Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 9
B r o s t i n f r a m t í ð – 2 0 á r u m s í ð a r TMM 2013 · 2 9 nauðsyn og trúlega tekið betur eftir fyrirvörum Búkharíns við sýndar- réttarhöldin í Moskvu en Laxness gerði þótt viðstaddur væri. Einari tekst að stofna hér flokk sem var á skjön við Moskvulínuna, án þess að gera uppreisn gegn henni (þannig var því lýst af manni sem vel þekkir til) – nýtir sér meðvitað tækifæri þegar Moskvueftirlitið er ekki fullkomið og gerir það með vinstri armi Alþýðuflokksins. Finnlandsstríðið kemur síðan sem pólitísk krísa og Héðinn hrökklast út. Aldrei var þó reynt í alvöru að bolsévísera þennan flokk; hann var í reynd gegnumskorinn af flokksbrotum og klíkum. Einar stjórnaði flokknum af töluverðri kúnst; það er t.d. athyglisvert að staða Sósíalistaflokksins styrktist á árinu 1956, þegar kommúnistaflokkar í Vestur-Evrópu urðu fyrir meiri eða minni áföllum; eftir 1958–59 fer að halla undan fæti. Einar áttaði sig ekki á breytingunum austantjalds, sem byrjuðu með for- dæmingu Krústsjoffs á Stalín. Flokksþingið 1956 held ég reyndar að hafi verið minna áfall fyrir hann en marga aðra, en eftirmálinn var allur flóknari. Einar hafði ríka persónutöfra, gat virkað mjög sannfærandi á fólk og taldi sig sennilega einn og sér geta tekið að sér – um óákveðinn tíma – hlutverkið sem Lenín ætlaði forystuflokki. Ef ég má sletta ensku, mundi ég segja að sjálfs- mynd hans hafi á síðustu formennskuárunum verið farin að nálgast einhvers konar „one-man Leninist party“. Ég var með Einari á sósíalistaráðstefnu í Rostock í Austur-Þýskalandi 1960 og hlustaði á hann tala um sögu verkalýðsflokka á Íslandi og segja m.a. að saga þeirra væri eins og Íslendingasögurnar. Þjóðernisrómantík var mjög ríkjandi hjá honum. Árið 1968, eftir innrásina í Tékkóslóvakíu, skrifaði hann grein í Rétt þar sem hann líkti ríkisvaldinu við ófreskju, með tilvísun í drauginn Glám í Grettissögu. Flokkurinn væri hins vegar í eðli sínu heiðarlegur og góður. Þannig talaði Einar jafnvel á hinu fræðilega plani – marxismi, lenínismi og þjóðernisrómantík runnu saman í eitt. Á pólitísku plani hér heima skipti skilgreining hans á sérstöðu Íslands miklu máli – hér var veikt ríkisvald, enginn her, og – að hans áliti – lýðræðisleg hefð sem náði aftur til þjóðveldisins. Einar var popúlisti í gömlu merkingu þess orðs. Alþýðan var ein og góð. Á Íslandi var, a.m.k. meðal sósíalista, jafn mikið talað um alþýðuna og verkalýðsbaráttuna, alþýðan var eins konar absolutum stjórnmálahugsunar Einars. Þetta skýrir líka hversu auðveldlega hann gat unnið með hægrisinnuðum stjórnmálamönnum af popúlísku tagi, sér í lagi Ólafi Thors. Í bókinni þinni „Brostin framtíð“ er tótalítaríanismi sem hefur verið íslenskað sem alræði, höfuðatriði í greiningu þinni á sovéska módelinu. Segja má að öll saga Vestur-Evrópu frá stríðslokum 1945 sé uppgjör við það siðferðishrun álfunnar sem alræði olli. Þín fræði eru greining á „nútímanum“ eða „modernity“ og einkennum hans innan ramma þar sem Hannah Arendt og greining hennar á alræði kemur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.