunin sögð vera hlutlaus, þar sem plönturnar sem notaðar eru hafa við vöxt bundið koltvísýring sem losnar út í andrúmsloftið við bruna.1,2 Vetni er ein af gerð lífeldsneytis sem ekki losar kolefni út í andrúmsloftið við bruna. Vetnisframleiðsla úr lífmassa hefur verið mikið rannsökuð síðasta áratuginn en framleiðsla í miklum mæli er þó skammt á veg komin. Vetni er því mun minna notað sem eldsneyti en fyrrnefndar lífelds- neytistegundir. Vetni er hins vegar mjög áhugaverður kostur, ekki síst vegna orkuinnihalds, sem er 122 kJ/g, eða næstum þrefalt meira en vetniskolefna (etanóls, metans, dís- ils).3 Nú er nánast allt vetni fram- leitt úr jarðefnaeldsneyti og nemur heildarframleiðslan um 1 milljarði rúmmetra á dag. Þar af eru aðeins 4% framleidd með rafgreiningu á vatni.2 Framleiðsla á vetni úr jarð- efnaeldsneyti felur í sér aukinn styrk gróðurhúsalofttegunda í and- rúmslofti. Fjöldi örvera (fornbakteríur, loft- firrtar og kjörfrjálsar bakteríur, blá- bakteríur (e. cyanobacteria), græn- þörungar og frumdýr) er fær um að framleiða vetni.4,5 Skipta má vetnisframleiðslu örvera í fjóra- meginflokka: (1) ljóstillífun (e. water splitting photosynthesis), (2) ljóstillíf- un og gerjun (e. photofermentation), (3) gerjun (e. fermentation) og (4) rafgreiningu (e. microbial electrolysis processing). Hver og einn þessara framleiðsluferla hefur sína kosti og galla hvað varðar framleiðsluhraða og hagkvæmni. Í þessari yfirlits- grein verður eingöngu fjallað um þriðja meginflokkinn, gerjun, en sú framleiðsluleið er talin vera einna hagkvæmust, sérstaklega í ljósi þess Umfjöllunarefni þessarar yfirlitsgreinar er vetnisframleiðsla með gerjandi, hitakærum örverum. Mikil umræða hefur verið í heiminum um fram- leiðslu á lífeldsneyti til mótvægis við jarðefnaeldsneyti. Meginástæðuna má rekja til hækkandi hitastigs á jörðinni sem talið er stafa af auknum styrk koltvísýrings í lofthjúpi jarðar vegna bruna jarðefnaeldsneytis. Vetni er dæmi um lífeldsneyti sem framleiða má með gerjun einfaldra sykra, t.d. glúkósa úr sterkju og súkrósa úr sykurreyr. Í þeim tilfellum er hrá- efnið hins vegar einnig notað í fóður- og matvælaframleiðslu, sem veldur beinni samkeppni milli orkuvinnslu og landbúnaðar. Í stað þess að nota þennan einfalda lífmassa til orkuframleiðslu hafa menn nú beint athygli að öðru, flóknara hráefni, þ.e. lignósellulósa. Í greininni er gefið yfirlit yfir þá gerjunarferla sem hitakærar bakteríur nota til framleiðslu á vetni og er sérstök áhersla lögð á bakteríur sem hafa verið einangraðar úr íslenskum hverum. Farið er yfir helstu nýtnitölur fyrir vetnisframleiðslu, bæði úr ein- földum sykrum og hýdrólýsötum flóknari lífmassa. Að endingu eru helstu ættkvíslum hitakærra baktería (Thermoanaerobacterium, Caldicellulosiruptor, Thermotoga), sem þekktar eru sem öflugir vetnisframleiðendur, gerð skil og tíundaðir helstu kostir þeirra og gallar til slíkrar framleiðslu. Náttúrufræðingurinn 87 (1–2), bls. 52–59, 2017 Ritrýnd grein /Peer reviewed
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.