Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 103
K l a p pa r s t í g u r 16 TMM 2013 · 2 103 kveikja í bálkestinum. Bölvað vesen. Það er til of mikils mælst að notfæra sér hjálpsemi fólks til að ráðast í slíkt líknardráp. Ef Lína langsokkur fengi nóg af lífinu hvernig myndi hún bera sig að? Hún myndi allavega sjá um þetta sjálf, það er morgunljóst. Færi bara á eilífðar fyllirí með hestum og öpum þessa heims, dröggaði sig inn í sjálfseyðingu og blús. Nei, að sjálfsögðu ekki hún Lína. Hún myndi kaupa sér bláan þyrlufugl sérhannaðan til handanferða fyrir gullið sitt. Myndi fylla fuglinn af pönnukökum og sýrópi, taka síðan af stað um miðja nótt án frekari ummerkja. Sjónarhóll yrði samur við sig og löngu síðar flytti þangað inn nýbökuð fjölskylda með viðkvæma hamingjuna í farangrinum. Það væri nú ekki svo slæmt. Að hefja nýtt líf á Sjónarhóli fimmtíu árum eftir dularfullt hvarf herragarðseigandans. Af öðrum aðferðum má nefna útigang og óbyggðir, kynlíf, sjúkdóma, sult, ofát, drykkju og ástarmein. Ég hafði reyndar ekki hugarflug í að ganga svo langt að elska til dauða. Það hefur þó verið margreynt. En ég velti aðferðar- fræði sjálfseyðingarinnar töluvert fyrir mér þennan kalda vetur þegar ánamaðkarnir ásóttu mig sem aldrei fyrr. Ég átti ótal andvökunætur. Bron- kítis var orðið mitt vanalega ástand og ég ímyndaði mér að ég væri komin með tæringu. En þetta var ekki einu sinni lungnabólga heldur einungis þrálátur hósti og væg bólga í berkjum. Mér datt stundum Seltjörn í hug sem möguleg sviðsetning en fannst hún full nálægt mannabyggðum og Sel- tjarnarnesið eiginlega ekki nógu aðlaðandi. Þórbergur hafði löngum verið á leiðinni í Seltjörn eða í sjóinn frá Gróttu en aldrei tekist ætlunarverkið. Skórinn var eitthvað að þvælast fyrir honum. Það má nefnilega ekkert út af bregða þegar sjálfsaftaka er annars vegar. Flæktar reimar, gat í stígvélum, óvænt símtal getur gert út af við ráðagerðina. II Þetta var vetur ánamaðkanna. Ég bjó á Klapparstíg númer 16, ein með kanarífuglum sem fóru gríðarlega í taugarnar á mér. Eftir á að hyggja held ég að þeir hafi átt sökina á þessu djúpa þunglyndi sem sótti á mig. Ég deildi eldhúsi með fjölskyldu á neðri hæðinni en salerni með ungum tónlistar- manni sem svældi gras í öll mál og fyrrnefndum SS-foringja. Sá bauð aldrei góðan dag en gnísti þess í stað tönnum og barði saman hælum þegar maður heilsaði honum. Þetta var sá alversti vetur sem ég hef lifað. Fólkið í húsinu stráféll úr hinum ýmsu meinum, fannst í nærliggjandi kjöllurum, baðkörum, bakgörðum og meira að segja einn nágranni dó sisvona á bekk í Hljómskálagarðinum. Gamla konan á móti dó inni hjá sér úr engu nema sjálfri sér. Fólkið átti sér einskis ills von, flutti inn í húsið á Klapparstíg og þá fór feigðin óðara að bæra á sér og fyllti þau djúpstæðri dauðaþrá. Sem er þrá sem býr með okkur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.