Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Síða 113
„ A ð v e r a m e ð f u l l r i u n d i r m e ð v i t u n d“ : u m M e d ú s u h ó p i n n
TMM 2013 · 2 113
Ungir höfundar, sem kenna sig við súrrealisma, birtu stefnuskrá í einum af skólum
landsins fyrir nokkru. Þar stóð m.a.: „Við ætlum að halda áfram að taka okkar
kartöflu og kótilettu í hönd og snæða hnífapör við veisluborð undirmeðvitundar-
innar.“
[…]
Nú er kominn fram hópur ungra höfunda sem hrærast í súrrealisma og gefa út
bækur sínar hjá forlagi sem þeir kalla Medúsu. Þekktastur þessara höfunda er Sjón
[…]23
Fréttatilkynning um bókina birtist einnig, með kápumynd. Í umfjöllun
um Lystræningjann, júlí 1981, nefnir Jóhann Medúsumenn enn á ný til
sögunnar,24 en í ritdómi um Hvernig elskar maður hendur? eftir þá Sjón
og Matthías nennir hann ekki lengur að tala um Medúsu.25 Sú bók olli
reyndar dálitlu fjaðrafoki, en 12. mars 1981 var leiðari Tímans lagður undir
umfjöllun um bókina og þó aðallega umfjöllun Jóhanns um hana og er
ljóst að Þ.Þ. (líklegast Þórarinn Þórarinsson) sem skrifar undir er ekki par
hrifinn. Athygli vekur að hann hnýtir sérstaklega í orð Jóhanns um að
þetta sé „skáldskaparstefna „við hæfi ungs fólks““.26 Svo virðist sem ekki sé
heppilegt að ungt fólk sé mikið að kássast í ljóðum.27 Framúrstefnan hefur
greinilega enn ekki tapað krafti sínum til að ögra og trufla góðborgara sem
kenna sig við ‚framsókn‘, þessum rúmlega sjötíu árum eftir að hún hófst.
Árið 1982 birtist í Tímanum nokkuð háðsk umfjöllun um Hinn súrrealíska
uppskurð.28 Síðar sama ár fjallar Erlendur Jónsson á öllu jákvæðari hátt um
Hinn súrrealíska uppskurð í Morgunblaðinu.29 Þetta ár opnaði Skruggubúð
og Þjóðviljinn tók viðtal við Ólaf Jóhann Engilbertsson um fyrstu sýninguna
þar, Medúsa og gestir. Enn er farið yfir sögu Medúsu og fjallað um súrr-
ealisma almennt og að lokum er Ólafur spurður:
– Er hægt að lifa á því að vera súrrealískur listamaður á Íslandi?
– Vonandi í framtíðinni. Hingað til hefur þetta verið eintómur mínus.30
Bragi Ásgeirsson fjallar um sýninguna í Morgunblaðinu 22. júní 1982
og virðist ekki alveg með á nótunum því hann talar um hið unga fólk úr
Hamrahlíðarskólanum.31 Í DV birtist umfjöllun Gunnars B. Kvaran um
sýningu Sjóns í Skruggubúð síðar sama ár, og er hún nokkuð ítarleg um súrr-
ealisma og Medúsu.32 Ritdómar og umfjallanir um sýningar halda áfram að
birtast næstu árin en það er svo ekki fyrr en síðasta virka starfsár hópsins,
1985, sem verulega bitastæðar umfjallanir birtast, í Mannlífi og NT eins og
áður er sagt, auk viðtals við Sjón í DV.
Örn Ólafsson fjallar nokkuð rækilega um súrrealismann og áhrifavalda
hans í sinni grein í Mannlífi. Hann vitnar einnig í viðtal við Sjón sem segir:
Sumarið og haustið 1979 greip um sig mikil bókasöfnun hjá okkur öllum í evr-
ópskum módernisma, aðallega fantastískum, þar sem tungumálið er tekið á beinið,
leikið sér með hugmyndir og orðin. Áður lágum við í íslenskum módernistum […]