Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 21
Ó , þ e t t a va r i n d æ l t s t r í ð
TMM 2013 · 2 21
Dorrit og súkkulaðimolinn
Ég átti lengst af prýðileg samskipti við Ólaf Ragnar í blaðamannsstarfi
mínu, enda báðir áhugasamir um alþjóðamál. Eitt sinn lenti ég í miklum
vandræðum staddur á Indlandi við þriðja mann, þegar indverski tollurinn
ætlaði að gera tækjabúnað okkar upptækan. Góð ráð voru dýr og ég hringdi
í eina manninn sem ég vissi að hefði góð tengsl á Indlandi: Ólaf Ragnar.
Hann brást skjótt við; hafði samband við Murli S. Deora, þingmann og fyrr-
verandi borgarstjóra Mumbai (Bombay), sem leysti öll okkar mál og opnaði
síðan borgina upp á gátt fyrir okkur. Hef ég ævinlega kunnað Ólafi Ragnari
miklar þakkir og get vitnað um að það eru engar ýkjur að hann hafi verið vel
tengdur á Indlandi.
En æ sér gjöf til gjalda. Skömmu síðar var ég í ferð með Ólafi Ragnari í
Eystrasaltsríkjunum. Brá mér nokkuð í brún þegar forsetinn nýkjörni hélt
ræðu þar sem engu var líkara en hann hefði leikið lykilhlutverk í frelsis-
baráttu ríkjanna. Tíundaði ég ræðu Ólafs í símapistli á Bylgjunni í hádeginu
og hnýtti aftan við fréttina: „Þess má geta að Ólafur Ragnar var fjár-
málaráðherra á þessum tíma.“ Allt sannleikanum samkvæmt.
Ólafur hafði spurnir af fréttinni og rauk að mér með fúkyrðaflaumi og
hætti ekki fyrr en gengið var á milli. Eggjaði ég hann til að sýna fram á að
eitthvað væri rangt í fréttinni, en hann gat það að sjálfsögðu ekki. Hef ég ekki
litið hann sömu augum síðan.
Hafi Ólafur Ragnar um síðir orðið klappstýra útrásarinnar má segja að
á þessum tíma var að minnsta kosti gerð heiðarleg tilraun til að gera Stöð 2
að klappstýru Ólafs Ragnars. Þannig bauð Sigurður Stöð 2 fyrir hönd for-
setans upp á exklúsívan aðgang að því þegar Dorrit Moussaieff kom fyrst til
Íslands.
Undirritaður var sendur ásamt myndatökumanni á Bessastaði til að
taka upp hádegisverðarfyrirlestur Richards nokkurs Grasso, forstjóra
kaup hallarinnar í Wall Street. Sat fréttamaðurinn til borðs með helstu
útrásarvíkingunum og er sá eini þar við borðið, að Kára Stefánssyni undan-
skildum, sem ekki hefur sætt rannsókn fyrir fjármálaskandal, og raunar
hrökklaðist Grasso frá Wall Street fyrir græðgi – geri aðrir betur.
Dorrit hélt sig til hlés í boðinu en sat þó býsna nærri háborðinu. Við
höfðum verið beðnir um að gera frétt um ræðu Grassos og birta myndir af
Dorrit og annað ekki. Þegar fréttin hafði verið unnin var ég spurður hvort
þetta væri ekki allt klappað og klárt og ég hélt nú það.
Skartaði Stöð 2 síðan „vinkonu forsetans“ í kvöldfréttum sínum í boði
Bessastaða og Sigurðar G. Guðjónssonar án þess þó hún væri nefnd á nafn.
Lítil bíómynd á Stöð 2 eftir handriti Árna Snævarr, mjög lauslega byggðu
á hugmynd Ólafs Ragnars. Það hefur hins vegar aldrei farið mér vel að
vera málpípa valdsins og það var lítil ánægja með framlag mitt til dýrðar
forsetanum. Af einhverjum ástæðum féll það ekki í kramið að Dorrit sást