Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 121
H e i t i p o t t u r i n n
TMM 2013 · 2 121
Blöndal.7 Rétt fyrir neðan Þvottalaugarnar í Laugardalnum í Reykjavík var
hálfgerður forarpyttur með leirbotni þar sem krökkum var kennt að synda.8
Árið 1908 var þar byggð steypt laug og sund naut mikilla vinsælda, eins og
víða um land.
Smám saman varð vitundarvakning með aukinni sjósókn og menn gerðu
sér æ betur ljóst að sjómenn yrðu að vera syndir og var sundkennsla lögleidd
árið 1927.9
Sund var ekki aðeins talin nauðsyn heldur fékk það snemma táknræna
merk ingu heilbrigðis og ábyrgðarkenndar. Sundiðkun var leið til að halda
þjóðinni frá sollinum, kenna börnum góða siði, þrifnað og endurheimta
þar með sjálfsvirðingu; heilbrigða sál í hraustum líkama.10 Ungmenna-
félagshreyfingin, sem á fyrstu áratugum síðustu aldar var einn öflugasti
félagsskapur landsmanna, gerði sundnám að forgangsverkefni. Sundkennsla
hefur síðan haldið mikilvægi sínu allt fram á þennan dag en með öðrum
formerkjum þó. Nú er meginatriðið félagsþroski fremur en lífsorka; af-
slöppuð samvera fremur en keppni manna á milli.
Héraðsskólarnir voru sá vettvangur sem nærtækastur þótti til að efla
sundmennt í upphafi 20. aldarinnar. Þessir skólar voru settir niður á völdum
stöðum á landinu og þeim var ætlað það hlutverk að veita ungmennum um
dreifðar byggðir landsins tækifæri til að menntast og þroskast.11 Vandinn
var sá að tilkostnaðurinn við stofnun og starfrækslu skólanna var ærinn. Eitt
af þeim úrræðum sem notast var við til að gera verkefnið framkvæmanlegt
var að staðsetja skólana á hverasvæðum jafnvel þó að þau væru úr alfaraleið.
Jarðhitinn átti ekki aðeins að koma í veg fyrir að nemendur króknuðu úr
kulda heldur að gera þeim betur kleift að lifa heilbrigðu lífi. Sundkennsla var
þáttur í þeirri viðleitni.
Upphitun héraðsskólanna með heitu vatni sýndi með ótvíræðum hætti að
jarðhitinn var í senn hagkvæmur og, að því er virtist, nærtækur möguleiki.
Reyndin var þó sú að flutningurinn á varmanum frá uppsprettu til ætlaðs
notkunarstaðar var í senn tæknilega vandkvæðum bundinn og kostnaðar-
samur.12
Skólavörðuholtið, háborg Reykjavíkur
Skólavörðuholtinu var ætlað að verða miðbær Reykjavíkur á öðrum áratug
síðustu aldar og þegar þær forsendur sem lágu þeirri ákvörðun til grund vallar
eru skoðaðar var það ekki fráleit hugmynd. Holtið var miðja Reykjavíkur,
landfræðilega séð háborg eða einskonar Akrópólis.13 Sérhvert hús sem þar
var reist gegndi lykilhlutverki þess tíma; Austurbæjarskóli, fagskóli, vett-
vangur handíðar og verktækni, Landspítali, sölustaður fyrir mjólkurafurðir,
fataframleiðsla úr ull, Hnitbjörg, heimili og safn Einars Jónssonar; Sund-
höllin átti þar heima sem ein af lykilstofnunum þjóðfélagsins.
Upphafleg útfærsla Guðjóns Samúelssonar af sundlaug á holtinu var í