Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 136
D ó m a r u m b æ k u r
136 TMM 2013 · 2
fer ýmislegt öðruvísi en ætlað var í
þeirri Svíþjóðarför.
Stórkostleg er lýsingin á því þegar
konurnar taka hreingerningaræði í
íbúðinni sem Eyja og Garrinn leigja í
Reykjavík, því ræsa þarf út skítinn bæði
í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, og
sýnir Auður þar – eins og reyndar víðar
í þessari sögu – hversu gott auga hún
hefur fyrir því skoplega í aðstæðunum.
Þar fara mamma og Skíðadrottningin
fremstar í flokki: „Báðar mjóar og
ákveðnar í sínu: fullkomnar konur,
reiðubúnar að gera hreint eins og þeim
einum er lagið og skiptast á sögum sem
Eyja gæfi annað eyrað fyrir að geta sagt“
(48). Eyja sér vankanta sína endurspegl-
ast í „fullkomnun“ þeirra þar sem hún
situr í draumkenndu ástandi og þrífur
ofn með tannbursta meðan þær fara
sem hvítur stormsveipur um íbúðina
með ajax í annarri hendi og létta vín-
blöndu í hinni.
Oft er vísað til „Breiðafjarðarillsku“
kvenleggsins í móðurfjölskyldu Eyju
sem er ættarfylgja sem hana sjálfa virð-
ist skorta:
[…] ægðarlætin eru fylgifiskur Breiða-
fjarðarillskunnar, þessa undarlega heil-
kennis sem hefur hrjáð konur í móður-
fjölskyldu Eyju langt aftur í aldir og
hlýtur að hafa bjargað þeim frá ísbjörn-
um og þurftafrekum eiginmönnum fyrir
vestan: ýmist á eyjunum í Breiðafirði,
búsældarlegum jörðum á Barðaströnd
eða harðbýlinu í Djúpinu. Breiðarfjarð-
arillskan fær konu til að slá ísbirni og
eiginmenn eldsnöggt í hausinn með
pönnu, vafningalaust, til að lenda ekki í
kjaftinum á þeim. Þessar kerlur treystu
aldrei körlunum til að vinda íshrönglana
úr þvottinum því þeir þóttu ekki nógu
handsterkir. Eins og langamma Eyju sem
var alin upp við útgerð á heimili þar sem
systrunum lá lífið á þegar það var prúttað
um eina olíugallann á heimilinu áður en
þær réru til fiskjar. Þær kölluðu sko ekki
allt ömmu sína, þeim hefði þótt yndislegt
að fá að hreinsa klósettið í fínu sænsku
sumarhúsi með baneitruðum ætiefnum
í litríkum brúsum meðan sólargeislarnir
leika um hvítt postulínið. (195–196)
Eyja stenst ekki áhlaup kvennanna sem
beita fyrir sig Breiðarfjarðarillskunni í
bland við gylliboð og full sektarkenndar
fer hún frá Garranum og hefur hina
nauðsynlegu „andlegu og líkamlegu
endurhæfingu“ sem felst í því meðal
annars að „uppræta sjálfsblekkingu“
(208) „finna konuna í sér“ (234) og
byggja upp „ungskáld til sjálfsrýni“
(237), svo vísað sé til nokkurra kafla-
heita.
Svíþjóðardvölin: Atburðir við
vatn
Þótt Eyja hafi verið lokkuð til Svíþjóðar
undir því yfirskini að þar væri næðið
sem hún þyrfti til skrifta kemur fljótt í
ljós að henni er einmitt líka ætlað að
þrífa þar hvít postulínsklósett og passa
börn á sumarnámskeiðum sem Skíða-
drottningin stendur fyrir. Garrinn
sendir Eyju pakka sem reynist innihalda
bókina Atburði við vatn eftir hina
sænsku Kerstin Ekman og vel mætti
kalla Svíþjóðarkafla bókarinnar atburði
við vatn. Eyja dvelur hjá frænku sinni í
sumarhúsabyggð sem stendur við vatn
og skóg – og óttast bæði moskítóflugur
og skógarbirni. Í stóra samhengi frá-
sagnarinnar virka þessir kaflar sem
nokkurs konar ‘comic relief ’ eða innskot
sem kitla hláturstaugarnar ærlega.
Ástæða þess ekki síst stórkostleg pers-
ónulýsingin á Skíðadrottningunni – sem
er „ólgandi af lífskrafti“ (37) og Breiðar-
fjarðarillsku – og samskiptum hennar
við annað fólk, hvort sem um er að ræða
sænska nágranna eða Eyju sem stendur
alls ekki undir væntingum þessarrar
frænku sinnar. Margir og skondnir