Náttúrufræðingurinn - 2017, Side 83
83
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Gröndalshús
HÍN hefur lengi rennt hýru auga
til Gröndalshúss enda var Benedikt
Gröndal fyrsti formaður HÍN og í
húsi hans var fyrsti sýningarsalur
náttúru gripa safns félagsins. Það
hefur því verið metnaðarmál nátt-
úrufræðinga að húsið sé varðveitt og
því fundið sæmandi hlutverk, svo
sem með því að nýta það sem fræði-
mannsíbúð eða hafa þar fundarað-
stöðu fyrir frjáls félagasamtök á
sviði náttúrufræða og skáldskapar.
Nú hefur húsið staðið um hríð
á nýjum grunni í Grjótaþorpi og
unnið er að innréttingum. Þann
12. maí var húsið vígt, ef svo má
að orði komast, með ræðuhöldum
og söng. Svanhildur Konráðsdóttir
hóf athöfnina en síðan héldu Vigdís
Finnboga dóttir, Guðmundur Andri
Thorsson og Dagur B. Eggertsson
ræður og ávörp en Ragnheiður
Gröndal og Guðmundur Pétursson
sáu um tónlistarflutning. Fulltrúum
HÍN, Rithöfunda sambandsins og
fleiri félaga var boðið til athafnar-
innar. Nokkuð er enn í land með
framkvæmdir og frágang allan og
óljóst er hver aðkoma HÍN verður
að húsinu og starfseminni þar í
framtíðinni.
Vefsetur HÍN
Verkefnisstyrkur fékkst frá
umhverfis- og auðlindaráðuneyti
til að uppfæra heimasíðu félagsins,
460.000 kr. Í framhaldi af því var
heimasíðan tekin í gegn og gerð
nýtískuleg, fín og þjál í notkun og
viðmóti. HÍN þakkar kærlega fyrir
þennan góða styrk.
Perluvinir og nátt-
úrusýning í Perlunni
Perlan á Öskjuhlíð og náttúrusýn-
ing þar hefur allmikið verið á dag-
skrá á árinu. Perla norðursins hefur
unnið ötullega að því að koma þar
upp mikilli náttúrusýningu með
eða án aðkomu ríkisins og NMSÍ.
HÍN hefur lagt áherslu á að Nátt-
úruminjasafnið kæmi að málinu
með tilstyrk menntamálaráðuneytis
eins og þegar hefur komið fram í
þessari skýrslu.
HÍN aðstoðaði borgina við að
gera útboðslýsingu um umrædda
náttúrusýningu og skilaði áliti sínu
til borgarráðs í upphafi þessa starfs-
árs, í febrúar 2016. Síðan hefur félag-
ið ekki haft mikil afskipti af þróun
mála. Þó má nefna að formaður HÍN
tók í ársbyrjun 2017 sæti í vísinda-
ráði Perlusýningarinnar ásamt hópi
Gröndalshús var byggt 1882 en Benedikt Gröndal náttúrufræðingur og skáld var orðinn eigandi þess 1888. Ári síðar var HÍN stofnað.
Benedikt var fyrsti formaður félagsins og var náttúrugripasafn þess um skeið til sýnis í húsinu. Þarna bjó Benedikt til dauðadags 1907.
Húsið stóð síðan við Vesturgötu fram yfir aldamót en var þá flutt af lóð sinni. Árið 2014 hófst endurreisn þess á nýrri lóð í Grjótaþorpi.
Útlitið er hið sama og áður nema nú stendur húsið á hlöðnum kjallara. Hinn 12. maí 2016 var húsið vígt með ræðuhöldum og söng. Frá-
gangi hússins er enn ekki að fullu lokið og framtíðarhlutverk þess ekki fullráðið. Ljósm. Árni Hjartarson.