Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 66
Þ ó r u n n E r l u o g Va l d i m a r s d ó t t i r 66 TMM 2013 · 2 setja textann upp í óperusöngvarana. Mér var það lífsins ómögulegt, eins mikið og mig langaði, því að ég er ekki sérfræðingur í tímabilinu. Það að vera sagnfræðingur með sögulega málvitund auk sagnfræðivitundar bæklar mig algjörlega gagnvart því að skálda fortíð, ég get það ekki. Eins get ég ekki lesið söguleg skáldverk án þess að þjást og pínast yfir frjálsri meðferð og tímaskekkjum. Á þennan hátt er bæklandi að vera sagnfræðingur. Í hand- riti að docudrama um Jón Sigurðsson, leikinni heimildamynd þar sem Egill Ólafsson var Jón forseti, leysti ég þennan vanda þannig að það sem persónur sögðu var upp úr bréfum þeirra. Fjölmæli hét doktorsritgerð Gunnars Thoroddsen. Mér finnst særingar, illt umtal, lygar, áburður og útburður alveg jafn ljótur gagnvart liðnu fólki og lifandi, ég fer ekki ofan af því. Orð geta meitt hryllilega og markerað fólk til lengri tíma og mannorðsmorð drepur oft menn. Hauskúpan sem Kol- brún Bergþórsdóttir gaf mér fyrir fyrstu skáldsögu mína, sem var fantasía og vísindaskáldsaga, lét mér líða svo illa svo lengi að ég óttast að trámað sitji ævilangt í barninu sem ég hafði á brjósti. Svo þið haldið ekki að ég sé haus- kúpuhöfundur vil ég minna á að ég á tíu tilnefningar og fimm verðlaun fyrir ritlist og hef eftir 22 bækur bara fengið tvo dóma sem meiddu mig. Mér hefur tekist að trylla dómara báðum megin, í sagnfræði og skáldskap, sem bendir til þess að ég hafi reynt að gera eitthvað ferskt. Í annað skiptið fyrir að vera ekki nógu leiðinlegur sagnfræðingur og í hitt fyrir að ganga fram af gagnrýnanda sem þolir ekki fantasíur. Það muna allir vondu dómana sína, ég er ekki ein um það, því að um heiður og tilverurétt er að tefla. Guðbergur sagði fyrir einhverjum árum að hann hefði aldrei opnað Tómas Jónsson metsölubók fyrir tráma, sama segi ég um Júlíu. En nú skilst mér að hann sé búinn að skrifa bókina upp eins og fleiri bækur sínar. Ef Guðbergur hefði ekki afbyggt íslenska samfélagslygi þjóðernisdýrkandi rugls hefði mér fundist miklu óbærilegra að vera af þessari þjóð. Tómas Jónsson breytti lífi mínu og íslenskum bókmenntum mjög til hins betra. Vegna tímaskekktrar helgislepju var komin argandi þörf fyrir kúkaraunsæi. Skáldættarsaga Leið á því að vera endalaust að skoða og skrifa ævisögur annarra ákvað ég nýlega að nota bréfa- og skjalasafn móðurættar minnar, í járnskápnum bak við mig þar sem ég sit og vinn á kontór mínum. Ævisaga Jakobs Frímanns Magnússonar: Með sumt á hreinu, kveikti í mér, held ég, þar er umfjöllun um fjölskyldu hans og móður, hann er skólabróðir og jafnaldri. Ég samsamaði mig honum og vildi opna mína fjölskyldu eins og hann opnaði sína. Fyrst langaði mig að nota þessa fjársjóði frjálst og breyta nöfnum, nota þá sem skáld en þá væri ég að fremja ritstuld, minnti Helga Kress mig harkalega á, þótt um óprentað efni eigin fjölskyldu sé að ræða. Svona er að vera sagn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.