Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 72
Náttúrufræðingurinn
72
um með hnúðum en öðrum með
hlemmum (e. trap door). Að innan
geta bólstrarnir verið allavega, tómir,
hálffullir, sléttfullir með stuðlum og
geislum. Bólstrar geta haft eina eða
fleiri marglaga kólnunarskorpur.23
Á síðustu árum hafa verið gerðar
miklar rannsóknir á öðrum úthafs-
hrygg í Kyrrahafi. Í um 480 km
fjarlægð frá strönd bandarísku
fylkjanna Washington- og Oregon
er Juan de Fuca-flekinn og úthafs-
hryggur sem á það sameiginlegt
með Mið-Atlantshafshryggnum á
Íslandi að tengjast heitum reit og er
gliðnun þar einnig frekar hæg.26,27
Þar er eldfjallið Axial Seamount
sem gaus 1998, 2011 og vorið 2015.
Gossprungan er 9 km að lengd en
í Kröflu var hún 11 km. Myndanir
á Juan de Fuca eru mjög áþekkar
því sem sjá má á Mið-Atlantshafs-
hryggnum. Þarna hefur myndun
bólstrabergs verið fylgt eftir og
því líkt við sprungugos á Mið-
Atlantshafshryggnum, þar sem eld-
gos verða á hliðruðum sprungum.
Á 13. mynd sjáum við fyrirbæri sem
einkenna gosmyndanir á úthafs-
hrygg: Gosmöl, bólstrar og belta-
hraun skiptast á í sama gosinu og
bólstrar myndast í jaðri beltahrauns.
Myndun ílangra bólstra hefur ver-
ið líkt við það þegar tannkrem er
kreist úr túbu. Yfirborð hraunsins
kólnar snöggt þegar 1.100–1.200° heit
kvika rennur í kaldan sjó en áfram er
>1.000°C heit bergkvika inni í bólstr-
unum. Hraunið þenur og rýfur gler-
kennda skelina, og nýr sepi, bólstur,
verður til. Ílangir bólstrar geta orðið
margir metrar á lengd í 20–30 gráðu
halla. Þessu er nákvæmlega lýst í
myndabók Ballards og Moores.23 Nú
virðist reyndar að menn séu ekki á
einu máli um hvernig bólstrar þenj-
ast út frá þensluraufum.20
Hvað er að sjá á tangan-
um?
Klappirnar á Hvítanesi eru margvís-
legar og falla margar að lýsingu Bal-
lards og Moores.23 Hvernig líst ykkur
á þennan kúlulaga stein á 4. mynd?
Hann er reyndar með þenslurauf,
sem styður að um bólstur sé að ræða.
Við myndun hennar hefur dregið
úr þrýstingi og hraunið ekki haft
kraft í nýjan bólstur – kúlan hefur
stungið af og skoppað niður halla.8
Kúlan virðist hafa verndandi kápu
en klappirnar í kring eru sorfnar og
holóttar. Á 14. mynd er samanburður
við gamlan frænda sem myndaður er
á hafsbotni.
Sívalir bólstrar eru taldir ein-
kennandi fyrir bólstraberg þar sem
halli er talsverður þannig að þeir
hlaðast ekki upp heldur tognar úr
þeim þegar þeir renna frá gosstöðv-
um. Sívalningurinn á 1. og 15. mynd
hefur komið úr austri og breikkar þar
sem rennsli hans stöðvaðist. Hann er
með raufum og raski. Hér að framan
lýsir Moore sívölum bólstrum um
1 m í þvermál og 10–15 m á lengd.8
Á 3. og 16. mynd má sjá marga flata
bólstra en þeim eru einmitt gerð skil í
myndabók Ballards og Moores.23
13. mynd. Einkennandi gosmyndanir á sjávarbotni á Juan de Fuca frá 2011. Til vinstri er
skriða af bólstrabrotum, þá bólstrar og beltahraun til hægri, allt myndað í sama gosinu. Mis-
munandi form leiðir sennilega af flæði kvikunnar. – Lava cascade from the 2011 event in
Axial Seamount in Juan de Fuca. From left to right, it left talus, bulbous pillows and an
unbroken sheet flow. The differences probably reflect flow rate. Ljósm./Photo: Monterey Bay
Aquarium Research Institute í Kaliforníu.
14. mynd. Til vinstri: Bolti í nær 2.000 m
hæð y.s. nálægt Montgenèvre- fjallaskarðinu
á landamærum Frakklands og Ítalíu. Hann
hefur lagst í ótrúlegt ferðalag úr 2.000 m
dýpi í hafinu, ferðalag sem tók 170 milljónir
ára.28 Til hægri: Hluti úr 4. mynd. Hvernig
ferðalag á þessi bolti á Hvítanesi að baki? –
Left: Pillow lava at Chenaillet (Hautes–
Alpes) in France. This ball has made a great
tour from 2,000 m at the seafloor to near
2,000 m in the mountains a travel that la-
sted 170 Ma.28 Right: What kind of travel
has our relatively young ball at Hvítanes
made? (Part of Fig. 4). Ljósm. til vinstri/
Photo to the left: A. Saphon. Ljósm. til
hægri/Photo to the right: Bergþóra Sig-
urðardóttir.