Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 33
TMM 2013 · 2 33 Bubbi Morthens Túrinn Þarna stóð ég á bryggjunni. Þetta var svona dagur þegar vindurinn sem blæs frá hafinu hvíslar í eyru þess sem nennir að hlusta: Allt getur skeð, vertu viðbúinn, þú ert á leiðinni á sjóinn, drengur … og einmitt þá kemur maður gangandi og segir: Heyrðu strákur, vantar þig ekki pláss? Nei, mig vantar ekki pláss en einhvern veginn enda ég samt um borð. Við sigldum út á opið hafið með fjöllin í kringum okkur líkt og þau sjálf væru siglandi út fjörðinn. „Hvítu mávar, segið þið honum“ … Ég hataði þetta lag. Hverjum dytti í hug að biðja þessa gargandi sjófugla eins og mávinn eða múkkann um kveðju? Ekki mér. En seinna, löngu seinna, var maður í sjónum við Vestmannaeyjar sem bað múkkann að fyrirgefa sér vonskuna sem hann og vinir hans höfðu sýnt honum á lífsleiðinni, og svo bað þessi maður sem svamlaði um í úthafsöldunni í marga klukkutíma, og félagar hans allir horfnir ofaní endalaust djúpið, svo bað hann múkkann um kveðju í land. Ég þekkti sjálfan mig og vissi hvað beið mín. Ég mundi Gullfoss og sjó- veikina. Eftir skamma stund lá ég ælandi í koju. Sjóveikin er hroðalegur hnefi sem slær mann niður. Hún hefur þannig áhrif á þann sem fyrir henni verður að hann er tilbúinn að játa hvað sem er, tilbúinn að deyja glaður, bara að þessu linni. Í fjóra daga lá ég sveittur og bylti mér, milli þess sem ég ældi þar til ekkert var eftir til að æla. Maðurinn sem var með mér í klefa reykti London Docks vindla og reyk- urinn leitaði uppi viðkvæmt nefið á mér, tróð sér uppí vitin á mér svo að gallið lak út um hálfopinn munninn meðan krampakippir fóru um magann. Þetta var kokkurinn um borð. Hann geymdi draumana sína undir skítugum kodda, moggadon, valíum, díazepam og ýmislegt annað góðgæti sem fékk sólina til að skína í myrkri hugans, þar sem mosagrænir draumar skriðu um í myrkrinu og leituðu að gömlum uppskriftum. Kokkurinn átti það til að standa nakinn uppá stól fyrir framan örmjóan spegil sem var fastur á skáp- hurð með vindilinn í kjaftinum, svo hvítur var hann að húðin á honum var nánast gegnsæ, stóð eins og hvít vofa, mannleg marglytta, kreppti vöðvana og tautaði: Þær elska stælta karlmenn. Hvítur með sigin eistu og hrukk- óttan lim stóð hann á kollinum og blés útúr sér reyknum og endurtók: Þær elska stælta karlmenn. Ég var ekki viss um hvort ég væri orðinn brjálaður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.