Náttúrufræðingurinn - 2017, Page 70
Náttúrufræðingurinn
70
Á fjarlægum ströndum
Eru einhvers staðar sambærilegar
myndanir á ströndum sem myndast
hafa við hærri sjávarstöðu? Margar
fornar neðansjávarmyndanir eru
nú ofansjávar, frá míósen og einnig
eldri. Víða á ströndum Atlants-
hafs og Kyrrahafs má finna meiri
fjölbreytni í gömlum strandmynd-
unum en á Hvítanesi þar sem fara
saman bólstraberg og beltahraun
sem samsvara helluhraunum á
landi og skiptast á að vera undir eða
ofan á. Hraunrennsli getur breyst úr
einni mynd í aðra vegna kólnunar,
seigju hraunsins eða landslags.
Á Menakozhöfða á strönd
Biskaja flóa er lýst beltahraunum,
samþjöppuðum stuðlum og bólstra-
bergi frá krítartímabilinu með stöku
risabólstrum, allt myndað í grunn-
um sjó. Í bólstrabergsmynduninni
er hlaði af sívalningum allt að 20 m
á lengd og 2,2 m í þvermál.17 Í þver-
skurði eru sumir gegnheilir en aðrir
með stuðlabrotum.
Beggja megin Kyrrahafs finnst
bólstraberg myndað í sjó eða vötnum.
Á Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku
skera hraðbrautir víða hæðir og þar
hafa bólstrar komið í ljós við vega-
gerð. Hið mikla flæðibasalt sem
kennt er við Kolumbíuána, og er frá
míósen, hefur fundið sér leið niður í
mjúk setlög og flæðiengjar og skilið
eftir bólstra á ströndum Washington-
og Oregon-fylkja.18 Í athyglisverðri
grein um flóknar míósen-myndan-
ir í Maori-flóa á Nýja-Sjálandi eru
meðal annars greind sjö hraunlög
sem risið hafa úr sjó.19
Á Cape Grim á Tasmaníu –
lengra frá Ísafjarðardjúpi komumst
við varla – er lýst basaltbólstrum
frá míósen. Greinarhöfundar lýsa
bólstrum með vel varðveittum
þensluraufum á glerkenndu skurni.
Þeir telja þensluraufar einkennandi
(e. diagnostic) fyrir bólstraberg og
segja slíkar raufar ekki sjást á yfir-
borði helluhrauna. Þetta sé sá hluti
bólstranna sem verður til þess
að þeir geta þanist út þannig að
hraunið rennur áfram. Vel varðveitt-
ar þensluraufar séu mjög sjaldgæfar,
og þurfi helst að sjást í þrívídd eins
og á Cape Grim. Þeir segja skilning
á þeim gefa nýja sýn á framskrið
bólstrahrauns.20
Það voru ekki síst raufarnar sem
vöktu athygli mína á klöppunum á
tanganum. Margar klappir eru með
skorum sem gætu verið þenslurauf-
ar. Þær eru yfirleitt aðeins skorur, en
á stöku stað er gliðnun, jafnvel rask
(1. mynd). Mér tókst að koma hand-
legg niður á einum stað en gat ekki
við þreifingu gert mér grein fyrir
yfirborði glufunnar nema brotsárið
var þétt og ójafnt. Á 7. mynd sjást
þensluraufar á bólstrum á sjávar-
botni, en á 8. mynd sjást raufar í
klöppum á Hvítanesi.
Á Lopez-eyju í San Juan-eyja-
klasanum í sundinu milli Van-
couvereyju og meginlandsins eru
ílangir bólstrar frá júratímabili sem
minna á klappirnar á Hvítanesi.
Við byggðina í Richardson á suður-
strönd eyjunnar er lítið svæði á
ströndinni sem best er að skoða á
háfjöru. Gefur þá að líta mjög fínt
bólstrabergshraun þar sem ílangir
bólstrar hafa runnið hver ofan á
annan. (9. mynd).21 Bólstrarnir fyrir
framan manninn minna á mynd-
anir næst sjónum á tanganum á 10.
mynd.
Annað athyglisvert á Richardson
er bólstur á 11. mynd, sem við skul-
um skoða nánar. Hann leggst að
undirliggjandi bólstri og mjókkar í
hægri endann og er þar með brot og
svigður.
Á Hvítanesi, á Grundinni, svæð-
inu frá klapparfjörunni upp að bakk-
anum er steinn með svigðum (12.
mynd), sem minna á skorurnar á
11. mynd. Hann ber reyndar uppi
hrauk af holusteinum.
Á úthafshryggjum
Þar sem Ísland er einstök ofansjávar-
myndun á úthafshrygg með fleka-
skilum og heitum reit – er þá ekki
upplagt að skoða betur sjávarbotn-
inn á hryggjunum og sjá hvað er þar
í mótun?
Komið hefur í ljós að bólstraberg
myndast á úthafshryggjum þar sem
gliðnun er hæg, þ.e. rekhraðinn lítill,
eins og á Mið-Atlantshafsprungunni.
7. mynd. Ljósmynd tekin úr djúpfarinu Alvin á Austur-Kyrrahafs-
sprungunni og sýnir þenslurauf í bólstrum sem eru um 1 m í þver-
mál. – Alvin’s view of basalt pillows with a spreading crack
(individual pillows approximately 1 m across) from the East Pacific
Rise.26 Ljósm./Photo: Robert Embley NOAA.
8. mynd. Vestan megin á Hvítanestanga. Eru þetta þensluraufar
sem eru einkennandi fyrir fyrir bólstraberg? – Are we looking at
spreading cracks which are, according to Goto et al., diagnostic for
lava pillows? Ljósm./Photo: Bergþóra Sigurðardóttir.