Heimsmynd - 01.07.1990, Qupperneq 74
HEIMSMYND JÚLÍ 1990
þjóðarráðinu var bannað að
starfa ákvað Nelson Mandela
að víkja frá friðsamlegri mót-
mælastefnu sinni. Hann
hvatti til hermdarverka gegn
afrískum stjórnvöldum og var
fyrir vikið dæmdur til fimm
ára fangavistar árið 1962.
Árið 1963 voru Mandela
og fleiri dæmdir fyrir hermd-
arverk, föðurlandssvik og of-
beldissamsæri í hinum frægu
Rivonia réttarhöldum sem
draga nafn sitt af ríku út-
hverfi í Jóhannesarborg en
þar hafði lögreglan lagt hald
á vopn í höfuðstöðvum Um-
konto We Sizwe neðanjarð-
arhreyfingarinnar sem var
hluti af afríska þjóðarráðinu.
Mandela var stofnandi neð-
anjarðarhreyfingarinnar og
gekkst við sumum ákærunum
við réttarhöldin. Þann 11.
júní 1964 hlaut hann lífstíðar-
dóm og var í fangelsi á
Robben eyju fyrir utan Cape
Town til 1982 en þá var hann
fluttur í Pollsmoor fangelsið
á meginlandinu. Hann varð
tákn baráttunnar gegn apar-
theid um heim allan og þegar
honum var sleppt eftir öll
þessi ár var það stærsta frétt
fjölmiðla heimsbyggðarinnar.
Sú ákvörðun de Klerks for-
seta Suður-Afríku að leysa
Mandela er stærsta skrefið
sem stigið hefur verið í kyn-
þáttastríðinu í landinu en áð-
ur hafði hann leyft afríska
þjóðarráðinu að starfa á ný
og gefið loforð um að leysa
aðra 120 pólitíska fanga úr
haldi.
Brando 26 ára
Þann 21. júlí árið 1950
birist Marlon Brando
í fyrsta hlutverki sínu
á hvíta tjaldinu. Hann var þá
26 ára gamall og lék uppgjafa
Var hann sovéskur njósnari?
ann 17. júlí árið 1950
handtók bandaríska
alríkislögreglan, FBI,
hinn 32 ára gamla Julius Ros-
enberg. Hann var ákærður
fyrir að hafa selt Rússum
kjarnorkuleyndarmál. Það
var mágur hans, David
Greenglass, sem hafði verið
handtekinn nokkru áður,
sem flækti Rosenberg í mál-
ið. Greenglass hafði starfað
við rannsóknarstöðina í Los
Alamos þegar atómsprengjan
var í mótun og sagði Green-
glass FBI að systir hans Ethel
og mágur Julius Rosenberg
væru sovéskir njósnarar.
Rosenberg var vinstri sinnað-
ur en harðneitaði öllum sök-
um um að vera sovéskur
njósnari. Eiginkona hans, Et-
hel, 35 ára var handtekin
skömmu síðar og borin sömu
sökum. Árið 1951 voru hjón-
in dæmd til dauða ásökuð um
njósnir. Þrátt fyrir alþjóðlega
áköllun um að þyrma lífi
þeirra voru þau tekin af lífi í
rafmagnsstól þann 19. júní
1953. Allt til hinstu stundar
héldu þau fram sakleysi sínu.
Á undan sinni samtíð
Þann 25. júlí 1965
var Bob Dylan
púaður niður á
hljómleikum í Newport
þar sem hljómsveit með
rafmagnsgítara lék undir
þjóðlagasöng hans. Þetta
fannst aðdáendum Dylans
svik við málstaðinn, það
hæfði ekki friðarsinna að
styðjast við tækni af þessu
tagi. Með þessu móti væri
hann að draga úr hrein-
leika ljúfra laga eins og
Blowin’ in the Wind. Dyl-
an blés á þessar mótmæl-
araddir og sagði tónlist
sína ekkert hafa með hug-
myndafræði að gera.
Skömmu eftir tónleik-
ana í Newport varð notk-
un rafmagnsgræja vinsæl
og Dylan seldi milljónir
eintaka af plötum sínum
með þjóðlagasöng og raf-
magnstónlist. 1982 var
Dylan aftur púaður niður
á tónleikum í San Frans-
isco fyrir að syngja trúar-
lega tónlist en snillingur-
inn er ætíð á undan sam-
tímanum og síðasta plata
Dylans, Oh Mercy, er
hans vinsælasta um árabil.
hermann úr síðari heimsstyrj-
öldinni sem var í hjólastól.
Myndin bar nafnið Mennirnir
og vakti Brando strax athygli
fyrir túlkun sína á manni sem
á erfitt með að sætta sig við
hlutskipti sitt. Stórblöðin lof-
uðu leik hans, þrótt, innsæi
og tilfinninganæmi. Á sama
tíma fór það orðspor af Mar-
lon Brando í Hollywood að
hann væri ruddalegur sóði en
gæddur miklum hæfileikum.
Marlon Brando, sem hefur
verið í fréttum upp á síðkast-
ið þar sem sonur hans er
ákærður fyrir morð, er nú 66
ára gamall. Hann hefur
margsinnis lýst yfir fyrirlitn-
ingu sinni á kvikmyndaiðnaði
nútímans og hefur dregið sig
í hlé þótt hann hafi upp á síð-
kastið sést í fylgd með leik-
stjóranum David Lean sem
sagður er hafa boðið honum
hlutverk í kvikmynd eftir
sögu Josephs Conrad, Nostr-
omo.
Hár og grannur
Þann 15. júlí árið 1940
dó Robert Wadler,
hæsti maður heims.
Hann var 2 metrar og 69
sentímetrar á hæð. Robert
var aðeins tuttugu og tveggja
ára gamall þegar hann lést úr
fótameini.
74 HEIMSMYND