Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 18

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 18
Á r n i S n æ va r r 18 TMM 2013 · 2 2 voru bætt upp með skemmtilegum vinnustað – þeim skemmtilegasta sem ég hef nokkru sinni verið á. Menn litu stórt á sig og ég var engin undantekning, og auðvitað var það eldfim blanda að vökva sinn innri alkóhólista af mikilli samviskusemi og gegna starfi þar sem egóið – sem var nógu stórt fyrir – var blásið út og maður breiddi úr sér og þóttist allt vita á sjónvarpsskjám landsmanna. Páll Magnússon, fréttastjóri og síðar útvarpsstjóri, sagði eitt sinn að hann kæmist upp með að borga fólki tíu til tuttugu prósent verri laun en það fengi í sambærilegum störfum annars staðar: „ánægjustuðullinn“ sagði stjórinn glottandi og þótt við urruðum í gegnum samanbitnar varir, vissum við að hann hafði hárrétt fyrir sér. Páll hafði einfaldan smekk og valdi aðeins það besta og fékk gott betur en tíu til tuttugu prósenta hækkun á gjöfulli fiskimiðum Kára klára hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hann kvaddi með stæl og í kveðjuveislu heima hjá honum í Garðabænum útnefndi hann Kristin Hrafnsson leiðinlegasta mann sem hann hefði unnið með og mig næstleiðinlegastan. Ég varð grænn af öfund út í Kristin. Á þessum tíma var lítið um að fréttamenn blönduðu sér í baráttuna um að vera starfsmaður mánaðarins, en það hefur vafalaust breyst eins og annað. Innan fárra missera vorum við Kristinn báðir með skófar arftaka Páls á rassinum. Þeim fannst við semsagt ekkert skemmtilegri en Páli. Páll Magnússon og Deng Xiaoping áttu fleira sameiginlegt en að vera stuttir til hnésins. Þeir voru nefnilega sammála um að sama væri hvort kötturinn væri hvítur eða svartur svo lengi sem hann dygði til að veiða mýs. Mýsnar voru fréttirnar og enginn velktist í vafa um að Páll væri fagmaður fram í fingurgóma, þótt sumum þætti hann helst til trúaður á að fréttirnar kæmu af sjálfu sér rétt eins og vandamálin sem leystu sig sjálf á meðan hann brá sér frá á milli hádegisverðar og fréttalesturs. Eftir á að hyggja var þetta sennilega alveg hárrétt hjá honum. Sem fréttamaður var enginn fremri arftaka Páls, Karli Garðarssyni, í að hlaupa á milli funda pólitíkusa og rétta fram hljóðnemann hnitmiðað og á hárréttu augnabliki og spyrja leiftursnöggt: „Hvað kom út úr fundinum?“ Fréttastofurnar eru hins vegar fullar af minnisvörðum um kollega sem van- mátu Karl Garðarsson. Sagt er að hann hafi orðið fréttastjóri eftir að hafa óumbeðinn skýrt yfirstjórninni frá því að hægt væri að reka fréttastofuna fyrir snöggtum minna fé en jafnvel smámunasamasta baunateljara hefði órað fyrir. Formúlan var einföld: færri starfsmenn áttu að vinna meira fyrir minna kaup. Hann kunni á Excel og sumir sáu engan mun á honum og því ágæta prógrammi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.